Morgunblaðið - 02.10.1985, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÖBER1985
27
Botha lofar bót-
um en þó ekki
kosningarétti
Jóhannesarborg, 30. sept AP.
P.W. BOTHA, forseti Suður-Afríku,
lofaði svörtum íbúum landsins ýms-
um endurbótum í dag, þ.á m. fulltrú-
um í ráðgjafanefnd forsetans, en
útilokaði fullan kosningarétt þeim
til handa. Hann sagði reynsluna hafa
leitt það í Ijós í ríkjum svartra í
Afríku, að jafn kosningaréttur hefði
aðeins haft í for með sér einræði
öflugasta blökkumannahópsins.
Til átaka kom ( átta borgum
Suður-Afríku í dag. í Höfðaborg
brenndu ólátaseggir tvo blökku-
menn lifandi. Lögreglumenn skutu
einn mann til bana er opnuð var
skothríð á hóp manna, sem réðst
að lögreglunni með grjótkasti. Þá
tilkynnti Afríska þjóðarráðið að
skæruliðar þess stæðu á bak við
sprengingar í þremur stórverzlun-
um í miðborg Durban sl. föstudag.
Á mánudag stakk múgur svartra
mann til bana í Höfðahéraði, en
um helgina féllu sex menn í inn-
byrðis átökum svartra í Suður-
Afríku.
Jafnframt mættu tugþúsundir
skólanema ekki í tíma, er hefja átti
kennslu í skólum litra manna í
Höfðaborg í morgun. Skólarnir
hafa verið lokaðir í tæpan mánuð
vegna óeirða.
Lögreglan í Höfðaborg tvístraði
mótmælagöngu kynblendinga í
gær og handtók sex, en kynblend-
ingarnir kröfðust endurbóta á
stöðu sinni innan menntakerfisins.
464 skólum kynblendinga í Höfða-
borg var lokað vegna óeirða í
byrjun september en voru opnaðir
í morgun. Ástæðan fyrir því að
Kynblendingar sóttu ekki skóla í
morgun er óánægja þeirra með
aðstöðu sína í skólakerfinu.
írakar farnir að
skipa út olíu
í Saudi-Arabíu
Hagdad, 1. október. AP.
ÍRAKAR sögðust í gær hafa hrundið hörð-
um árásum Irana á norðausturlandamær-
um ríkjanna. Þá hefðu herþotur þeirra
Swareddahab
kveðst traust-
ur í sessi
Kairó, 30. september. AP.
ABDUL-RAHMAN Swareddahab
hershöfðingi tjáði Hosni Mubarak,
forseta Egyptalands, að stjórn hans
hefði öll völd í landinu í framhaldi
af misheppnaðri tilraun til valdaráns.
Að sögn útvarpsins í Kairó átti
Mubarak viðtal við Swareddahab
frá Parísarborg eftir komu sína
þangað á heimleið frá Bandaríkj-
unum. Hafði útvarpið eftir Mubar-
ak, að Egyptar myndu ekki líða
íhlutun utanaðkomandi i innan-
ríkismál Súdan.
Aly Lufty, forsætisráðherra
Egyptalands, fordæmdi valda-
ránstilraunina í Súdan í dag. Hann
sagði uppreisnarmenn í suður-
hluta Súdan hafa þar verið að
verki. Þeir njóta stuðnings og
þjálfunar yfirvalda i Eþíópíu.
gert loftárásir á olíuhöfn Irana við
Kharg-eyju áttunda daginn í röð. Jafn-
framt tilkynntu írakar, að þeir hefðu
opnað nýja olíuleiðsiu ura Saudi-Arabíu til
Rauöahafs. Sigldi norskt risaolíuskip það-
an í gær með fyrsta olíufarminn eða 1,7
millj. tunnur. Átti þessi farmur að fara til
Belgíu.
Samkvæmt tilkynningu írönsku her-
stjórnarinnar var sókn írana stöðvuð
og hefði vígvðllurinn verið þakinn lík-
um fallinna frana „tveimur klukku-
stundum, éftir að hún hófst“, þá hefði
loftárásunum á Kharg-eyju verið hald-
ið áfram af meiri hörku en nokkru
sinni fyrr og hefðu eldar kviknað í einu
oliuskipi, sem var fyrir utan höfnina
þar.
Haft er eftir talsmönnum skipafé-
laga i London, að olíuhöfnin á Kharg-
eyju hefði orðið fyrir stórfelldum
skemmdum í loftárásum íraka aö und-
anförnu, en um 90% af öllum olíuút-
flutningi frana fer um þessa höfn.
franir hafa hótað því, að ef tekið
verði fyrir olíuútflutning þeirra, þá
muni þeir svara með því að loka
Hormuz-sundi og koma þannig í veg
fyrir olíuútflutning frá öðrum oliulönd-
um við Persaflóa.
Hussein Mussavi, forsætisráðherra
frans sagöi í ræðu á sunnudag, að nú
væru unnið að umfangsmiklum ráö-
stöfunum, sem hafa ættu í för með sér,
að í framtiðinni myndi olíuútflutningi
írana stafa miklu minni hætta af loft-
árásum frana en til þessa.
