Morgunblaðið - 02.10.1985, Qupperneq 51

Morgunblaðið - 02.10.1985, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR 2. OKTÓBER1985 51 m n» ^ VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 10100 KL. 10—11.30 FRA MÁNUDEGI . TIL FÖSTUDAGS Ljóðform þulunnar náskylt forn- um dans- og vikivakakvæðum Jóhann lijaltason skrifar: Velvakandi. í dálkum þínum hefur nú í sumar alloft verið rætt og spurt um gamlar þulur, sem enn kynnu að leynast í minni fólks og er ekki slíkt að lasta, en þó gæti maður stundum freistast til þeirr- ar ályktunar við lesturinn, að svarendur hefðu numið fræði sín hjá samtíðarmönnum Beru gömlu í Sumarhúsum og Urðarseli, er var „einsog nokkurskonar kerti sem drottinn hafði gleymt að slökkva“. Einkum var spurt um og leitað eftir upprifjun á tveimur þulum þ.e. „Sat ég undir fiskihlaða föður míns“ o.s.frv. og „Heyrði ég í hamrinum, hátt var þar látið" o.s.frv. Þá kom sú vitneskja eða öllu heldur tilgáta fram, að höfundur fyrri þulunnar væri Jón skóla- meistari Þorkelsson (Thorkilli), sem mun vera á misskilningi eða misminni byggt, sbr. ævisögu Jóns eftir Klemens Jónsson og dr. Jón Þorkelsson, útg. 1910 I.b. bls. 84—85, en þar segir svo: „Stærsta og tilkomumesta latínskt kvæði Jóns skólameistara er Eclogarius Islandicus, sem kalla mætti ís- lendingadrápu, alls 1828 vers í hexametri. — Kvæði þetta er ágrip af sögu landsins, einkanlega þó um helztu menn þess, frá elztu tímum og fram til hér um bil 1720, og er víða stórfallega ort. Að ein- kunnarorðum fyrir kvæðinu velur hann upphaf gamallar þulu: „Sat ég undir fiskihlaða föður míns.“ Það minnir á búnaðarhættina I Njarðvíkum (Fæðingar- og upp- eldisstað Jóns Thorkilli — J.Hj.). Það er helzt að ráða, að Jón skól- ameistari hafi hugsað sér, að kvæði þetta mætti hafa sem kennslubók í skólum í íslands- sögu, líkt og menn lengi höfðu víða um lönd ýms þvílík kvæði, svo sem Alexanderssögu, sem ort er um Alexander mikla, en drepur þó á sitthvað annað." Tilvitnun í Ævisögu Jóns skóla- meistara Thorkilli lýkur. Áður en langt um leið barst dálkum Vel- vakanda sú vitneskja frá bókfróð- um manni, Baldri Steingrímssyni, að flestar ef ekki allar umræddar og umspurðar þulur væru prent- aðar í ritinu „Islenskar gátur, skemmtanir, vikivakar og þulur", sem Hið íslenska bókmenntafélag gaf út á árunum 1887—1898 og síðar í ljósprentaðri útgáfu árið 1964. Önnur hvor útgáfa þessa rits mun væntanlega vera til í öllum opinberum bókasöfnum og enn- fremur í eigu flestra félagsmanna Hins íslenska bókmenntafélags. Hið frjálslega og einfalda ljóð- form þulunnar er oft náskylt forn- um dans- og vikivakakvæðum, sem trúarstefna 17. og 18. aldar útrýmdi hér á landi, að mestu eða öllu leyti, miðað við fyrri tíma. Þó að margar gömlu þulurnar séu efnisrýrar og stundum nánast Velvakanda hefur borist bréf frá bandarískum leikfangasafn- ara. Hann vill gjarnan komast í kynni við einhverja verslun hér á landi sem selur gömul leikföng eða íslending, sem einnig safnar leik- föngum, í von um að honum takist barnagælur, mættu nútímaskáld og hagyrðingar ágæta vel bregða formi þeirra fyrir sig við og við, eigi síður en hinum enskættaða limruhætti. Sumar eldgamlar þul- ur eru tilfinningaríkar og geta veitt innsýn í hugarheim einstakl- inga, atvinnulíf og aldarhátt. Nefna má eftirfarandi smalaþulu í því sambandi. Vappaðu með mér vala, verð ég þig að fala, komdu