Morgunblaðið - 04.10.1985, Síða 11
MORGUNBLAÐID, FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER1985
11
stofan var hins vegar sýknuð af
ákærum réttvísinnar.
„Stórkostlegt réttar-
hneyksli“ eða „sýknun
af ákærum Hriflu-
„réttvísinnar““
Dómsniðurstaða Hermanns Jón-
assonar varð þó ekki lokaniður-
staða í þessu máli. Því var áfrýjað
til Hæstaréttar og þar var kveðinn
upp dómur á ótrúlega skömmum
tíma miðað við það sem við eigum
að venjast í seinni tíð, eða nánar
tiltekið þann 19. desember 1932,
aðeins einum mánuði og 10 dögum
eftir uppkvaðningu héraðsdóms.
Hæstiréttur var ekki alls kostar
sammála undirréttardóminum.
Um skuldir C. Behrens við ætt-
ingja sína segir Hæstiréttur:
„Þessi skýrsla ákærða um ætt-
ingjaskuldirnar er sennileg, enda
hefir annað, sem fram er komið i
málinu, styrkt hana. Og virðist
ákærði því ekki hafa þurft að taka
tillit til þessara skulda, þegar hann
gerði ráðstafanir þær, sem í samn-
ingunum frá 7. nóv. 1929 greinir."
Að þessu athuguðu og með tilliti
til fyrirætlana C. Behrens um
verslunarreksturinn komst Hæsti-
réttur að þeirri niðurstöðu að ekki
hafi verið ástæða til að ætla að
hann hafi séð fyrir eða hlotið að
sjá fyrir gjaldþrot sitt þegar hann
greiddi skuld sína við Carl Höepfn-
er hf. Með tilliti til þessara upplýs-
inga og mats á útistandandi skuld-
um C. Behrens taldi Hæstiréttur
að Magnús Guðmundsson hafi ekki
heldur séð eða átt að sjá yfirvof-
andi gjaldþrot C. Behrens.
Um þátt Magnúsar í því að rift-
unarfrestur þáverandi gjaldþrota-
laga leið án þess að nokkuð væri
að gert segir Hæstiréttur: „... ekki
er það heldur sannað, að ákærði
hafi á nokkurn hátt varnað lánar-
drottnum Behrens að krefjast
gjaldþrotameðferðar á búi Be-
hrens, meðan þessi frestur var að
líða.“
Hæstiréttur komst því að þeirri
niðurstöðu að sýkna bæri bæði C.
Behrens og Magnús Guðmundsson
dómsmálaráðherra af kröfum rétt-
vísinnar í málinu. Hið 15 daga
fangelsi sem Hermann vildi dæma
Magnús í féll því niður og Magnús
tók við embætti dómsmálaráð-
herra á nýjan leik, en af því hafði
hann látið að eigin ósk eftir að
áfellisdómur gekk í héraði.
Höfundur er fulltrúi ískrifstofu
yfirborgarfógeta íReykjavík.
Messur
úti á landi
VÍKURPRESTAKALL: Kirkju-
skólinn í Vík hefst á morgun,
laugardag, kl. 11. Guðsþjónusta
í Víkurkirkju á sunnudag kl. 14.
Sóknarprestur.
KIRKJUHVOLSPRESTAKALL:
Sunnudagaskóli kl. 10.30 í Há-
baejarkirkju og guðsþjónusta í
Hábæjarkirkju kl. 2. Sr. Auður
Eir Vilhjálmsdóttir, sóknar-
prestur.
NESKIRKJA: Laugardags-
starfið byrjar á morgun kl. 3.
Sýndar litskyggnur úr Vest-
fjarðaferð. Spurningakeppni.
Mikill söngur. Kvenfélagskonur
annast kaffiveitingar. Sr.
Frank M. Halldórsson.
AÐVENTKIRKJAN Reykjavík: á
morgun laugardag: Bibl-
íurannsókn kl. 9.45. Guðs-
þjónusta kl. 11.00. David Burke
prédikar.
SAFNAÐARHEIMILI aðventista
Selfossi: á morgun laugardag:
Biblíurannsókn kl. 10.00. Guðs-
þjónusta kl. 11.00. Henrik
Jorgensen prédikar.
SAFNAÐARHEIMILI aóventista
Keflavik: á morgun laugardag:
Biblíurannsókn kl. 10.00. Guðs-
þjónusta kl. 11.00. Eric Guð-
mundsson prédikar.
AÐVENTKIRKJAN Vestmanna-
eyjum: á morgun laugardag:
Biblíurannsókn kl. 10.00. Guðs-
þjónusta kl. 11.00. Guðni
Kristjánsson prédikar.
MMMHi
I helgar
matinn:
Nýreykt
Londonlamb
Kjúklingar
pr.kg.
nýru.
Lambakjöt
af nýslátrudu
1/1 dilkar niðursagaðir
ÍQQ««
188
171 dillíarnir
,00
pr.kg.
SÉRTILBOÐ
á VÍÐIS kjötvörum:
Medisterpylsa
^k.195’55
Kindabjúgu
^15195’™
Kjötbúðingur
vfeis 195
Heildsöluverð kr. 260.00 pr.kg.
í sláturtíðinni: VÍÐIS VERÐ:
^asc, ^^>0,0°
MáMáZJ pr.kg.
Nýreyktur lamba
hamborgarahryggur
348 fta
Lamba
saltkjöt
Steikt svínasíða . T\T?T\TC!
Ný heit svið,blóðmör AtlHiriNö
og lifrarpylsa. -é oo.oo
pr.kg.
í Mjóddinni
Tilbúinn matur
Grillaðir kjúklingar
Glóðarsteikt lambalæri
Steikt svínalæri
Kynnum
í Mjóddinni:
Gómsæta Pekingönd
frá ísfugli á tilboðsverði
188
239
.00
prJtg.
Kynnum Santos Bragakaffi
Lísukex Perluhjúpkex og
Heilhveitikex með súkkulaði
frá Holtakexi.
Man-Shampó frá Frigg
Allar tegundir á kynningarverði
,oo
pr.kg.
Glænýr línufiskur,
spriklandi ýsa og
úrval tilbúinna rétta
í fiskborðinu í Mjóddinni
Beikon
niðursneitt,
pörulaust
^rf„70pr.kg.
Lambalifur
98-X
i ítr.
Cola cola 9850
Appelsínur 4^-0®
* r ^ y pr. kg
OpiðtUkL20íMjóddinm
en til kl. 19 í Starmyn
og Austurstræti.
AUSTURSTRÆTI 17 — STARMYRI 2
STÓRMARKAÐUR MJÓDDINNI