Morgunblaðið - 04.10.1985, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER1985
21
Utanríkisráðherrar
NATO komi saman
— áður en Reagan ræðir við Gorbachev
Brttasel, 3. október. AP.
CARRINGTON lávaröur, aðalfram-
kvæmdastjóri NATO, hefur nú til
athugunar beiðni frá Beigíu og Hol-
landi þess efnis, að kallaður verði
saman fundur utanríkisráðherra
Atlantshafsbandalagsins, til við-
ræðna um samskipti austurs og vest-
urs, áður en fundur þeirra Reagans
Bandaríkjaforseta og Gorbachevs
leiðtoga Sovétríkjanna fer fram.
Skrifleg ósk um þetta var send
í gær bæði til Carringtons svo og
George Shultz utanríkisráðherra
Bandaríkjanna.
Sjálfur hélt Carrington til
Bandaríkjanna 1 gær, þar sem
hann mun eiga viðræður við þá
Reagan, Shultz og Caspar Wein-
berger varnarmálaráðherra
Bandaríkjanna.
Noregur:
Rangar skýrslur
um hrefnuveiðina
t'*
**
íiá
fjem*
we
Osló, 3. október. Frá fréttaritara Morgunblaósins, J. E. Laure.
NORSKIR hvalveiðimenn hafa sagt sóknamannsins
rangt til um hrefnuveiði sína, allt
frá því að kvótatakmarkanir gengu
í gildi 1976. Hafa þeir sagt veiðina
minni en hún var í raun og veru.
Þetta er ein aðalástæðan fyrir
því, að norskir vísindamenn telja
sig hafa afar takmarkaðan grund-
völl til þess að byggja mat á varð-
andi ástand hrefnustofnsins nú.
Samkvæmt frásögn hafrann-
Ivars Christen-
sens er nú unnið að skýrslu fyrir
sjávarútvegsráðuneytið um fram-
tíðarhorfur í norskum hvalveiðum,
et\ norska stjórnin hyggst taka
afstöðu til þess fyrir lok október-
mánaðar, hvort Norðmenn eigi að
halda áfram að veiða smáhvali.
Talið er, að rangar skýrslur um
hrefnuveiðina hafi einkum verið
gefnar í lok siðasta áratugs.
AP/Slmamynd.
Geimskutlan Atlantis hefur sig á loft frá Kennedy- geimrannsóknarstöðinni
um hádegisbil í dag ásamt fimm manna áhöfn.
Atlantis farin í
jómfrúrferðina
Reynt að bjarga 9 ára göml-
um dreng í Mexíkóborg
VONIR stóðu til þess í dag, að takast
mætti að bjarga 9 ára gömlum dreng
og afa hans, sem báðir hafa legið
fastir undir mörgum tonnum af grjóti,
sem hrundi yfir þá, er jarðskálftinn
mikli reið yfir Mexíkóborg fyrir
tveimur vikum. Heyrðist enn til
drengsins, þar sem hann sló af og til
með veikum mætti en taktfast í stein
til þess að láta vita af sér.
Björgunarmenn töldu, að dreng-
urinn væri orðnn of veikburða til
þess að geta talað. Hann heitir
Luis Ramon Mazerati og er talið
víst, að hann hafi festst þarna
ásamt afa sínum, Luis Maldonado,
sem er 57 ára að aldri.
Kanaveralhöfða, 3. október. AP.
GEIMFERJAN Atlantis fór í jóm-
frúrferð sína í kvöld, en yfir ferðinni
hvflir mikil leynd, þar sem hún er
farin á vegum bandarískra hermála-
yfirvalda.
Atlantis flytur tvo fjarskipta-
hnetti fyrir herinn. Eru þeir svo
fullkomnir, að eigi mun vera unnt
að trufla fjarskipti, sem um hann
fara.
Leyndi hvíldi yfir geimskotinu
og fyrirfram aðeins gefið upp
ákveðið tímabil, sem geimskotið
færi fram á. Er það gert í tilvikum
sem þessum til að gera sovézkum
njósnahnöttum á braut og njósna-
skipum undan Bandaríkjaströndum
erfiðara að fylgjast með skotinu og
ferð Atlantis.
