Morgunblaðið - 04.10.1985, Síða 15
MORGUNBLAÐID, FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER1985
15
Morgunblaöið/Arnór
48 pör tóku þátt í Samvinnuferða/Landsýnar-mótinu sem fram fór um
síðustu helgi. Meðfylgjandi myndir eru af nokkrum þekktum andlitum
úr bridsheiminum sem voru meðai þátttakenda.
Bridsfélag
kvenna
Brids
Arnór Ragnarsson
Jón Baldursson og
Sigurður Sverrisson
sigurvegarar
Ágæt þátttaka var í Opna
Samvinnuferða/Landsýn-mót-
inu, sem haldið var um síðustu
helgi í Gerðubergi í Breiðholti,
48 pör (96 spilarar) tóku þátt í
því og var spilað eftir Mitchell-
fyrirkomulagi, 2 spil milli para,
alls 78 spil.
Jón Baldursson og Sigurður
Sverrisson sigruðu glæsilega í
mótinu, en sveitarfélagar þeirra,
Aðalsteinn Jörgensen og Valur
Sigurðsson tryggðu sér 2. sætið í
lokaumferðinni.
Röð efstu para varð þessi:
Jón Baldursson —
Sigurður Sverrisson 1182
Aðalsteinn Jörgensen —
Valur Sigurðsson 1098
Þórarinn Sigþórsson —
Þorlákur Jónsson 1063
Karl Logason —
Svavar Björnsson 1052
Páll Valdimarsson —
Sverrir Kristinsson 1044
Kristján Þ. Blöndal —
Georg Sverrisson 1040
ísak Ö. Sigurðsson —
Sturla Geirsson 1034
Hrólfur Hjaltason —
Oddur Hjaltason 1029
Jón Þorvarðarson —
Þórir Sigursteinsson 1027
Björn Eysteinsson —
Guðm. Sv. Hermannsson 1014
Meðalskor var 936 stig.
Útreikningur fór fram í tölvu
undir stjórn Vigfúsar Pálssonar.
Er óhætt að segja að það hafi
tekist vel utan smá mistaka i
byrjuninni sem stöfuðu af yfir-
setunni og rangt skráðum
skormiðum hjá keppendum.
Notkun á tölvu við útreikning á
mótum framtíðarinnar er ein-
mitt sú lausn sem bridsíþróttin
hefur verið að bíða eftir. Þeir
Vigfús og Ásgeir P. Ásbjörnsson
hafa hannað forrit fyrir útreikn-
ing bæði í Barometer- og
Mitchell-tvímenninskeppnum og
stendur þjónusta þeirra öllum
félögum innan Bridssambands-
ins til boða.
Mótið fór vel fram undir ör-
uggri stjórn Ágnars Jörgensson-
ar, í góðum húsakynnum i
Gerðubergi í Breiðholti.
Samvinnuferðir/landsýn eiga
þakkir skildar fyrir enn eitt
framlag þeirra til bridgeíþrótt-
arinnar hér á landi. Bridssam-
band íslands þakkar þátttakend-
um fyrir samstarfið.
Síðasta mánudag lauk haust-
tvímenningi félagsins. Hér eru
efstu sæti:
stig
Esther Jakobsdóttir —
Valgerður Kristjónsdóttir 534
Ólafía Þórðardóttir —
Erla Sigurbjörnsdóttir 527
Dúa Ólafsdóttir —
Véný Viðardóttir 520
Sigrún Pétursdóttir —
Rósa Þorsteinsdóttir 516
Aldís Schram —
Soffía Theódórsdóttir 509
Gunnþórunn Erlingsdóttir —
Ingunn Bernburg 506
Steinunn Snorradóttir —
Þorgerður Þórarinsdóttir 505
Dóra Friðleifsdóttir —
Sigríður Ottósdóttir 504
Næsta mánudag, þ. 7. október,
hefst hin vinsæla Barómeter-
keppni félagsins og skráning er
langt komin. Þær konur sem
ætla að vera með en eru óskráð-
ar hafi sem fyrst samband við
Öldu, s. 17933 eða Sigrúnu, sími
11088. Spilað er í Skipholti 70.
Opna minningarmót-
iö á Selfossi
Á laugardaginn kemur, 5.
október, verður Minningarmótið
um Einar Þorfinsson haldið á
Selfossi. 36 pör taka þátt í því að
þessu sinni og komust færri að
en vildu. Spilaður verður Baro-
meter með 2 spilum milli para,
alls 70 spil. Spilamennska hefst
kl. 10 árdegis og er ætlað að
henni ljúki fyrir kl. 21 um kvöld-
ið. Spilað er í Gagnfræðaskólan-
um á Selfossi. Umsjónarmenn
mótsins eru Hermann og Ólafur
Lárussynir.
Opið hús
Fremur rólegt var síðasta
laugardag hjá Opnu húsi vegna
stórmótsins í Gerðubergi á sama
tíma. Spilað var í einum riðli og
urðu úrslit þessi:
Hulda Hjálmarsdóttir —
Þórarinn Andrewsson 137
Birgir Örn Steingrímsson —
Þórður Björnsson 132
Lárus Hermannsson —
Magnús Torfason 128
Guðlaugur Sveinsson —
Magnús Sverrisson 128
Hermann Erlingsson —
ólafur Týr Guðjónsson 127
Umsjónarmenn minna enn á
það að Opið hús verður alla laug-
ardaga í vetur, frá kl. 13.30, svo
lengi sem einhver þátttaka er.
