Morgunblaðið - 02.10.1985, Síða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER1985
Tveir kynn-
ingarfundir
um arkitektúr
Frumvarpsdrög að fiskveiðistefnu:
Stjórn Landssambands málfreyja á Islandi.
Kynningarfundur land-
samtaka Málfreyja
FYRSTI kynningarfundur Lands-
samtaka málfreyja á íslandi veröur
á Hótel Esju annað kvöld, fimmtu-
dagskvöld, kl. 20.30.
Landssamtök málfreyja á ís-
Iandi voru stofnuð 1. ágúst 1985. f
samtökunum eru 17 málfreyju-
deildir víðsvegar um landið með
samtals á fimmta hundrað félaga.
Samtök málfreyja vinna að því
að þjálfa einstaklinga til tjáskipta,
félagslegra samskipta og forystu.
Samtökin leggja áherslu á verndun
móðiirmáloin*!
sköpum og ræðuflutningi.
Alþjóðasamtök málfreyja hafa
hlotið góðan hljómgrunn hér á
landi og þar sem hámarkstala í
hverri deild takmarkast við þrjá-
tíu félaga er þörf á að stofna fleiri
deildir.
Kynningarfundir verða haldnir
á ýmsum stöðum á landinu á næstu
mánuðum.
Formaður útbreiðslunefndar
landssamtakanna er Kristín
Sveinbjörnsdóttir, Reykjavík, sími
KONUR í arkitektastétt halda tvo
kynningarfundi nú í vikunni, sam-
hliða þeim sýningum sem arkitektar
standa að á Listahátíð kvenna.
Fyrri kynningarfundurinn verð-
ur í Ásmundarsal við h'reyjugötu,
miðvikudagskvöld 2. október
kl.20.30, þar sem Guðrún Jóns-
dóttir, arkitekt, heldur fyrirlestur
sem hún nefnir: Kostir og gallar
gömlu hverfanna í Reykjavík. í
Asmundarsal eru ennfremur sýnd
verk þrettán íslenskra kvenarki-
tekta, auk litskyggnusýningar um
finnskar konur í arkitektastétt.
Vakin er athygli á að sýningum
þessum lýkur nú um helgina, síð-
asti sýningardagur er sunnudag-
urinn 6. október.
Síðari kynningarfundurinn
verður í Kjallaraleikhúsinu, Vest-
urgötu 3, nýkeyptu húsi kvenna,
fimmtudagskvöldið 3. október kl.
20.30. Þar kynna konur úr arki-
tektastétt sýningu, sem nú er hald-
in á Vesturgötu 3, sem fjallar
bæði um sögu húsanna svo og
hugmyndir fimm arkitekta um
framtíðarnotkun þeirra.
Konur úr öllum stéttum og
flokkum eru eindregið hvattar til
að mæta á þennan fund og taka
þátt í og hafa áhrif á mótun þeirr-
ar starfsemi, sem húsunum er
ætlað að hýsa, en tillögur arkitekt-
anna eru einmitt settar fram til
þess að hrinda af stað umræðu um
þessi mál.
Nemendur og kennarar á námskeiði fyrir áhugaleikfélög, sem haldið var
hjá Leikfélagi Akureyrar.
Leikfélag Akureyrar:
Námskeið fyrir áhuga-
leikfélög á Norðurlandi
HELGINA 19. og 20. september voru
haldin 5 mismunandi námskeið í
ýmsum greinum leiklistar hjá Leik-
félagi Akureyrar. Námskeiðin voru
ætluö fólki frá áhugaleikfélögum á
Norðurlandi og voru haldin að beiðni
Leikfélagasambands Norðurlands.
Það var starfsglaður fimmtíu manna
hópur sem vann í þessum opna skóla
myrkranna á miili í tvo daga.
