Morgunblaðið - 02.10.1985, Síða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER1985
Mesta sprengju-
regn stríðsins
— í nýrri sókn Sovétmanna í Afganistan
Nýju Delhí, 1. október. AP.
SOVESKA hernámsliðið í Afganistan
og hermenn stjórnarinnar í Kabul
hófu í fyrri viku mikla sókn á hendur
skærulióum í norðurhéruóunum og
er haft eftir heimildum, að um hafí
verið að ræða „eitthvert mesta
sprengjuregn, sem um getur í styrj-
öldinni".
Haft er eftir heimildum, að
sóknin hafi hafist 24. september
sl. og beinst að því að hrekja burt
fjölmennt lið skæruliða, sem tekist
hefur að halda velli i Paghman
þrátt fyrir miklar árásir Sovét-
manna. í sókninni nú beita þeir
einkum fyrir sig herþyrlum, sem
GENGI
GJALDMIÐLA
London, I. okt. AP.
GENGI Bandaríkjadollars var
óstöðugt í dag vegna ótryggra hag-
talna varðandi framtíðarhorfur í
bandarískum byggingariðnaði.
Fyrir sterlingspundið fengust í
dag 1,40575 dollarar eða það sama
og í gær. Gengi dollarans var að
öðru leyti þannig, að fyrir hann
fengust:
2,6480 vestur-þýsk mörk (2,6750)
2,1827 svissneskir frankar (2,1875)
8,1725 franskir frankar (8,1625)
3,0115 hollenzk gyllini (3,0195)
1.798,00 ítalskar lírur (1.807,50)
1,3720 kanadískir dollarar (1,3865)
216,42 jen (216,00).
Gull lækkaði og kostaði hver
únsa 322,00 dollara (325,25).
ráðast með sprengjukasti og skot-
hríð á þau þorp, sem enn eru byggð
á þessum slóðum. Talsmenn
skæruliða segja, að þeir hafi verið
vel búnir undir sóknina og mann-
fall sé lítið í þeirra röðum.
Fréttir eru um, að skæruliðar
hafi 28. sept. sl. ráðist á flugvöllinn
í Kabul með eldflauga- og vél-
byssuskothríð og eyðilagt flugvél
og vöruhús.
ERLENT
Veður
Læyst
Akursyri
Am*t»rdam
Aþena
Barcetona
Bertín
Brúuel
Chtcago
Dublin
Fatwyiar
Frankfurt
Ganf
Hetsinki
Horvfl Kong
Jerúsatem
Kaupmannah.
Laa Palmas
Lissabon
London
Loa Angetes
Lúxemborg
Mallorca
Miamí
Montreal
Moakva
New York
OsJó
Paris
Peking
Reykjavík
Rfó de Janeiro 17
Rómaborg
Stokkhólmur
Sydney
Tókýó
Vmarborg
bórahöfn
4 skýjaó
23 heióskirt
30 heiftskirt
26 hólfskýjaó
25 heiósktrt
24 heióskirt
16 heiðskirt
19 skýjaó
24 lóttskýjaó
23 heióskirt
24 heiðskírt
8 rigning
29 heióskírt
21 heióskíri
16 heióskirt
vantar
29 skýjaó
26 haiftskírt
26 heióskirt
20 lóttskýjaó
26 mistur
30 léttskýjaó
29 skýjaó
16 rigning
6 skýjaó
25 skýjaó
10 skýjaó
26 heióskírt
25 hetóskírt
9 úr.k. i gr.
29 skýjað
31 hetóskírt
15 skýjaó
21 heióskírt
26 hyióskirt
19 heiftskírt
9 sútd
AP/Simamynd.
Aðalstöðvar PLO í rústum. Mynd þessi sýnir, hvernig umhorfs var við aðalstöðvar PLO í Túnis eftir loftárás sex
ísraelskra flugvéla í gær.
Arabaríki fordæma
loftárás ísraela
Glæpsamlegur verknaður, segir utanríkisráðherra PLO
Sameinudu þjóðunum, 1. október. AP.
EINN HELZTI aðstoðarmaður Yassers Arafat, leiðtoga PLO, sagði í dag,
að loftárás ísraela á aðalstöðvar hreyfingarinnar í Túnis væri sönnun þess,
að ís aelar væru aðal hindrunin í vegi fyrir friði í löndunum fyrir botni
Miðjarðarhafsins.
