Morgunblaðið - 04.10.1985, Qupperneq 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER1985
IBM S/32
Til sölu er IBM S/32 tölva, með áföstum prentara
og 13,7 mb. höröum diski. Ódýr og góð vél. Hentar
vel fyrir t.d. sjávarútveg, bókhald o.fl.
Upplýsingar í síma 91—28200 (128).
• Notar sömu orku og 18 kerta pera.
• Texti týnist ekki þó tekiö sé úr sambandi.
• Borð-oghengifestingar.
• íslenskirstafir.
• Hægt aö nota sem digital-klukku eingöngu.
• Hagstætt verö.
BÐt%ústopr
Skipholti 9, sími 24255.
Auglýsing
um nafnbreytingu þeirra
sem veittur hefur veriö ís-
lenskur ríkisborgararéttur
með lögum.
Meö lögum nr. 45 24. júní 1985 um veitingu ríkis-
borgararéttar er þeim sem fengiö hafa íslenskan
ríkisborgararétt meö lögum aö uppfylltu því skil-
yröi aö þeir tækju upp íslensk nöfn samkvæmt
lögum um mannanöfn nr. 54/1925 veitt heimild til
aö fá núverandi nöfnum sínum breytt aö nýju
þannig aö þau samrýmist ákvæðum þeim sem
gilda um þá sem fá ríkisborgararétt meö lögum nr.
45/1985. A þetta viö um þá sem fengið hafa ríkis-
borgararétt á tímabilinu 1952—1980.
Ákvæöi þessa efnis er í 2. gr. laga nr. 45/1985 og
hljóðar svo:
„Nú fær maöur, sem heitir erlendu nafni, ís-
lenskt ríkisfang meö lögum og skulu þá börn
hans, fædd síöan, heita íslenskum nöfnum sam-
kvæmt lögum um mannanöfn en hann skal, þá
er hann hlýtur íslenskt ríkisfang, taka sér ís-
lenskt eiginnafn — ásamt því sem hann ber fyrir
— er börn hans taka sem kenningarnafn. Honum
skal þó heimilt, ef hann kýs heldur, aö breyta
svo eiginnafni sínu aö þaö fullnægi kröfum laga
um mannanöfn.
Þeim sem hafa áöur fengið íslenskt ríkisfang
meö lögum meö því skilyröi aö þeir breyttu nafni
sínu í samræmi viö ákvæöi þeirra laga sem veriö
hafa meö öörum hætti í því efni en hér aö ofan
greinir, skal heimilt, til ársloka 1985, aö fá nöfn-
um sínum breytt þannig aö þau samrýmist
ákvæöum þessara laga.“
Samkvæmt þessu ákvæöi getur maöur sem t.d.
hét John Smith og breytti nafni sínu t.d. í Sigurður
Sigurösson viö töku íslensks ríkisfangs, fengiö því
breytt aö nýju í samræmi viö núgildandi ákvæöi og
tekið upp t.d. nafniö John Siguröur Smith. Börn
hans sem fædd eru eftir aö hann fékk íslenskt
ríkisfang skulu kenna sig til Siguröarnafnsins.
Börn sem fengið hafa ríkisborgararétt meö foreldri
sínu geta fengiö nafnbreytingu á sama hátt og
foreldriö.
Athygli er vakin á því aö þessi heimild gildir aöeins
til ársloka 1985. Umsóknir um slíka nafnbreytingu
skal senda dómsmálaráðuneytinu, Arnarhvoli.
Dóms- og kirkjumálaráöuneytiö,
25. september 1985.
HOLLUSTUBYLTINGIN Jón Óttar Ragnarsson
Ónæmistæring III
Hvort sem það var myrkrið eða
einangrunin hér í fásinninu verð-
ur ekki sagt með sanni að skírlífi
sé sterkasta hlið norðurhjara-
mannsins.
Sá hrikalegi faraldur sem
nefndur hefur verið ónæmistæring
(alnæmi á lokastigi) getur því
orðið okkur þungur í skauti þegar
stundir líða.
