Morgunblaðið - 04.10.1985, Síða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER1985
Sif
Það er varla að ég þori að segja
það en íslendingshjartað
hoppaði hæð sína þegar hin dá-
samlega fallega Sif Sigfúsdóttir
var kosin Ungfrú Skandinavía á
skjánum í fyrrakveld og hún Halla
Bryndís skipaði þriðja sætið.
Auðvitað er púkó að hrífast af
fagurri stúlku sem stillt er uppá
pall rétt eins og sýningargrip, en
mér er alveg sma. Sif Sigfúsdóttir
geislar af slíkri innri sem ytri
fegurð að hún á skilið að iaugast
í skini heimsfjölmiðlanna.
Slík fegurð sem Sif er gædd er
raunar æðri allri rökhugsun og
jafnvel heilbrigðri skynsemi, þetta
er sú fegurð sem hefir innblásið
texta skálda á borð við Robert
Graves er gjarnan ræðir um hina
hvítu gyðju (hvílíkt karlrembu-
svín) eða Yeats sem var náttúru-
lega enn verri þar sem hann vogaði
sér að lifa í ástardraumum sjálfur
alþingismaðurinn og leikhússfor-
stjórinn eða Donne (1572—1631)
er vogar sér að yrkja þannig um
hina æðstu tilfinningar í: The
Canonization: Kallaðu okkur það
sem þér sýnist, en við erum það
sem við erum vegna ástarinnar.
Og hvað segir ekki karlrembusvín-
ið í Predikaranum: Klæði þín séu
ætíð hvít og höfuð þitt skorti aldrei
ilmsmyrsl. Njót þú lífsins með
þeirri konu, sem þú elskar, alla
daga þíns fánýta lífs, sem hann
hefir gefið þér undir sólinni, alla
þína fánýtu daga, því að það er
hlutdeild þín í lífinu og það sem
þú færð fyrir strit þitt, sem þú
streitist við undir sólinni.
Sif
Og svo eru menn að tala um
erlendar skuldir sýknt og heilagt
hér heima og liggur við að sumir
jarmi. Þjóð sem á slíka gersemi
sem Sif Sigfúsdóttir er rík. Hún
þarf ekki annað en kaupa handa
dísinni gullsleginn skrautvagn til
að aka á um heimsbyggðina, og
þá selur hún alla sína þorskhausa
og hrútspunga. Því allir vilja jú
eiga hlutdeild í fegurðinni og
hreinleikanum, ekki bara skáldin
heldur ekki síður hversdagsmaður-
inn á götunni er mænir í upplýsta
glugga tískuhúsanna og veltir fyrir
sér hvaða áhrif maturinn hefir á
mýkt húðarinnar og ljóma augn-
steinanna. Við íslendingar eigum
að klæða vora fegurstu stúlku í
pell og purpura. En nefnum hvorki
hrútspunga eða þorskhausa á nafn.
Nei, gefum heiminum þess í stað
nýja Mjallhvít og tengjum þar með
ísland við heim ævintýrisins, þar
sem uppspretta fegurðarinnar og
æskunnar sprettur úr hamravegg,
við minnstu snertingu. Og svo
þegar heimurinn stendur á öndinni
vegna hinnar tæru íslensku feg-
urðar þá köstum við á borð al-
heimsneytandans leynivopninu
mikla: skyrinu.
Skyrið
Getur nokkurt íslenskt foreldri
hugsað sér dag án skyrs, ég bara
spyr? Hvernig fara eiginlega er-
lendir foreldrar að því að troða
matnum í börn sín skyrlausir. Ég
get ekki hugsað þá hugsun til enda,
en sú hugsun kætir mig að þegar
hið mjallhvíta bros gyðjunnar Sif
hefir sigrað heiminn, þá verður
þess ekki langt að bíða að íslenskar
skyrverksmiðjur spúi þessum töfra-
mat samkvæmt leyniformúlu okk-
ar — inná hvert heimili. Hef ég
satt að segja miklu meiri trú á því
að mörlandinn hagnist fremur á
hinu mjallhvíta skyri í framtíðinni
heldur en þorskhausum og hrúts-
pungum.
Ólafur M.
Jóhannesson.
ÚTVARP/SJÓNVARP
Ðr sænsku bíómyndinni „Fjall á tunglinu" sem sýnd verður í sjónvarpinu í kvöld.
„Fjall á tunglinu“
— sænsk bíómynd
Sænska bíó-
22
30 myndin „Fjall á
— tunglinu" er á
dagskrá sjónvarpsins kl.