Ingvar Björnsson, ljósameistari
LA, kenndi lýsingu, Hilda Torfa-
dóttir, kennari og utvarpsmaður,
leiðbeindi um raddþjálfun, Sigríð-
ur Svana Pétursdóttir, förðunar-
meistari LA, kenndi förðun, Þrá-
inn Karlsson, leikari, kenndi leik-
munagerð og Erla B. Skúladóttir,
leikari, kenndi látbragsleik og
spuna. Að námskeiðinu loknu
sýndu hópamir dæmi um árangur
erfiðis sins á leiksviði samkomu-
hússins og var gerður góður rómur
að. Margir höfðu lagt á sig langa
ferð, nemendur komu allt frá
Hvammstanga til Þórshafnar. f
leikfélög á Norðurlandi árlegan
haustfund, þar sem þau ræddu
vetrarstarfið og báru saman bæk-
ur sínar. Mikið og gott samstarf
er með leikfélögum á Norðurlandi
og er þetta fjórða árið í röð, sem
þau koma saman á haustnám-
skeiðum.
(FrétUtilkynning.)
Skipanafn
ruglaðist
f VIÐTALI við Helga H. Zoega í
sunnudagsblaði misminnti hann
nafn á skipi því sem Runólfur
Sigurðsson fórst með. Það var
Sigurfari.
Eins mun það hafa verið Súðin
gamla sem var við Grænland
umrætt sumar, en ekki Esja. Þá
varð prentvilla í einu skipsnafni;
v " v \. n
Aðför að tilveru og af-
komu smábátaeigenda
— segir Artúr Bogason formaður bráðabirgðastjórnar Félags smábátaeigenda
TVEIR kostir eru taldir vænlegir við
stjórnun veiða smábáta í drögum
sjávarútvegsráðuneytisins að fisk-
veiðistefnu til næstu þriggja ára.
Annars vegar ákveðin banntímabil
eða 215 hámarksdagar á ári, sem
tilkynna verður um fyrirfram hvenær
verði teknir. Þá er gert ráð fyrir því
að netaveiðar smábáta verði tak-
markaðar í ákveðinn dagafjölda og
háðar botnfiskveiðileyfum með sókn-
armarki. Tillögur bráðabirgðastjórn-
ar Félags smábátaeigenda eru í
tveimur liðum og hafa ekki verið
teknar inn í frumvarpsdrög ráðuneyt-
isins.
Eigendur smábátanna vilja að
veiðar þeirra verði takmarkaðar
með þeim hætti, að línu- og hand-
færaveiðar allra báta verði bann-
aðar 7 daga um páska, 7 daga um
verzlunarmannahelgi og frá 15.
desember til ársloka. Að netaveið-
ar verði háðar leyfi með sóknar-
marki á sama hátt og sóknarbáta
milli 10 og 20 brúttólesta að stærð.
Það er að heimilt verði að stunda
þessar veiðar í ákveðinn daga-
fjölda á árinu með meðalþorsk-
aflahámarki, sem yrði 100 lestir.
Artúr Bogason, formaður bráða-
birgðastjómar Félags smábáta,
sagði í samtali við Morgunblaðið,
að frumvarpsdrögin væru tilræði
við afkomu og tilveru smábátaeig-
enda. Með þeim töfum, sem fyrir-
sjáanlegar væru vegna veðurs,
yrðu eigendum smábátanna bann-
aðar veiðar í á þriðja hundrað
Morgunblaöiö/E.G.
Margrét Erlingsdóttir og Steinþóra Þorsteinsdóttir í „Sólhúsinu".
Ný sólbaðsstofa í Keflavík
NÝ sólbaðsstofa hefur tekið til starfa
að Hafnargötu 6 í Keflavík (gamla
Ungmennafélagshúsinu). Eigendur
„Sólhússins“, en það er nafn sól-
baðsstofunnar, eru Margrét Erlings-
dóttir, Oddur Ólafsson, Steinþóra
Þorsteinsdóttir og Pétur Jónsson.
í sólbaðsstofunni eru 3 sólbekk-
ir, en þeir eru búnir perum sem
eru nýjar hér á landi og nefnast
„golden sun“. Opnunartími er frá
kl. 8 að morgni frá mánudegi til
föstudags og til kl. 22. Á laugar-
dögum er opið frá kl. 9—19.
