Morgunblaðið - 04.10.1985, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER1985
10%gengislækk-
un í kjölfar
nýs fiskverðs?
— Sjómenn krefjast launahækkana, útgerð
og fiskvinnsla rekin með tapi
LITLAR líkur eru nú taldar á því, að það takist að ákveða fiskverð án
gengislækkunar að sögn hagsmunaaðila í sjávarútvegi. Sjómenn krefjast
sambærilegra hækkana og landverkafólk hefur fengið, eða um 15%. Út-
gerðin er talin þurfa um 12% hækkun fiskverðs og fulltrúar fiskvinnslunnar
segja hana rekna með tapi. Talið er að með 15% fiskverðshækkun þurfi að
koma til 8 til 10%gengislækkun til að jafna útgjaldaaukningu fiskvinnslunn-
ar, komi ekkert annað til.
Samkvæmt síðustu útreikning-
um Þjóhagsstofnunar er útgerðin
talin rekin með um 8,5% tapi, en
fiskvinnslan í heildina með 0,8%
hagnaði, frysting með 0,3% hagn-
aði en söltun með 2,2% hagnaði.
Útgerðarmenn gera ekki athuga-
semdir við útreikninga Þjóðhags-
stofnunar, en fulltrúar fiskvinnsl-
unnar telja hana rekna með um
2% tapi. Til að jafna stöðu út-
gerðarinnar er talið að fiskverð
þurfi að hækka um 12%, þar sem
hluti aflaverðmæta rennur til sjó-
manna.
Fulltrúar fiskvinnslunnar telja
vegið meðaltal kostnaðarhækkana
frá áramótum vera 16 til 17%, en
að tekjur frystingar hafi hækkað
um 6% á sama tímabili og tekjur
í söltun heldur meira. Afkoman
hafi því versnað um 10% frá ára-
mótum.
Óskar Vigfússon, formaður Sjó-
mannasambands Islands, sagði í
samtali við Morgunblaðið, að sjó-
menn ættu rétt á launahækkunum
eins og verkafólk i landi og frá
þeim kröfum myndu þeir ekki
hvika.
Óeðlileg vörurýrn-
un til rannsóknar
Morgunblaöið/ól.K.M.
Ný rúóa var sett í Alþingishúsiö í gær og gluggapóstar málaðir.
RLR krefst
gæsluvarðhalds
Rannsóknarlögregla ríkisins
setti í gær fram kröfu í Sakadómi
Reykjavíkur um að 28 ára gamall
maður sem varpaði eldsprengju á
Alþingishúsið á miðvikudagskvöld-
ið, verði úrskurðaður í gæsluvarð-
hald til 13. nóvember næstkomandi
og honum gert að sæta geðrann-
sókn. Hann var handtekinn
skömmu eftir að hafa kastað
sprengjunni og hefur viðurkennt
verknaðinn.
Maðurinn hefur áður gert sig
sekan um alvarleg afbrot. Árið
1976 braust hann inn í íþrótta-
vöruverslunina Sportval, stal
byssum og skaut af handahófi á
götu úti. Eftir umsátur lögreglu
var maðurinn handtekinn. Hann
hlaut 30 mánaða fangelsi. Mað-
urinn hefur hlotið dóma fyrir
fleiri alvarleg afbrot.
í yfirheyrslum hjá RLR í
gærdag kvaðst maðurinn hafa
vitað að glugginn, sem hann
kastaði sprengjunni í, hefði verið
að herbergi stjórnarflokkanna
og hann hafi viljað mótmæla
stefnu þeirra. Hann kvaðst hafa
talið víst, að herbergið væri
mannlaust, en gert sér grein
fyrir að menn voru í Alþingis-
húsinu, en þeir hefðu haft nægan
tíma til að koma sér undan, þó
húsið brynni.
Söltunarstöðin Arnar-
ey fær ekki vinnsluleyfi
— var næsthæsta söltunarstöðin í fyrra með um 15.000 tunnur
FYRRUM starfsmaður Kaupfélags
Árnesinga á Laugarvatni er í gæzlu-
varðhaldi vegna rannsóknar Rann-
Risafuran
afhent
*
Islendingum
SENDIHERRA Bandaríkjanna á
fslandi, Nicholas Ruwe, afhendir
íslenzku þjóðinni þverskurð af
nokkur þúsund ára gamalli risa-
furu næstkomandi miðvikudag.
