Morgunblaðið - 02.10.1985, Qupperneq 54

Morgunblaðið - 02.10.1985, Qupperneq 54
54 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER1985 ^ i 75 þúsund manns til starfa í Seoul FORSETI Ólympíunetndarinnar í Seoul, Roh Tae Woo, sagöi í gærkvöldi aö þaö þyrfti 75.000 manns til aö vinna við fram- kvæmd Ólympíuleikanna þar í landi 1988. Flestir þeirra veröa að vinna sem sjálfboöaliöar. „Ég vil innilega leyfa mér aö vona að fólk boöi sig til sjálfboðastarfa á leikunum. Þetta veröur mikill heiöur fyrir fólk- iö sjálft og þaö vinnur landinu mik- iö gagn. Eg er ekki í nokkrum vafa um aö fólk mætir til sjálfboöa- starfa í miklum mæli, sagði Roh Tae Woo í sjónvarpsviötali í gær. 55 voru meö 12 rétta Síöastliðinn laugardag var 6. leikvika Isl. getrauna. Seldar voru 465.564 raöir og vinningsupphæðin var kr. 872.932.00. Röðin kom upp meö níu heimasigrum og þremur jafnteflum. Raöir meö tólf réttum leikjum uröu því 55 og fær hver um sig kr. 11.110.00 í vinning. Fram komu 887 raöir meö ellefu réttum leikjum og er vinningur þar kr. 295.00. í september námu vinningar rúmum þremur milljónum króna sem allir greiöast út. Vinningar þessir skiptast á 1500 einstaklinga. Af þessum tölum sést aö isl. getraunir skipa sæti meö stærstu happadrættm lands- ins. Getrauna- spá MBL. C 3 ! Sunday Mirror »* 1 3 co Sunday Expraaa News of the World * Œ K ! » SAMTALS 1 X 2 Arsenal — Aston Villa 2 1 1 X 1 X 3 2 1 Birmingham — Sheff. Wed. X 1 2 1 1 2 3 1 2 Luton — Manchester Utd. 2 X X 2 2 X 0 3 3 Newcastle — West Ham 2 1 1 1 X 1 4 1 1 Nottingham Forest — Ipswich 1 1 X 1 X 1 4 2 0 QPR — Liverpool 2 X 2 X X X 0 4 2 Southampton — Watford X X 1 2 1 1 3 2 1 WBA — Tottenham 2 X X 2 2 2 0 2 4 Barnsley — Portsmouth X X 1 X X 1 3 3 0 Fulham — Shrewsbury 1 1 1 2 1 1 5 0 1 Huddersfield — Leeds X 1 X 1 X X 2 4 0 Hull — Stoke 1 1 2 1 1 1 5 0 1 Carnegie námskeiðið © Álit nokkurra þátttakenda: Eftir aö ég fór á Dale Carnegie-námskeiðiö fyrir fjórum árum, hef ég verið óstöövandi í vinnu og námi. Nú get ég stanslaust kallað fram kraft til að koma viöfangsefn- um mínum í verk. Nám mitt í Háskóla íslands gengur eins og í sögu, því að ég hef lært aö meta gildi raunveru- legs eldmóðs. Ekkert verkefni, hvorki í Háskólanum né á heimilinu, er of stórt lengur ef maöur man eftir hinum innri krafti, eldmóönum. LOFTUR REIMAR GISSURARSON Ég fékk kjark til aö framkvæma þaö sem mig dreymdi um og þetta heföi ég aldrei þorað hefði krafturinn og bjartsýnin ekki komið frá námskeiðinu. MAGNÚS ÁSGEIRSSON Námskeióiö virkaði á mig sem vítamínssprauta. Ég lærði að nýta minn innri kraft og fór virkilega að njóta lífsins. Ég losnaöi við kvíöa og áhyggjur, fékk aukiö sjálfstraust, kjark og kraft til að framkvæma ótrúlegustu hluti. i dag er ég önnum kafin en samt hef ég aldrei haft betri tíma til að gera þaö sem mig langar til. BJÖRG BJARNADÓTTIR Með því aö taka þátt í Dale Carnegie-námskeiöi hef ég lært aö þekkja sjálfa mig betur og þá orku sem ég bý yfir. Ég veit að það er fyrst og fremst undir sjálfri mér komiö hvernig ég nýti hana og líf mitt um leiö. Vissan um þetta hefur veitt mér aukið öryggi, víösýni og mikla gleöi og undirstrikar raunar hin eilífu sannindi að hver er sinnar gæfu smiður. GUÐR(jN jóHANNESDÓTTIR Kynningarfundur 2. okt. kl. 20.30 í Síðumúla 35, uppi. Allir velkomnir. Innritun og upplýsingar í síma: 82411 Einkaleyfi á Islandi STJÓRNUNARSKÓLINN Konráö Adolphsson E Æ ^ y jP fK »| íþróttalæknar stof na félag — Stefán Carlsson, læknir, kjörinn formaður LAUGARDAGINN 21. september var haldinn framhaldastofn- fundur íþróttalækningafélags íslands aö Hótel Loftleiðum. Undirbúningur aö stofnun fé- lagsins hefur staöið síöan I fyrravetur og var fyrri fundur haldinn í apríl á þessu ári. Til stofnunar félagsins var boðið læknum, sjúkraþjálfurum og öörum sem starfa viö skyldar greinar. Markmið félagsins er að auka innlent samstarf um íþróttalækn- isfræöileg efni, bæði hvaö varöar almenningsíþróttir og keppnis- íþróttir. iþróttalæknisfræöi fjallar um: a) Fyrirbyggingu meiðsla. b) Meöferö á íþróttameiðslum. c) Leiöbeiningu um þjálfun. d) Endurhæfingu eftir íþrótta- meiösl. Félagiö ætlar aö láta tll sín taka viö kennslu, námskeiöahald og rannsóknir innan íþrótta- læknisfræði. Félagiö mun ganga í alþjóöa íþróttalæknisfræðifélagið (FIMS, Federation Internationale de Medicine Sportive) sem hefur 80 aðildarþjóöir. Einnig mun félagiö leita eftir samstarfi viö sambæri- leg félög á hinum Noröurlöndun- um. Til fundarins nú var boöiö tveimur erlendum fyrirlesurum, þeim Einari Eiríkssyni, sem er þekktur sænskur læknir frá Stokkhólmi og er hann núverandi forseti FIMS og Ingu Arvidsson, sjúkraþjálfara, frá Karolinska sjúkrahúsinu í Stokkhólmi. Til þessa undirbúningsstarfs hefur félagiö notiö styrkja frá Sjóvá, Pharmaco, Austurbakka hf. o.fl. I lok fundarins var kosin fimm manna stjórn, sem í eiga sæti: Stefán Carlsson læknir, sem er formaöur, Grímur Sæmundsen, læknir, Andrés F. Kristjánsson, sjúkraþjálfari, Kristín Guð- mundsdóttir, sjúkraþjálfari, Örn Ólafsson, stoötækjasmiöur, og Guömundur R. Magnússon, stoðtækjasmiöur. (ílr rrétUtilkynninmi) Morgunblaðiö/Biami • Svíarnir sem héldu fyrirlestra é stofnfundinum, Inga Arvidsson og Einar Eiríksson. • Fré stofnfundinum é Hótel Loftleiöum. Grímur Sæmundsen I ræöustól.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.