Morgunblaðið - 02.10.1985, Qupperneq 45
Sú besta í
fjögur ár
Hljómplötur
Sigurður Sverrisson
Kim Carnes
Barking at Airplanes
EMI America/Fálkinn
Eftir að hafa verið í lægð allt
frá því Mistaken Identity kom
út, en sú skífa innihélt m.a. hið
feikivinsæla og um leið frábæra
lag Bette Davies Eyes, virðist nú
sem loks sé að rofa til hjá Kim
Carnes á ný. Tvær fremur mis-
heppnaðar plötur, Voyeur og
Cafe Racers, eru að baki á árun-
um eftir að Mistaken Identity
kom út en nú virðist sem bein
brautin sé framundan á ný.
Það sem fyrst og fremst skilur
á milli þessarar plötu og tveggja
þeirra síðustu eru einfaldlega
betri lagasmíðar. Sannast sagna
átti ég í erfiðleikum með að
finna nokkurn veikan punkt á
allri plötunni. Lögin eru aldrei
neitt flókin, en þannig saman
sett að sum þeirra krefjast nokk-
urrar hlustunar ef á að njóta
þeirra til fullnustu. Inn á milli
eru svo lög sem hitta beint í
mark við fyrstu hlustun. Hljóð-
færaskipan hefur nokkuð breyst
hjá Carnes á síðari árum og sú
breyting nær hámarki á þessari
plötu. Hér eru hljóðgervlar og
trommuheili mjög ráðandi í
tónlistinni en hvoru tveggja þó
beitt af smekkvísl. Þó örlar
stundum á ofnotkun hljóðgervla.
Sem fyrr er Carnes með sæg
góðra aðstoðarmanna með sér á
plötunni. Flestir koma aðeins við
sögu í einu eða tveimur lögum en
meðal þeirra má nefna James
Ingram, Martha Davies (söng-
konu The Motels), Gary Mallab-
er (tromara Steve Miller Band),
Ry Cooder auk manna, sem
meira mæðir á eins og Waddy
Watchel, Leland Sklar og Paui-
inho'Da Costa.
Carnes sér sjálf um upptöku-
stjórn á plötunni við annan
mann og nýtur leiðsagnar hins
frábær Val Garay úr fjarska.
Ekki er hægt að segja annað en
stjórnin farist henni vel og sé í
fullu samræmi við þessa bestu
plötu Kim Carnes í 4 ár.
MADURINN
Likannnn i mait og myndum
Mannslíkaminn
í máli og myndum
ÚT ER komin hjá Erni og Örlygi bókin
Maöurinn — Líkaminn í máli og
myndum með læknisfræðilegu orða-
safni, í þýöingu Stefáns B. Sigurðsson-
ar lífeðlisfræðings.
Bókin er í tveimur hlutum. Fyrri
hlutinn er 110 blaðsíður, að stærð
þar sem fjallað er um starfsemi
helstu líffæra og líffærakerfa og er
blandað saman texta, teikningum,
ljósmyndum og línuritum. Síðari
hluti bókarinnar er 80 blaðsíður.
Þar er að finna læknisfræðilegt
orðasafn með um 2.000 uppsláttar-
orð í stafrófsröð og um 200 myndum.
Auk framangreindrar útgáfu
sem er 192 blaðsíður og bundin í
harðband kemur samtímis út í kilju-
formi fyrri hluti bókarinnar án
læknisfræðilega orðasafnsins og er
sú útgáfa ætluð til nota í kennslu í
framhaldsskólum. Bókin er filmu-
sett hjá Prentstofu G. Benedikts-
sonar en prentun og bókband var
unnið á ítaliu. Káputeikningu gerði
Sigurþór Jakobsson.
Það fylgir því
sérstök fjölskyldustemmning
að taka slátur
Asamt bjartsýni og æðruleysi hefur slátur verið
helsti lífgjafi íslensku þjóðarinnar í baráttu
hennar á liðnum öldum við máttarvöld þessa
heims og annars. Slátur er sérstaklega næringar- og
fjörefnarík fæða og hollustubylting síðustu ára hefur
lyft því til vegs og virðingar á nýjan leik.
Sláturfélag Suðurlands hefur nú opnað slátur-
sölu — þá einu sinnar tegundar í Reykjavík. Þar er
til sölu nýtt, ófryst slátur og allt til sláturgerðar svo
sem rófur, kartöflur, rúgmjöl, haframjöl, rúsínur,
saumagam, nálar og frystipokar. Einnig niðursagað
kjöt af nýslátruðu í heilum og hálfum skrokkum. Svo
er það trompið okkar; hreinsaðar og saumaðar
vambir (meðan birgðir endast).
Síðast en ekki síst er slátur einstaklega ódýr mat-
vara; eitt slátur (sviðinn og sagaður haus, lifur,
Slátursala ©
Iðufelli 14, Breiðholti. Allt til sláturgerðar á einum stað.
hjarta, tvö nýru, hálsæðar, þind, vömb, keppur, 1 kg.
mör og 750 gr. blóð), sem ásamt með 1.5 kg. af mjöli
gefur af sér 7—8 sláturkeppi, kostar aðeins 159.50
kr. A ódýrari fæðu er tæpast kostur. í kaupbæti færð
þú svo skilmerkilegan leiðbeiningarpésa um slátur-
gerð.
Slátrin eru seld fimm saman í pakka, en vambir og
innmatur í lausri vigt eftir óskum hvers og eins.
-í
Xipj UOÐ