Þótt enn sé ýmislegt á huldu
um heppilegustu varnarstefnu
má það ekki ýta undir aðgerðar-
leysi heldur þvert á móti.
Það sem mestu máli skiptir er
að allt bendir til að ónæmistæring
sé sjúkdómur sem enginn þarfað
fá ef hann hagar sér skynsam-
lega.
Enga móöursýki
Kjarni málsins er að veiran
þarf að komast frá blóði eða lík-
amsvessum smitbera yfir í blóð
heilbrigðs einstaklings.
Utan líkamans lifir veiran
skammt og berst því ekki t.d. af
klósettsetum, nöguðum blýöntum
eða með lofti, t.d í almennings-
vögnum.
Auk þess eru íslendingar lausir
við tvo mikilvæga smitvalda
heitra landa: blóðsjúgandi skor-
dýr og blóðsýnisnálar sem eru
endurnotaðar.
Hér er líka lítið um eiturlyfja-
neytendur sem sprauta sig með
eitri í æð, en þá er oft gífurleg
hætta á að veiran berist milli
manna.
Hættan
Þrátt fyrir þetta er margt sem
bendir til að hundruð — ef ekki
þúsundir íslendinga — geti tekið
veikina ef varnarstarfið bregst.
Harðast mun sjúkdómurinn
bitna á lauslátum hommum og
bísexúölum vegna hættu á slím-
húðarskaða í endaþarmi.
Enda þótt hættan sé mun
minni við venjulegar samfarir
(nema slímhúð sé þurr og
þrengsli mikil) vex hún hratt með
vaxandi lauslæti.
Þar sem kynferðisleg virkni
Islendinga, einkum yngra fólks,
er óvenjulega mikil, getur sjúk-
dómurinn breiðst hratt út um
þjóðfélagið.
Er afar brýnt að þeir sem ferð-
ast erlendis forðist eins og heitan
eldinn öll kynmök við ókunnuga,
vændishús og hommabaðhús.
Allir sem taka slíka áhættu
verða að gera sér ljóst að náin
líkamleg mök geta, við þessar
aðstæður, jaf ngilt dauðadómi.
Náin snerting við alla líkams-
vessa getur opnað sjúkdóminum
leið inn í líkamann gegnum
smæstu skrámur (t.d. eftir tann-
burstun eða gæludýr), frunsur
o.m.fl.
Varnir
Sem betur fer er aðeins vitað
um eitt eða tvö tilfelli þar sem
hjúkrunarfólk hefur smitast af
sjúkdóminum frá sjúklingum.
Þetta sýnir að ef allir þekkja
leikreglurnar er hægt að veita
þessum hrjáðu einstaklingum
ummönnun fordóma- og áhyggju-
laust.
En til þess þarf gífurlega
fræðslu fyrir almenning um
hvernig bregðast skuli við áóur
en sjúkdómurinn breióist út að ráði.
Verður það að vera hlutverk
heilbrigðisyfirvalda hér að taka
fljótt við sér og nota til þess alla
tiltæka miðla og fjölmiðla.
Ráðgjöf
Heilbrigðisyfirvöld munu að
sjálfsögðu gefa út nákvæmar leiö-
beiningar um þennan sjúkdóm.
Hér eru aðeins fáein grunnatriði.
1. Forðist náin líkamleg sam-
skipti (kynmök, kossa o.fl.) við
ókunnuga og hugsanlega smit-
bera, ekki síst á erlendri
grund.
2. Ef slík samskipti eru óhjá-
kvæmileg, notið verjur og
krem og öll tiltæk ráð til að
forðast smit. Reifið öll sár og
skrámur.
3- Byggið upp sem mesta andlega
og líkamlega heilbrigði til að
efla mótstöðuafl líkamans ef
veiran skyldi komast út í blóð.
4. Næringin gegnir hér lykilhlut-
verki, sérstaklega „slímhúðar-
vítamínið", þ.e. A-vítamín og
undanfarar þess, pró-A-vítamín.
