Morgunblaðið - 02.10.1985, Side 21
MORGUNBLAÐID, MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER1985
21
Afmæliskveöja:
Jón G. Sólnes
fv. alþingismaður
Það má ekki minna vera en að
ég sendi félaga mínum og „fjand-
vini“ nokkur orð á þessum tíma-
mótum í lífi hans, þótt ekki væri
nema til að gera nokkra bragarbót
fyrir gömul skrif um Kröflu, en
einmitt í tengslum við það mikla
ævintýr, sem reyndar virðist nú
allt geta snúizt Jóni í hag, hófust
kynni okkar.
Það er reyndar merkilegt íhug-
unarefni — að minnsta kosti fyrir
sjálfan mig — að við þá menn hef
ég hundizt beztu vináttuböndum,
sem ég hóf viðskipti við með erj-
um og illindum. Þeirra á meðal er
Jón G. Sólnes.
Það er ekki ætlun mín að gera
hér grein fyrir lífsstarfi þessa lit-
ríka manns, svo löngu kunnur sem
hann er alþjóð þegar, enda nýbú-
inn að gefa út ævisögu sína, sem
vakti mikla athygli og umtal. Ég
hef reyndar haldið því fram, að í
þeirri sögu sé dregin alltof einlit
mynd af honum, því eins og títt er
um sterka persónuleika þá á hann
til margar hliðar.
Það verð ég að segja eins og er,
að fáum mönnum hef ég kynnzt,
sem mér hefur þótt eins mikill
fengur í að kynnast og kalla vini
mína, því að svo gersamlega er
Jón laus við hræsni og yfir-
drepsskap, að hann getur aldrei
þess vegna orðið leiðinlegur.
Það er dálítið einkennilegt fyrir
nútímann, hvað menn verða marg-
ir eins og steyptir í sama mót og
þora ekki að vera þeir sjálfir. Við
þessa kvilla nútímans er Jón Sól-
nes laus með öllu, því að nú hálf-
áttræður er hann engum manni
líkur með það, hve afdráttarlausar
skoðanir hann hefur og er fljótur
að átta sig á aðalatriðum máls.
Mættu margir ungir menn taka
sér hann til fyrirmyndar hvað það
snertir.
Ég held, að þegar litið verði yfir
ævi Jóns og saga hans öll metin í
réttu ljósi, þá verði ekki stjórn-
málaafskipti hans það, sem hæst
gnæfir, jafnvel ekki þótt Krafla
verði með tímanum gróðafyrir-
tæki fyrir land og lýð — heldur
stjórn hans á útibúi Landsbank-
ans á Akureyri, sem er slíkt risa-
veldi í viðskiptum norðan heiða að
engu er til að jafna. Jón var
sjálfstæður bankastjóri og á eng-
an er hallað, þótt því sé haldið
fram, að hann hafi verið áhrifa-
mestur þeirra manna, sem þátt
áttu í uppgangi bæjarins frá því
um 1950 og fram undir 1980. Enda
er það svo, að margir hugsa með
söknuði nú til þess tíma, þegar
„Jón Sólnes og Jakob Frímanns-
son stjórnuðu Akureyri".
Jón G. Sólnes er mikill gæfu-
maður. Það má segja um hann
eins og Egill Skalla-Grímsson
sagði um sjálfan sig, þegar hann
gerir upp reikninga við guð sinn,
að forlögin hafa gefið honum „það
geð er ég gerði mér vísa fjendur af
vélöndum ... “ Menn verða ýmist
að vera með slíkum manni eða á
móti — engin hálfvelgja er til —
est aut non est...
Jón Sólnes er vel giftur maður.
Það er fátítt að sjá hjón, sem búið
hafa saman eins lengi og Inga og
hann, eins fallega skotin hvort í
öðru. Ég vil að lokum árna þeim
hjónum alls hins bezta og þakka
þeim fyrir hönd okkar hjóna
skemmtileg og góð kynni.
Bárður Halldórsson
19. Rxg6! — hxg6
19. - fxg6, 20. De5 - Hg8, 21.
Dxe6+ var ennþá verra, svo svart-
ur lætur skiptamuninn af hendi
möglunarlaust.
20. Dxh8 — Rd7, 21. Bf4 — Da3,
22. d5! — exd5, 23. Hel+ — Kd8,
24. Bg5+.
og svartur hafði nú fengið nóg
og gafst upp.
Vaganjan eyddi aðeins 39
mínútum á þessa skák. Vafalaust
hefur mestallur sá tími farið í
að ganga til og frá boðinu, því
hann virðist yfirleitt gefa skák-
um annarra keppenda meiri
gaum en sinni eign og væri áreið-
aniega ósigrandi ef hann yrði
járnaður við borðið.
Haustmót Taflfélags
Reykjavíkur 1985
121 þátttakandi er á mótinu,
þar af 21 í unglingaflokki. Teflt
er í sex flokkum og er raðað í
flokkana eftir styrkleika, í
A-flokki tefla 12 stigahæstu
skákmennirnir, næstu 12 í
B-flokki o.s.frv. Þátttakendur í
A-flokki nú eru flestir ungir og
upprennandi skákmenn. Stiga-
hæstur þar er Þröstur Þórhalls-
son með 2295 stig, og næstir
Björgvin Jónsson (2280) og Ró-
bert Harðarson (2270).
Staðan eftir fjórar umferðir á
mótinu er þannig:
A-flokkur:
1. Davíð Ólafsson 3%v.
2. Andri ,Áss Grétarsson 3 v. og
biðskák.
3. Benedikt Jónsson 2 v. og bið-
skák.
4. Árni Á. Árnason 2 v.
B-flokkur:
1. Jóhannes Ágústsson 3% v.
2. -3. Tómas Björnsson og Jón
Árni Halldórsson 2V4 v. og bið-
skák.
4.-5. Þröstur Árnason og Hannes
Hlífar Stefánsson 2'/i v.
C-flokkur:
1.-2. Hjalti Bjarnason og Eiríkur
Björnsson 3V4 v.
3. Ágúst Ingimundarson 2% v.
D-ílokkur:
1. Sigurður D. Sigfússon 3% v.
2. Gunnar Björnsson 3 v. og bið-
skák.
3. -4. Héðinn Steingrímsson og
Einar Þorgrímsson 2% v. og
biðskák.
E-flokkur (Opinn):
1. Sigurður F. Jónatansson 4v.
2. -3. Kristófer Svavarsson og
Arnór V. Arnórsson 3 v. og bið-
skák.
Unglingaflokkur: (Eftir 3 um-
ferðir)
1.-2. Hannes Hlífar Stefánsson
og Þröstur Árnason 3v.
FARIÐI
KJÓL OG HVIT7
herra
GARÐURINN
AÐAlSrFÆTI9 S 12234