Morgunblaðið - 04.10.1985, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER1985
5
Jón Sigurðsson yfirmatreiðslumaður aðstoðar hér börnin og sýnir þeim hvað um er að velja. Þau völdu eins
og sjá má kókómjólk, svala, kjúklinga og pylsur.
helst. Jón Sigurðsson yfirmat-
reiðslumaður í flugeldhúsinu átti
ásamt samstarfsmönnum sínum
heiðurinn af þeim mat sem boðið
var upp á, en reynt verður að
hafa hann í þeim stíl sem börn
kunna best að meta. Oft er það
þannig að börn vilja ekki þann
mat sem boðið er uppá í flugvél-
unum og er þetta því tilraun til
að koma til móts við langanir
þeirra. Til að vanda valið á
matseðlinn sem best var þessum
börnum boðið til að dæma um
réttina. Virtust þau flest vera á
kjúklingalínunni og svo völdu
þau jógúrt, ýmsa svaladrykki,
ávexti, rúnstykki og fleira.
„Það er ætlun okkar að þessi
barnamatseðill verði kominn í
gagnið eftir nokkrar vikur,“
sagði Gunnar Olsen, deildar-
stjóri þjónustudeildar Flugleiða.
„Fyrst í stað verður einungis
boðið uppá þetta á þeim leiðum
sem fljúga héðan frá Keflavík
og síðan sjáum við hvernig þetta
kemur út, svo að ef vel gengur,
færum við þetta yfir á aðrar
leiðir okkar. En fyrsta skrefið
er að fá viðbrögð og sjá hvernig
fólki líkar þetta framlag okkar,
sem er hrein aukning við þá þjón-
ustu sem við erum með í dag,“
sagði Gunnar.
Barnaréttirnir verða mat-
reiddir i eldhúsi Flugleiða á
Keflavíkurflugvelli sem sér um
allan mat í vélarnar sem fljúga
frá Keflavík. Er oft mikið álag á
starfsfólkinu þar og sérstaklega
yfir sumartímann og til dæmis
voru oft í sumar útbúnar á fjórða
þúsund máltíðir þar á sólarhring.
EFI.
Börnin völdu réttina
á eigin matseðli
Keflavík, 3. október.
ÞAÐ voru ánægð börn sem urðu
þess aðnjótandi að vera boðið í
mat á kaffiteríu Flugleiða í flug-
stöðinni á Keflavíkurflugvelli í
dag. Þeim var boðð til að bragða
á og velja sérstakan barnamatseðil
sem boðið verður uppá í Flugleiða-
vélum sem fljúga frá Keflavík.
Börnin voru flest börn starfs-
manna Flugleiða á Suðurnesjum,
eitthvað um 15—20 talsins, á
aldrinum 6—12 ára. Þeim var
fyrst boðið upp á morgunverðar-
rétti og svo heitan mat, pylsur,
hamborgara og kjúklinga. Vand-
lega var fylgst með hvaða réttir
börnunum líkaði best og allt
skráð niður. Ætlunin er svo að
velja barnamatseðilinn með hlið-
sjón af þvi hvað börnin völdu
Þeim stöllum, Ragnheiði, 7 ára, og Margréti, 8 ára, fannst barasta allt
gott. Þó þótti Margréti kjúklingurinn bestur af þeim réttum að Flugleiðir
buðu þeim að bragða á.
PSSSSSSS.....geturöu þagaö yfir LEYNDARMÁLI?
P.S. Þegar við segjum SJÓNVARP þá meinum við PHILIPS — og ekki orð um það meir.
Heimilistæki hf
HAFNARSTRÆTI3 - 20455- SÆTÚNI8- S: 27500
GOTT FÓLK