5. Bestu A-vítamíngjafarnir eru
lýsi og mjólkurmatur. Pró-A-
vítamín koma úr grænmeti með
lituðum vef, þ.á.m. gulrótum og
tómötum.
6. Önnur afar mikilvæg bætiefni
fyrir slímhúðir og æðaveggi
eru B-vítamín, E-vítamín og
C-vítamín.
7. Forðist mikla streitu, sérstak-
lega einveru og einangrun (ef
hægt er að komast hjá því),
en einnig andstæðuna: mikinn
daglegan eril.
8. Leggið stund á holla líkams-
rækt. Styrkið líkamann með
því að ganga, synda og nú
þegar snjórinn kemur: með
vetraríþróttum.
9.Forðist alla ofnotkun nautna-
lyfja, sérstaklega tóbaks. Hald-
ið áfengisneyslu í hófi og
drekkið öl og léttvín frekar en
sterka drykki.
Lokaorö
Allt bendir til að ónæmis-
tæring muni verða - gífurlegt
heilbrigðisvandamál á íslandi
þegar fram líða stundir.
Besta vörnin er fræðsla og
áróður sem beinist að aðalat-
riðum og ekki ýtir undir móð-
ursýki og fordóma gegn fórn-
arlömbunum.
Aðeins ef hver einasti íslend-
ingur skilur hvernig hann getur
haldið áhættunni í lágmarki er
von til þess að unnt verði að
tefja fyrir þessum hrikalega
faraldri aö einhverju ráði...
þangað til lækningin fínnst.
Þessi glæsilegi 22 feta Flugfiskur er til
sölu, meö 145 ha díselvél og ýmsum
aukahlutum.
Verö kr. 650.000,- Upplýsingar í síma
34600 á daginn og 77322 á kvöldin.
Viðtalstími borgarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins verða til viðtals ^
í Valhöll Háaleitisbraut 1 á laugardögum frá kl. 10— ^
12. Er þar tekið á móti hverskyns fyrirspurnum og ^
ábendingum og er öllum borgarbúum boðið að not- ^
færa sér viötalstíma þessa.
Laugardaginn 5. októ-
ber verða til viötals
Katrín Fjeldsted for-
maöur heilbrigöisráös
og í stjórn umferöar-
nefndar Reykjavíkur,
og Gunnar S. Björns-
son fulltrúi ráðninga-
stofu og lönskólans í
Reykjavík.
*
*
i
%
%
í
Listahátíð kvennæ
Safnskrá
yfír sýn-
ingar á
listahátíð
komin út
LISTAHÁTÍÐ kvenna hefur látið
gera sérstaka safnskrá sem nú er
til sölu á öllum meginsýningar-
stöðum hátíðarinnar og í bleika
garðhýsinu, Vesturgötu 3. Safn-
skráin hefur að geyma bæklinga
yfir allar þær sýningar sem staðið
hafa yfir á vegum listahátíðar. Eru
þeir allt frá einni opnu að stærð
og upp í 40 síður. Flestallir veglega
myndskreyttir og hafa að geyma
ýmiskonar upplýsingar sem hvergi
annars staðar eru til á prenti. Um
útlit og hönnun sá auglýsingastof-
an KRASS með aðstoð Sigríðar
Bragadóttur.
f bleika garðhýsinu fer sömu-
leiðis fram miðasala listahátíðar-
innar sem hófst 20. september og
mun standa til 20. okt. Sumum
sýningum hennar lýkur þó nú á
sunnudag 6. okt. og má þar nefna
Hér og nú á Kjarvalsstöðum, sýn-
ingu 13 arkitekta í Ásmundarsal
og sýningu Ásrúnar Kristjáns-
dóttur í Gallerí Langbrók.
f garðhýsinu Vesturgötu 3 er
ennfremur upplýsingaþjónusta
listahátíðar. Þar er opið milli kl.
15.00 Og 19.00. (fl, frétutilkynninpi.)