Spilað er I Borgartúni 18. hús
Sparisjóðs vélstjóra, niðri.
Kínverjar svartsýnir
á sættir við Sovétmenn
Peking, 30. september. AP.
Aðalsamningamaður Kínverja í við-
ræðunum við Sovétmenn sagði í dag
að langur tími liði unz frekari árang-
ur yrði að viðræðum ríkjanna, sem
freista þess að taka upp eðlilega
sambúð á ný. Næsta viðræðulota
hefst I Peking næstkomandi fostu-
dag.
Qian Qichen, aðstoðarutanríkis-
ráðherra, lét þessi ummæli falla á
fundi með fréttamönnum, sem
haldin var í tilefni þjóðhátíðar-
dags Kínverja á morgun, 1. októ-
ber. Hann sagði þrjár hindranir í
vegi eðlilegrar sambúðar við Sov-
étríkin. Alvarlegasta og stærsta
hindrunin, og ein sú óyfirstígan-
legasta, væri hernám Víetnam í
Kambódíu. Hinar tvær væru víg-
búnaður Sovétmanna á umdeildum
svæðum á landamærum rikjanna
og innrás Sovétríkjanna og íhlutun
þeirra í Afganistan. Landamæri
Kína og Afganistan liggja saman.
Samninganefndir Kínverja og
Sovétmanná hafa ræðst við á
hálfsárs fresti frá því í október
1982 í þeim tilgangi að draga úr
spennu í sambúð ríkjanna og koma
á eðlilegu sambandi þeirra. Sjötta
viðræðulotan hefst á föstudag.
Qian sagðist álíta að viðræðurnar
myndu halda áfram um áraraðir
án þess að árangur næðist.
Á síðasta fundi viðræðunefnd-
anna, sem haldinn var í Moskvu í
marz, lögðu Kínverjar að Rússum
að ryðja hindrunum þremur úr
vegi, einni af annarri. Byrjað
skyldi á því að hætta stuðningi við
hernað Víetnama í Kambódíu.
Ráðamenn í Moskvu vlsuðu tillögu
Kínverjaábug.
Zhao Ziyang, forsætisráðherra,
sendi nýja sovézka starfsbróður
sínum, Nikolai I. Ryzhkov, árnað-
aróskir 1 morgun. Lét Zhao þar
vonir í ljós um að sambúð ríkjanna
færi batnandi.
ÞRAUTLEIÐINLEG SAGA
Hljómplötur
Sigurður Sverrisson
SAGA
Behaviour
Polydor/Fálkinn
Hegðun er titill þessarar nýj-
ustu plötu kanadísku hljóm-
sveitarinnar Saga og sannast
sagna veit ég ekki hvernig á að
útskýra hegðun fimmmenning-
anna á þessari plötu því ég fæ
ekki nokkurn botn í hana og
finnst hún sannast sagna þraut-
leiðinleg. Þetta eru stór orð en
ég fæ mig ekki til að komast að
annarri niðurstöðu.
Saga vakti fyrst verulega at-
hygli hér á landi árið 1982 og ári
síðar sendi hún frá sér plötu,
sem innihélt lagið Flyer og er
líkast til vinsælasta lag flokks-
ins hér á landi. 1 kjölfarið fylgdi
svo önnur breiðskífa, sem vel að
merkja passar vel sem formáli
að þessari þótt ég gerði mér ekki
grein fyrir því þá. Þar eru þær
breytingar, sem náð hafa há-
marki á Behaviour, að gerjast.
Það vantar ekki, að margt á
Behaviour er keimlíkt því sem
Saga hefur verið að gera undan-
farin ár og trommu- og gítar-
„sánd“ sér fyrir því að minna
mann á hverjir eru á ferð. En
meira er það varla. Tónsmíðarn-
ar skortir allan brodd og úr
verður þreytandi safn laga, sem
nær þó af og til að rífa sig upp úr
meðalmennskunni. En aðeins af
ogtil.
Hvers vegna Saga hefur
breyst úr því að vera mjög góð
hljómsveit með alla burði til
þess að vera stórsveit í það sem
hún er nú orðin veit ég hreinlega
ekki en svo mikið er víst að þetta
er Saga sem enginn nennir að
lesa.
ENN A NORÐAN
er fullt af
norðanvörum
Ennfremur:
Prjónajakkar, peysur. vettlingar,
treflar, húfur og legghlífar.
Líka:
Mokkafatnaöur margs konar á
góöu veröi, herra- og dömujakk-
ar, kápur og frakkar og mokka-
lúffur, húfur og skór á börn og
fulloröna.
Einnig:
Teppabútar, gluggatjöld, buxna-
efni, kjólaefni, gullfalleg ullar-
teppi á kostakjörum og margs
konar áklæði.
Og auðvitað:
Garn, meöal annars í stórhesp-
um.loöbandoglopi.
Áboðstólum:
Sport- og gallabuxur, úlpur,
mittisjakkar, sokkar, margs kon-
ar barnafatnaóur, peysur og
jakkar.
★1 m K IÐl JUl IA o E
SAMBANDSVERKSMIÐJANNA A AKUREm