Morgunblaðið - 04.10.1985, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER1985
7
Viðgerð Dómkirkjunnar að ljúka:
Hátíðamessur
á sunnudag
l’KIRRI miklu viðgerð, sem framkvæmd hefur verið á Dómkirkjunni, er
nú að Ijúka. Kirkjan hefur verið lokuð í þrjí mánuði, en þar hefur líka
margt verið fært til betra horfs.
Fyrst og fremst var lagt nýtt
gólf í kirkjuskipiö allt. Er það úr
ljósri furu, sem er þannig með-
höndluð, að hún á að þola mikinn
umgang og jafnframt að skapa
betri hljómburð en áður var.
Með þessari framkvæmd er gólf-
ið fært til síns upprunalega
horfs. Hið sama gildir um píl-
árahandrið, sem sett hefur verið
við tröppurnar upp í kórinn.
Gólfteppum hefur verið fækk-
að. Er þá hvort tveggja haft í
huga: að fallegt gólf njóti sín, og
hljómburður verði betri. En auð-
vitað krefst þetta meiri gætni
við umgang allan.
Flestar raf- og hitalagnir hafa
verið endurnýjaðar og ýmsar
nýjungar verið teknar upp svo
sem með sérstökum lögnum
fyrir útvarp og sjónvarp. Ný teg-
und ljósapera hefur verið sett í
öll ljósastæði, og nú er hægt að
minnka eða auka styrkleik lýs-
ingar eftir þörfum hverju sinni.
Þá hefur kirkjan verið máluð
að innan.
Utan dyra er verið að ljúka við
að setja snjóbræðslukerfi í
gangstéttina umhverfis kirkj-
una.
Loks er uppsetning nýja
orgelsins vel á veg komin. Hins
vegar tekur mjög langan tíma að
stilla svo stórt hljóðfæri, en þar
þarf hver pípa að fá sinn rétta
hljóm. Því verður kirkjan ekki
opin fyrir helgiathafnir nema á
laugardögum og sunnudögum
fram í nóvemberlok. Undantekn-
ing verður þó að sjálfsögðu gerð
vegna þingsetningarinnar 10.
október nk. Orgelvígslan hefur
verið ákveðin 1. desember.
Vegna vinnunnar við nýja
orgelið er ekki hægt að nota
strax efri hæð kirkjuskipsins
(svalirnar). Því er nokkur hætta
á að kirkjan rúmi ekki í einni
athöfn alla þá, sem langar að
fagna þessum endurbótum við
guðsþjónustu á sunnudaginn.
Þess vegna verða þar tvær há-
tíðamessur. Sr. Hjalti Guð-
mundsson prédikar í messunni
kl. 11 f.h., en Sr. Þórir Stephen-
sen kl. 2. e.h. Þeir þjóna svo sam-
an fyrir altari í báðum messun-
um ásamt Sr. Agnesi M. Sigurð-
ardóttur.
Sr. Agnes verður jafnframt
með fyrstu barnasamkomuna á
haustinu í Dómkirkjunni á laug-
ardag kl. 10.30 f.h.
Frá Dómkirkjunni.
Iðnaðarmenn unnu að því í gær að leggja síðustu hönd á endurbæturnar
í Dómkirkjunni.
Árni Gunnars-
son ritstjóri Al-
þýðublaðsins
ÁRNI Gunnarsson fyrrv. alþingis-
maður hefur tekið við ritstjórn Al-
þýðublaðsins um stundarsakir, að
því er hann sagði í samtali við blaða-
mann Morgunblaðsins í gær.
„Ég er á milli starfa og hljóp í
þetta fyrir tilmæli formanns Al-
þýðuflokksins, Jóns Baldvins
Hannibalssonar," sagði Árni.
„Þetta verður aðeins í stuttan tíma
og hugmyndin er að kanna jafn-
framt hvort eitthvað er hægt að
gera fyrir þetta blað - kanna
grundvöllinn fyrir þvl hvort
ástæða og efni eru til að efla blaðið
sem flokkspólitfskt málgagn. Fjár-
hagsstaða blaðsins er góð en það
er svo matsatriði hvort það er í
takt við tímann að flokkurinn gefi
út kröftugt málgagn í dagblaðs-
formi."
Á meðan Árni er ritstjóri og
ábyrgðarmaður blaðsins mun
hann m.a. skrifa ómerktar forystu-
greinar þess.
Samtök um
kvennaathvarf
með félagsfund
FIINDUR verður haldinn í Samtokum
um kvennaathvarf að Hallveigarstöðum
laugardaginn 5. október kl. 2.
Fyrir viku hafði verið boðað til fé-
lagsfundar í samtökunum en honum
var aflýst á síðustu stundu. Auglýst
dagskrá þess fundar var 1) Sam-
starfsgrundvöllur 2) Önnur mál.
Samkvæmt fundarboði þess fundar
sem nú stendur fyrir dyrum verða á
fundinum umræður um samstarfs-
grundvöll Kvennaathvarfsins, svo og
um starfsmannahald, en í fundar-
boðinu segir að þvi máli sé vísaö til
félagsfundar vegna ágreinings í
framkvæmdanefnd Samtaka um
kvennaathvarf.
WEKm
Afmælis
nLmCg“meö15%atslætti.
Eigum einnig tyrirliggiamh aW
efni til jpurrblómaskreytmga.
síöustu helgi
Vöktu þær mikla athygli-
»•»* M «
Sýningin er opin nú um helgma.
r/
Gróðurhúslnuvið Sigtún: Sintar 36770-686340 15ára
t
\
i
;
f
i