Fyrir þá er þurfa að taka börnin
með sér er bent á sérstaka leikað-
stöðu fyrir bðrn.
daga á ári. Með því að ákveða
ákveðið „dagatal" fyrir þessar
veiðar, væri ennfremur veruleg
hætta á því, að menn sæktu svo
hart hina leyfilegu daga, að þeir
stofnuðu sér í voða. Almættið réði
því að mestu hvenær hægt væri
að sækja sjó á smábátum og tak-
markaði þannig mögulegan afla.
Að hans mati þyrfti ekki frekari
takmarkanir. Hann sagði enn-
fremur, að þorskafli smábátanna
af heildinni væri slíkur „tittlinga-
skítur“ að takmarkanir á veiðum
þeirra væru helzt sambærilegar
við þungatakmarkanir á vegum
með þeim hætti að minnstu bílun-
um væri bönnuð umferð um þá,
en ekki þeim stóru. Gæftir og afli
á þessu ári hefði verið með ein-
dæmum góð og næðu smábátarnir
líka um 22.000 lestum af þorski.
Það væri nú allt og sumt og það í
bezta ári í langan tíma.
Bæjarstjóm ísafjarðar:
Ákvörðun um útboð
og val á verktökum
ekki tekin í bæjarstjórn
Á FUNDI bæjarstjórnar ísafjarðar
19. september sl. var eftirfarandi
yfirlýsing samþykkt.
„Með hliðsjón af þeim blaða-
skrifum, sem staðið hafa yfir
vegna byggingar söluíbúða fyrir
aldraða við Hlíf og byggingar
stjórnsýsluhúss á Isafirði vill
bæjarstjórn taka fram, að útboð
og val á verktökum að byggingun-
um hefur ekki komið til ákvörðun-
ar í bæjarstjórn. Yfirlýsingar ein-
stakra manna vegna þessara mála
eru því bæjarstjórn óviðkomandi."
I kjölfar yfirlýsingarinnar ósk-
uðu bæjarfulltrúarnir Guðmundur
H. Ingólfsson og Snorri Her-
mannsson eftirfarandi bókunar á
fundinum.
„Vegna samþykktar bæjar-
stjórnar um yfirlýsingu varðandi
Listahátíð kvenna:
útboð Byggingarsamvinnufélags-
ins Hlífar á framkvæmdum Hlífar
2, viljum við taka fram, að við
greiddum ekki atkvæði við af-
greiðsiu málsins í bæjarstjórn og
erum því óbundnir af yfirlýsingu
meirihluta bæjarstjórnar.“
Krcualilkvnnine
Bíóhöllin:
Ný bandarísk
grínmynd
frumsýnd
BÍÓHÖLLIN frumsýnir í dag banda-
rísku stórmyndina „Á puttanum". í
aöalhlutverkum eru þau John
Cusack, Daphne Zuniga og Anthony
Edwards. Framleiðandi myndarinn-
ar er Henry Winkler og leikstjóri
Rob Reiner.
Kvikmyndin sem frumsýnd var
í mars sl. í Bandaríkjunum fjallar
um ungan mann sem á sér þann
draum að komast til Kaliforníu til
að slá sér upp og hitta þessa einu
sönnu. Það ferðalag verður ævin-
týralegt í alla staði.
„Á puttanum" hefur fengið góða
umsögn gagnrýnenda í bandarísk-
um blöðum.
Skemmtikvöld í Templarahöll
Vetrarstarfsemi SGT, skemmtifé-
lags góðtemplara, hefst 4. október
nk. og verður eins og undanfarin ár
á fostudagskvöidum í Templarahöll-
inni.
Félagsvist hefst kl. 21 og að
henni lokinni kl. 22 er dansað við
undirleik hljómsveitarinnar Tígla,
til kl. 01.30. Með skemmtikvöldum
SGT er leitast við að halda uppi
skemmtunumn fyrir fólk sem vill
skemmta sér án áfengis. Eins og
áður segir er bæði spilað og dansað
og getur fólk, sem ekki hefur áhuga
á spilum komið í dansinn.
(Frétutilkrnning.)