ekki að mér kala, keyrðu féð í hala. Nú er dögg til dala, fjármannahríðin. Þú átt að elska smala sem þitt eigið blóð. Fjármannahríðin er full af bölmóð. að hafa upp á eldri tegundum af leikfangabílum af gerðinni „Tekno". Heimilisfang safnarans er: Steve Juette 950 Washington Avenue Defiance, Ohio 43512 USA Reyndar leitar bandaríski leikfangasafnarínn að leikfangabflum, en eflaust myndu þessar fínu dúkkur freista hans einnig. Leikfangasafnarar og leikfangabúðir Strætisvagnarnir og hvernig þeir eiga að vera á litinn hefur skapað umræður mann á meðal, eiga þeir að vera rauðir, gulir eða grænir? Þessir hringdu . . . Góöir sölumenn hjá Johnson & Kaaber Erla Bjarnadóttir hringdi og vildi gjarnan hrósa sölumönnum hjá fyrirtækinu O. Johnson & Kaaber. Þeir væru bæði elsku- legir og kurteisir og sérlega ánægjulegt að eiga við þá við- skipti. Kaupum rauða strætisvagna frá Bretlandi KG hringdi og hafði eftirfarandi að segja: Það er varðandi akstur strætis- vagnanna niður Laugaveginn, frá Hlemmi og niður að Lækjartorgi. Nú standa yfir framkvæmdir neðst á Laugaveginum og er unnið að því að gera hann að göngugötu. Geri ég það hér með að tillögu minni að framvegis verði vagnarn- ir látnir ganga niður Hverfisgötu. Það má að minnsta kosti gera til- raun til áramóta með slíkt fyrir- komulag. Hugmyndin er i fáum orðum sú, að beina allri umferð niður Hverf- isgötu og vestur Hafnarstræti og umferðin gæti þá farið austur Skú- lagötu í staðinn. Þetta ætti sér- staklega að vera hægt núna þegar búið er að byggja þessa fínu braut rétt norðan við Sksúlagötuna frá Sætúninu. Égheld að það væri mjög heppi- legt að koma þessu við núna. Þá hefur einnig að undanförnu verið að ræða um nýja liti á stræt- isvagnana. Persónulega vildi ég hafa þá rauða á litinn, eins og er í Bretlandi, og ég er nú satt að segja hissa á því að ekki skuli hafa verið fjárfest í breskum strætisvögnum, því þeir eru með þeim bestu í heimi. Bretar eru frægir út um allt fyrir framleiðslu sína á strætisvögnum, og þá er ég ekki bara að meina þá tvílyftu, heldur einungis venjulega vagna. Það er meira að segja svo að Svíar kaupa vagna af þeim, enda eru Bretar í sérflokki með verð miðað við gæði. Geri ég það því að tillögu minni að keyptir verði rauðir vagnar frá Bretum til að aka hér um götur borgarinnar. Ellen Beatrix Ný sending. Haust- og vetrarlitirnir komnir. M.a. bleikirog violet. I vetrarskoðun MAZDA eru eftir- farandi atriði framkvæmd: O 0 0 O 0 0 O 0 0 0 0 Skipt um kerti og platínur. Kveikja tímastillt. Blöndungur stilltur. Ventlar stilltir Vél stillt með nákvæmum stillitækjum. Vél gufuþvegin. Skipt um bensínsíu. Rafgeymir, geymissambönd og hleðsla athuguð. Kannaður bensín, vatns- eða olíuleki. Loftsía athuguð og hreinsuð, endurnýjuð ef með barf. Viftureim athuguð og stillt. Slag í kúplingu og bremsupetala athugað. Frostþol mælt. Rúðusprautur stilltar og frostvari settur á. Þurrkublöð athuguð. Silikon sett á þéttikanta hurða og far- angursgeymslu. Ljós stillt. Hurðalamir stilltar. Þrýstingur í hjólbörðum athugaður. 0 0 0 0 0 Verð með söluskatti: KÍHFlTfffli Innifalið í verði; Platínur, kerti, ventlalokspakkning, bensínsía, frostvari á rúðu- sprautu og þar að auki: brúsi af lásavökva og ný rúðu- skafa í hanskahólfið! Pantið í tíma í súnum 81225 eða 81299 BILABORG HF Smiðshöfða 23 sími 812 99

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.