22.30 í kvöld. Myndin er
frá árinu 1984 og er leik-
stjóri Lennart Hjulström.
í aðalhlutverkum eru
Gunilla Nyroos, Thommy
Berggren og Bibi Anders-
son.
Myndin gerist í Stokk-
hólmi um 1890 og segir
frá rússneska stærðfræð-
ingnum Sonyu Kovalevsky
og örlagaríku ástarsam-
bandi hennar við róttæk-
an vísindamann.
Þýðandi myndarinnar
er Jóhanna Þráinsdóttir.
Sagnaskáld af Suðurlandi
75 ára afmæli Guðmundar Daníelssonar
■■ „Sagnaskáld af
40 Suðurlandi" er
~* heiti dagskrár
sem verður í hljóðvarpi,
rás 1, í kvöld kl. 20.40 og
var dagskráin gerð í tilefni
af 75 ára afmæli Guð-
mundar Daníelssonar.
Gunnar Stefánsson tók
saman og flytur inngangs-
orð. Arnar Jónsson les
smásöguna „Pyttinn botn-
lausa“ og Þorsteinn Ö.
Stephensen les úr ljóðum
skáldsins. Höfundur les
kafla úr skáldsögunni
Tólftónafuglinum sem
kemur út á afmælisdag-
inn.
Guðmundur Daníelsson,
rithöfundur.
„Börn tveggja landa“
— áströlsk heimildamynd
■■ Áströlsk heim-
40 ildamynd „Börn
— tveggja landa"
er á dagskrá sjónvarps kl.
21.40 í kvöld. Myndin er í
tveimur hlutum og er fyrri
hlutinn á dagskrá í kvöld.
Myndin fjallar um börn í
Kína og Ástralíu. í fyrri
hlutanum segir frá ferð
ástralskra barna til Kína.
Þýðandi er Reynir
Harðarson.
Bítlarnir i tónleikum alls fyrir löngu.
Saga Bítlanna
— fyrri hluti
■ Fyrri hluti
40 heimildamynd-
— ar um sögu Bítl-
anna frægu frá Liverpool
verður á dagskrá í kvöld
kl. 20.40. Síðari hlutinn
verður á dagskrá sjón-
varpsins annað kvöld kl.
21.10.
Myndin er ný og gerð í
Bandaríkjunum og fjallar
um fjórmenningana
bresku sem hvað vinsæl-
astir hafa orðið í sögu
poppsins og litríkan
starfsferil þeirra.
Þýðandi er Björn Bald-
ursson.
ÚTVARP
FÖSTUDAGUR
4. október
7.00 Veðurfregnir. Fréttir.
Bæn.
7.15 Morgunvaktin.
7.20 Leikfimi Tilkynningar.
8.00 Fréttir. 8.15 Veðurfregn-
ir.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
„Sætukoppur" eftir Judy
Blume. Bryndis Vlglunds-
dóttir les þýðingu sina (7).
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynn-
ingar. Tónleikar. Þulur velur
og kynnir.
10.00 Fréttir.
10.05 Daglegt mál. Endurtek-
inn þáttur Sigurðar G. Tóm-
assonar frá kvöldinu áður.
10.10 Veðurfregnir.
10.30 Forustugr. dagbl. (útdr.).
10.40 „Sögusteinn". Umsjón:
Haraldur I. Haraldsson.
RÚVAK.
11.10 Málefni aldraðra. Þórir S.
Guðbergsson flytur þáttinn.
11.25 Tónlist eftir George
Gershwin. Sinfónluhljómsveit
Lundúna leikur. André Prev-
in stjórnar. Einkeikari: Christ-
ina Ortiz. a. Rapsódla nr. 2
fyrir planó og hljómsveit. b.
Kúbanskur forleikur.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Til-
kynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veður-
fregnir. Tilkynningar. Tón-
leikar
14.00 .A ströndinni" eftir Nevil
Shute. Njöröur P. Njarðvlk
les þýðingu sina (11).
14.30 Sveiflur. Umsjón: Sverrir
Páll Erlendsson. RUVAK.
15.40 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15
Veðurfregnir.
16.20 Slðdegistónleikar. a.
Planókonsert nr. 1 I b-moll
eftir Pjotr Tsjaikovskl. Emil
Gilels leikur með Nýju ffl-
harmonluhljómsveitinni I
Lundúnum. Lorin Maazel
stjórnar. b. Elisabeth Söder-
ström syngur lög eftir ýmsa
höfunda. Vladimir Ashken-
azy leikur með á píanó.