„Þetta er glæpsamlegur verkn-
aður, sem Israelsstjórn stendur
fyrir," sagði Farouk Kaddoumi,
utanríkisráðherra PLO, á fundi
með fréttamönnum í dag og bætti
því við, að Öryggisráð Sameinuðu
þjóðanna yrði væntanlega beðið
að taka þetta mál til meðferðar,
er það kemur saman til þess að
ræða deilur ísraels og arabaríkj-
anna.
Þá sagði Kaddoumi, að tilraunir
Reagans Bandaríkjaforseta til að
koma á beinum samningum milli
Jórdaníu og ísraels væru dæmdar
til þess að mistakast.
Farouk Al-Shara, utanríkisráð-
herra Sýrlands, fordæmdi í dag
loftárás Israela á aðalstöðvar PLO
í Túnis. Sagði hann, að ísraelar
hefðu „teflt í hættu alþjóða flug-
samgöngum".
Bin Abdul Aziz, utanríkisráð-
herra Saudi-Arabíu, fordæmdi
einnig loftárás ísraela.
Ótrúleg skákblinda
heimsmeistarans
Skák
Margeir Pétursson
HEIMSMEISTARANUM í skák,
Anatolys Karpov, varð í gær á ein
versta yfírsjón alls skákferils síns,
er hann lék hrottalega af sér í 22.
leik í elleftu einvígisskákinni við
Gary Kæ parov í Moskvu. Afleið-
ingar afleiksins voru algjört hrun
og eftir 25. leik áskorandans gafst
Karpov upp. Kasparov hefur þar
með jafnað metin í einvíginu, stað-
an er nú 5V4 — S'/t, hvor um sig
hefur unnið tvær skákir, en sjö
hefur lokið með jafntefli. Aðeins
verða tefldar 24 skákir í einvíginu,
þannig að það er tæplega hálfnað.
Allt útlit er fyrir að einvígið verði
eitt hið allra mest spennandi í allri
sögu skáklistarinnar.
Karpov stendur að vísu enn
heldur betur að vígi en áskor-
andinn, því ljúki einvíginu 12-12
heldur hann titlinum. En þetta
hræðilega áfall hlýtur að hafa
mjög alvarlegar afleiðingar fyrir
sjálfstraust heimsmeistarans.
Það er þekkt úr skákkeppnum að
eftir að hafa leikið grófum af-
leikjum nota meistarar oft mik-
inn tíma í að gá að hættum, sem
síðan reynast ekki vera til stað-
ar. Þetta hefur í för með sér
tímaþröng og nýja afieiki.
Því má þó ekki gleyma að Kar-
pov tókst að hrista af sér slenið
eftir afar slaka taflmennsku í
fyrstu skák einvígisins og vann
síðan fjórðu og fimmtu skákina.
Því forskoti hefur heimsmeistar-
inn nú glatað og má vænta þess
að hann taki sér frí á morgun
þegar tefla á tólftu skákina.
Skákin í gærkvöldi gekk þann-
ig fyrir sig að upp kom afar
meinlaus staða eftir 16 leiki og
flestir voru þá þegar farnir að
spá jafntefli. I fréttaskeytum frá
Moskvu segir að Karpov hafi
virst afslappaður og greinilega
búist við friðarsamningum
snemma, enda gaf staðan ekki
tilefni til annars.
Meistarar á meðal áhorfenda
höfðu margir hverjir séð gildr-
una sem Karpov féll í með 22.
leik sínum, jafnvel áður en stað-
an kom upp, enda var hún til-
tölulega einföld. Álíka dæmi um
jafn herfilega skákblindu er vart
að finna á 20 ára skákferli Kar-
povs, enda þess að vænta að
hann sjái þriggja leikja gildrur í
hraðskák.
Ellefta einvígisskákin:
Hvítt: Gary Kasparov
Svart: Anatoly Karpov
Nimzo-indversk vörn
1. d4 — Rf6, 2. c4 — e6, 3. Rc3 —
Bb4, 4. Rf3 — (H), 5. Bg5 — c5
í sjöttu skákinni lék Karpov
hér 5. — d6 og eftir 6. e3 —
Rbd7, 7. Dc2 - b6, 8. Bd3 -
Bxc3+, 9. bxc3, kom upp mjög
lokuð staða. Nú vill Karpov hins
vegar hafa línurnar skýrar og
leitar því snemma eftir peðaupp-
skiptum.