Christina Onassis, hamingjusöm og brosandi eftir að þau Thierry Rouss-
el voru pússuð saman í Parísarborg 17. marz I fyrra. Myndin var tekin
á tröppum ráðhúss þar í borg eftir hjónavígsluna. Nú er öldin önnur
hjá þeim hjónum og hefur Christina farið fram á skilnað.
Christina Onassis
fer fram á skilnað
CHRISTINA Onassis hefur sótt
um skilnað frá franska kaupsýslu-
manninum Thierry Roussel, að
sögn skyldmenna hennar. Roussel
var fjórði eiginmaður Christina.
Hermt er að skilnaðarumsókn-
in hafi verið lögð inn hjá viðkom-
andi aðilum í borginni St. Moritz
í Sviss, þar sem Christina er
búsett. Átti það sér stað í sept-
emberbyrjun. Munu hjónakornin
hafa orðið ásátt um að skilja
vegna sambúðarörðugleika.
Onassis, sem er 34 ára erfingi
auðæfa skipakóngsins Aristotle
Onassis, giftist Roussel, sem er
33 ára, í Frakklandi í fyrra. Eiga
þau saman dótturina Athena,
sem er átta mánaða gömul. Er
það fyrsta barn Christina.
Roussel er eigandi franskrar
fyrirtækjasamsteypu. Hann
kynntist Christina fyrir 13 árum.
Hjónaband þeirra var hans
fyrsta en hennar fjórða. Fyrsti
eiginmaður hennar var banda-
ríski fasteignasalinn Joseph
Bolker frá Kaliforníu. Þau gift-
ust 1971, en skildu eftir níu mán-
uði vegna þrýstings frá föður
hennar, Aristotle. f júlí 1975,
skömmu eftir andlát Aristotle
gekk hún að eiga Grikkjann
Alexander Andreades, sem var
erfingi að miklum auðæfum.
Slitu þau búi eftir tvö ár. Christ-
ina gekk loks að eiga sovézkan
embættismann, Sergei Kauzov,
árið 1978, en hjónaband þeirra
entist aðeins í tvö ár.
Kólombía:
11 skæru-
liðar felldir
BogoU, Kólombíu, 1. október. AP. •
VINSTRI sinnaðir skæruliðar börð-
ust í dag við lögreglumenn í Bogota í
Kólombíu og beittu þeir jafnt hand-
sprengjum sem hríðskotabyssum í
viðureigninni. Að sögn lögreglunnar
féllu 11 skæruliðar og var 16 ára
gömul stúlka í þeirra hópi.
Átökin hófust eftir að um 30
skæruliðar rændu mjólkurbíl,
augljóslega í þeim tilgangi að
dreifa mjólkinni meðal fátækl-
inga, en þeir urðu fljótt á vegi
flokks lögreglumanna, sem skutu
á þá. Féllu þá fimm skæruliðanna
en nokkrir þeirra komust inn í
strætisvagn, sem átti leið hjá. í
strætisvagninum var hins vegar
lögreglumaður, sem dró upp
byssu, beindi henni að skærulið-
unum og skipaði bílstjóranum að
aka á næstu lögreglustöð. Einn
skæruliðanna kastaði þá virkri
handsprengju og farþegar og bíl-
stjóri forðuðu sér þá út um glugga
jafnt sem dyr. Sprengjan sprakk
og fjórir skæruliðanna féllu í val-
inn. Tveir að auki voru felldir síð-
ar um daginn.
Reynt að
koma GATT-
fundi á
Genf, 30. september. AP.
FULLTRÚAR 90 ríkja hófu í dag
viðræður, sem vonast er til að leiði
til nýrra samninga um aukið fresli í
viðskiptum innan ramma GATT-
samkomulagsins um millirfkjavið-
skipti.
Fundurinn að þessu sinni er
haldinn að tillögu Bandaríkja-
manna. Kalla varð saman fund,
þegar Bandaríkjamenn tryggðu
stuðning 64 annarra GATT-ríkja
við tillögu sína, en áður hefur ekki
verið staðið að fundarboði með
þessum hætti frá því GATT-
samkomulagið var undirritað.
Bandaríkjamenn hafa beitt sér
fyrir því að teknar verði upp við-
ræður um leiðir til að stemma
stigu við auknum verndaraðgerð-
um ríkja til að vernda eigin fram-
leiðslu. Ríki, sem eru í helztri
andstöðu við Bandaríkjamenn eru
Indland, Brazilía, Argentína,
Egyptaland og Júgóslavía. Ríki
þessi vilja að efnd verði heit, sem
gefin voru á ráðherrafundi GATT
1982. Bandaríkjamenn vilja að
viðskipti innan GATT nái eki
aðeins til vöruskipta, heldur einnig
til bankaviðskipta, tryggingastarf-
semi, ferðaþjónustu og ýmiss kon-
ar annarrar þjónustu, en því eru
m.a. framangreind ríki andvíg.
Enda þótt búizt væri við því að
dagurinn í dag fari fyrst og fremst
í deilur um dagskrá, en ráð er fyrir
gert að fundinum ljúki á miðviku-
dag.
Stórkostlegt
hausttilboð
Aöeins 10% útborgun af öllum heimilistækjum.
VÖRUMARKAÐURINN, ÁRMÚLA 1A, SÍMI 686117