17.00 Barnaútvarpið. Stjórn-
andi: Kristln Helgadóttir.
19.15 A döfinni.
19.25 Svona byggjum viö hús.
(Sá gör man — Bygge).
Annar hluti. Sænsk fræðslu-
mynd fyrir börn. Þýðandi og
þulur Bogi Arnar Finn-
bogason.
(Nordvision — Sænska sjón-
varpið).
19.35 Kínverskir skuggasjón-
leikir.
(Chinesische Schatten-
spiele). 2. Skjaldbakan og
tranan.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Auglýsingar og dagskrá.
17.40 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.45 Daglegt mál. Guðvarður
Már Gunnlaugsson flytur
þáttinn.
19.50 Tónleikar.
20.00 Lög unga fólksins. Þóra
Björg Thoroddsen kynnir.
20.40 Sagnaskáld af Suður-
landi. Dagskrá á 75 ára af-
mæli Guðmundar Daniels-
sonar. Gunnar Stefánsson
tók saman og flytur inn-
gangsorð. Arnar Jónsson les
smásöguna „Pyttinn botnl-
20.40 Saga Bltlanna.
(The Complete Beatles). Ný
bandarlsk heimildamynd I
tveimur hlutum um fjórmenn-
ingana frá Liverpool og litrlk-
an starfsferil þeirra. Slðari
hluti myndarinnar veröur
sýndur laugardaginn 5.
október. Þýðandi Björn
Baldursson.
21.40 Börn tveggja landa.
(Children of Two Countries).
Aströlsk heimíldamynd I
tveimur hlutum um börn I
Klna og Astrallu. I fyrri hluta
myndarinnar segir frá ferð
ástralskra barna til Klna.
ausa" og Þorsteinn Ö.
Stephensen úr Ijóðum
skáldsins. Höfundur les kafla
úr skáldsögunni „Tólftóna-
fuglinum" sem kemur út á
afmælisdaginn.
21.30 Frá tónskáldum. Atli
Heimir Sveinsson kynnir raf-
tónlist Magnúsar Blöndals
Jóhannssonar.
22.00 Fréttir. Dagskrá morg-
undagsins.
22.15 Veðurfregnir. Orð
kvöldsins.
22.25 Kvöldtónleikar. Fiðlu-
konsert I d-moll op. 47 eftir
Jean Sibelius. Jascha Heif-
etz leikur með Fllharmonl-
Þýðandi Reynir Harðarson.
22.30 Fjall á tunglinu.
(Berget pá mánens bak-
sida). Sænsk blómynd frá
árinu 1984. Leikstjóri Lenn-
ert Hjulström. Aðalhlutverk
Gunilla Nyroos, Thommy
Berggren og Bibi Anders-
son.
Myndin gerist I Stokkhólmi
um 1890 og segir frá rússn-
eska stærðfræðingnum Son-
yu Kovalevsky og örlagarlku
ástarsambandi hennar við
róttækan vlsindamann. Þýð-
andi Jóhanna Þráinsdóttir.
00.05 Fréttir I dagskrárlok.
sveit Lundúna. Thomas
Beecham stjórnar. (Hljóðrit-
un frá 1934.)
22.55 Svipmynd. Þáttur Jónas-
ar Jónassonar. RÚVAK.
24.00 Fréttir. Dagskrárlok.
10.00—12.00 Morgunþáttur
Stjórnendur: Asgeir Tómas-
son og Páll Þorsteinsson.
14.00—16.00 Pósthólfið
Stjórnandi: Valdls Gunnars-
dóttir.
16.00—18.00 Léttir sprettir
Stjórnandi: Jón Ólafsson.
Þriggja mlnútna fréttir sagð-
ar klukkan: 11:00, 15:00,
16:00 og 17:00.
20.00—21.00 Lög og lausnir
Spurningaþáttur um tónlist.
Stjórnndi: Siguröur Blðndal.
21.00—22.00 Bergmál
Stjórnandi: Sígurður Grön-
dal.
22.00—23.00 A svörtu nótun-
um
Stjórnandi: Pétur Steinn
Guðmundsson.
23.00—03.00 Næturvakt
Stjórnendur: Vignir Sveins-
son og Þorgeir Ástvaldsson.
(Rásirnar samtengdar að
lokinni dagskrá rásar 1.)
SJÓNVARP
FÖSTUDAGUR
4. október