6. e3 — cxd4, 7. exd4 — h6, 8. Bh4
— d5, 9. Hcl — dxc4, 10. Bxc4
Slíkar stöður með stöku peði
hjá hvítum koma upp úr ýmsum
byrjunum, svo sem Caro-Kann-
vörn, Nimzo-indverskri vörn,
Tarrasch-afbrigði drottn-
ingarbragðs og mótteknu drottn-
ingarbragði. Á yngri árum tefldi
Karpov mikið slíkar stöður með
svörtu, en helsti verjandi svörtu
stöðunnar nú er Ungverjinn
Ribli. Eftir að Smyslov gamla
tókst að vinna tvær skákir af Ri-
bli í þessari byrjun í einvígi
þeirra 1983 hefur álit sérfræð-
inga á sóknarmöguleikum hvíts
aukist mikið.
10. — Rc6, 11. 04) — Be7,12. Hel
- b6, 13 a3 - Bb7, 14. Bg3
Að öðrum kosti leikur svartur
14. — Rh5! og jafnar taflið.
14. — Hc8, 15. Ba2 — Bd6, 16. d5
Hvítur afræður að losa sig við
veikleikann, staka peðið á d4.
Eftir það fer ójafnvægið úr
peðastöðunni og mikill jafntefl-
iskeimur liggur í loftinu. Það
kom einnig til greina að reyna að
flækja taflið og leika 16. Re5.
16. — Rxd5, 17. Rxd5 — Bxg3, 18.
hxg3 — exd5, 19. Bxd5 — Df6, 20.
Da4 — Hfd8.
Þegar hér var komið sögu
þótti mörgum sem útséð væri
um að annarhvor ynni skákina
og það er sannarlega ótrúlegt að
Karpov skuli tapa slíkri stöðu.
21. Hcdl — Hd7?!
Karpov er gjörsamlega blind-
ur fyrir fléttustefinu sem fylgir i
kjölfarið. Ef hann hefði skynjað
hættuna hefði hann áreiðanlega
leikið 21. — Hc7.
22. Dg4!
Setur upp gildruna ...
22. — Hcd8??
... og hún smellur saman:
(Nauðsynlegt var að leika 22. —
He7 og svartur getur enn haldið
jafntefli.)
23. Dxd7! — Hxd7, 24. He8+ —
Kh7, 25. Be4+ og Karpov gafst
upp.
Eftir 25. - g6, 26. Hxd7 -
Ba6, 27. Hf8 tapar svartur
manni.
Malaysía:
Vísa á bug
ásökunum
Filippseyinga
um morð og
mannrán
Kuala l.umpur, Malaysíu, 1. okt. AP.
HATTSETTIR embættismenn í her
og lögreglu Malaysíu vísuðu í dag á
bug fréttum frá Filippseyjum um að
malayískir failbyssubátar og herþyrlur
hefðu ráðist á þorp á eyjunni Maddan-
as á Suður-Filippseyjum og fellt eða
tekið í gíslingu 53 af íbúunum.
Lögreglustjórinn í Zamboanga-
héraði á Filippseyjum sagði, að ár-
ásin hefði hefði verið gerð á fimmtu-
dag og hefðu fjórir fallbyssubátar
og þrjár herþyrlur tekið þátt í
henni.
Lögreglustjórinn kvaðst telja, að
árás þessi hefði verið gerð í hefndar-
skyni fyrir árás, sem haldið væri
fram, að sjóræningjar frá Filipps-
eyjum hefðu gert á bæinn Lahad
Datu í Malaysíu. Þar voru þeir
sagðir hafa myrt 11 manns og sært
9, auk þess að ræna banka og ferða-
skrifstofu í bænum.
Helen Mac-
Innes látin
New York, 1. október. AP.
Helen Maclnnes, sem nefnd hefur
verið drottning reyfarahöfunda, lézt
í gær, mánudag, í kjölfar heilablóð-
falls. Hún var 77 ára.
Bækur Maclnnes seldust í tæp-
lega 24 milljónum eintaka í Banda-
ríkjunum og hún náði miklum
vinsældum í útlöndum. Voru bæk-
ur hennar þýddar á 22 tungumál.
Fjórar kvikmyndir eru byggðar á
verkum hennar. Helen Maclnnes
fæddist í Glasgow í Skotlandi. Hún
eignaðist einn son, sem er á lífi.