Furan er gjöf frá Bandaríkja-
mönnum og var heitið árið 1974
er fslendingar minntust ellefu
hundruð ára byggðar. Við þetta
tækifæri mun Ruwe sendiherra
lesa ávarp frá Ronald Reagan
forseta Bandaríkjanna.
RÍKISMAT sjávarafurða hefur synj-
að söltunarstöðinni Arnarey í eigu
Kaupfélags Berufjarðar og Búiands-
tinds á Djúpavogi leyfis til söltunar
á sfld. Starfsmenn Ríkismatsins telja
stjórnendur stöðvarinnar ekki hafa
uppfyllt þau skilyrði, sem sett hafa
verið um leyfi til söitunar. Á síðustu
vertíð var saltað í rúmlega 15.000
tunnur hjá Arnarey, sem var önnur
hæsta söltunarstöðin yfir landið.
Gunnlaugur Ingvarsson, fram-
kvæmdastjóri Búlandstinds, sagð-
ist í samtali við Morgunblaðið ekki
vilja tjá sig um málið. Það væri
unnið að lausn þess og vonaðist
hann til að hún næðist með farsæl-
um hætti.
Halldór Árnason, fiskmats-
stjóri, sagði í samtali við Morgun-
blaðið, að þess væri krafizt af hálfu
Ríkismatsins, að síldin væri geymd
inni og að ekki væri unnið við
pæklun og þess háttar vinnu úti
nema á rykbundnum plönum stein-
steyptum eða malbikuðum. Allir,
sem til þessa hefðu sótt um
vinnsluleyfi, hefðu uppfyllt þau
skilyrði nema Arnarey og leyfið
sóknarlögreglu ríkisins á umtals-
verðri rýrnun í verslun Kaupfélags
Árnesinga á Laugarvatni. Starfsmað-
urinn var úrskurðaður í tveggja vikna
gæzluvarðhald þann 19. september
síðastliðinn. í gær var gæzluvarðhald
yfir manninum framlengt til 23.
október næstkomandi vegna rann-
sóknar RLR.
Um síðastliðin áramót kom
umtalsverð rýrnun fram við taln-
ingu í útibúinu á Laugarvatni.
Starfsmaðurinn lét af störfum um
mitt ár eftir fimm ára starf á
Laugarvatni og við talningu í
sumar kom aftur fram umtalsverð
rýrnun. í ágúst leitaði stjórn
Kaupfélags Arnesinga til sýslu-
mannsins í Árnessýslu um opin-
bera rannsókn. Sýslumaðurinn
sendi beiðnina áfram til Rann-
sóknarlögreglu ríkisins og hefur
rannsókn staðið yfir síðan í sept-
ember.
fengi hún ekki fyrr en þessi skil-
yrði hefðu verið uppfyllt.
Þessar reglur hefðu verið settar
til að bæta meðferð síldarinnar og
tryggja að hún yrði betri markaðs-
vara en ella. Verkun hefði verið
breytt verulega á undanförnum
árum, til dæmis hefði saltmagn í
hverjum 100 kilóum verið lækkað
úr 24 kílóum í 6,5. Til að verja
síldina skemmdum skipti rétt hita-
stig mestu fyrir utan saltið, en það
væri 0 til 4 gráður, jafnvel vægt
frost. Auðvitað þyrfti helzt að
geyma síldina í kæli, en ekki væri
raunhæft að fara fram á það í
haust vegna þess að ekki væri til
nægilegt kælirými á landinu. Hins
vegar væri farið fram á það, að
síldin yrði geymd inni til þess að
menn gætu betur stýrt hitastigi
en utan húss. Einnig væri
geymsluhúsnæði fyrsta skrefið í
uppbyggingu kæligeymslu.
Halldór sagði, að í sumar hefðu
aðstæður hjá saltendum verið
kannaðar og þeim gert viðvart,
sem þurft hefðu að bæta sig þannig
að þeir hefðu haft þokkalegan tíma
til undirbúnings og breytinga.
Allir aðilar, nema Arnarey, hefðu
fellt sig við þessar breytingar.
Stjórnendur þar vildu fá vissa
undanþágu, sem þeir fengju ekki.
Þeir yrðu að sæta sömu skilyrðum
og aðrir og að þeim uppfylltum
væri ekkert því til fyrirstöðu að
leyfi fengist.
Listahátíð kvenna:
Reykjavíkur-
borg kaupir
nokkur verk
REYKJAVÍKURBORG hefur keypt
nokkur listaverk sem sýnd hafa verið
á Listahátíð kvenna, sem nú stendur
yfir. Þessi verk eru Ijósmyndir eftir
Vilborgu Einarsdóttur, Svölu Sigur-
leifsdóttur, Völu Harðardóttur og
Öldu Lóu Leifsdóttur, en þær sýna
nú í Nýlistasafninu.
Þá voru keypt málverk eftir
Huldu Hákonardóttur, Sóleyju
Eiríksdóttur, Arngunni Ýr Gylfa-
dóttur og Hörpu Björnsdóttur sem
sýna á Kjarvalsstöðum og málverk
eftir Ásrúnu Kristjánsdóttur sem
sýnir í Gallerí Langbrók.
Eins og öðrum listaverkum í
eigu Reykjavíkurborgar verður
þessum verkum komið fyrir í
stofnunum borgarinnar.
Sex bátar
með sfld
6 BÁTAR fengu 50 til 120 tonn af
sfld í Mjóafirði síðdegis í gær, en
annars staðar fékkst enginn afii.
Eldborgin, sem var á leið inn á
Austfirði með loðnu, lóðaði á góðar
torfur út af Bjarnarey og Glettingi.
Að sögn veiðieftirlitsmanna
köstuðu tveir bátar við Hjörleifs-
höfða í gær, annar fékk ekkert en
hinn reif. Grindavíkurbátar voru
við leit í gær, komnir á Selvogs-
banka, en höfðu ekkert fundið.
Vestmannaeyjabátar höfðu heldur
ekkert fundið. Ekki fengust upp-
gefin nöfn allra bátanna, sem afla
fengu í Mjóafirði, en meðal þeirra
voru Geiri Péturs ÞH, Fjölnir GK
og Björg Jónsdóttir ÞH. Þessir
bátar voru með afla í kringum 100
tonn.
Samningur um
öryggisgæslu
endurnýjaður
REYKJAVÍKURBORG hefur end-
urnýjað samning við Securitas um
öryggisgæslu við ýmsar stofnanir
borgarinnar og gildir hann frá 1.
september 1985 til 1. júní 1986.
Nokkrar stofnanir borgarinnar
hafa innbyggt öryggiskerfi, en
Securitas gætir hinna, sem ekki
hafa það, og er farið eftir ákveðnu
kerfi sem sett hefur verið upp.
Að sögn ómars Einarssonar
framkvæmdastjóra íþrótta- og
æskulýðsráðs Reykjavíkurborgar
var Securitas fengið til að sjá um
öryggisgæslu í tilraunaskyni frá
1. mars til 1. september sl. Hann
sagði að reynslan af þessari örygg-
isgæslu hefði verið mjög góð og
var því ákveðið að endurnýja
samninginn.
Árekstur við
Hafnarfjörð
UMFERÐARSLYS varð í gækvöldi
rétt sunnan Hafnarfjarðar er tveir
bflar skullu saman. Ökumaður
annars bflsins var fluttur á slysa-
deild en önnur slys urðu ekki á
mönnum.
Að sögn lögreglunnar í Hafn-
arfirði varð slysið laust eftir
klukkan 20.30. Það varð með
þeim hætti að ökumaður annars
bilsins var að snúa við á veginum
en gætti sin ekki nægilega vel
og ók í veg fyrir hinn, sem var
á suðurleið. Báðir bílarnir eru
mikið skemmdir og óökufærir.
Frá slysstað við Hafnarfjörð.
LÓ6«mynd/Hákon Aðalsteinsson