Um borð í Atlantis eru fimm
geimfarar og eru þeir allir her-
menn. Gert er ráð fyrir að ferjan
lendi í Edwards-flugstöðinni í Kali-
forníu eftir fjóra til fimm daga.
Aðeins verða gefnar út tvær frétta-
tilkynningar meðan á ferðinni
stendur, sú fyrri fjórum stundum
eftir flugtak og sú seinni sólarhring
fyrir lendingu. Komi upp alvarlegir
örðugleikar meðan á geimferðinni
stendur verður frá þeim skýrt.
Brezka utanríkisráðuneytið:
Veður
víða um heim
Lagit H»st
Akureyri 3 skýjaó
Amsterdam 15 21 heiðskírt
Aþena 16 27 heiðskírt
Barcelðna 27 mistur
Bertm 12 23 heiöskirt
BrUssei vantar
Chicago 1 17 skýjaó
Dubhn 10 16 heióakirt
Feneyjar 21 þokumóöa
Franklurt 12 21 skýjað
Qenf 14 28 heiöskírt
Helsinki 11 17 skýjað
Hong Kong 22 27 heiðskírt
Jerúsalem 15 28 heiðskirt
Kaupmannah 14 21 heiðskírt
Las Palmas 26 léttskýjaö
Lissabon 17 24 skýjað
London 17 21 skýjað
Los Angeles 18 32 heiðskirt
Lúxemborg 22 skýjað
Malaga 27 skýjað
Mallorca 30 Iðttskýjað
Miami 26 30 skýjað
Montreal 5 15 heiðskfrt
Moskva 10 15 heiöskirt
Mew Vork 15 22 rigning
Osló 12 13 skýjað
Paris 18 26 skýjað
Peking 10 28 heiðsklrt
Reykjavík 10 léttskýjað
RiA de Janeiro 16 28 skýjað
Rómaborg 14 31 léltskýjað
Sfokkhólmur 10 19 skýjað
Sydney 16 22 heiðskírt
Tókýó 20 25 heiöakfrt
Vfnarborg 9 22 heiðskírt
Þórshðtn 10 súld
Mikið tjón í eldi en
engin röskun á starfi
London, 3. október. AP.
ELDUR kviknaði í einni álmu brezka utanríkisráðuneytisins árla í morgun.
Eldsupptök eru ókunn en talið ótrúlegt að um skemmdarstarfsemi hafi verið
að ræða. Engan sakaði og tókst að ráða niðurlögum eldsins á 45 mínútum.
Mikið tjón varð á tveimur efstu hæðum hússins og þaki þess.
Eldsins varð vart klukkan 5:15
í morgun að staðartíma. Húsið er
í aðeins 300 metra fjarlægð frá
embættisbústað forsætisráðherra,
en byggingar í nágrenninu voru
aldrei í hættu.
Unnið hefur verið í þrjú ár að
gagngerum endurbótum á þeirri
álmu utanríkisráðuneytisins, sem
eidurinn kom upp í. Engin skjöl
voru í álmunni og bruninn hefur
engin áhrif á starfsemi ráðuneyt-
Samkomu-
lag um
nýjar
GATT-
viðræður
Zttrkh, 3. október. Frá Önnu Bjarnadóttur,
fréttariUra Morgunblaósins.
AÐILDARRKI GATT, alþjóðsam-
taka um tolla og viðskiptamál kom-
ust að samkomulagi um að halda
nýjar viðræður um GATT á auka-
fundi sem haldinn var í Genf nú í
vikunni og lauk á miðvikudagskvöld.
Undirbúningsnefnd háttsettra
embættismanna frá öllum aðild-
arlöndum var skipuð til að fara
yfir efnisatriði og umfang væntan-
legra viðræðna. Hun mun skila
skýrslu á aðalfundi GATT í nóv-
ember og þá verður formleg undir-
búningsnefnd skipuð til að undir-
búa viðræðurnar.
Þorsteinn Ingólfsson, sendifull-
trúi íslands í Genf, sat aukafund-
inn og var ánægður með niðurstöð-
ur hans. Fjölþjóðlegar viðræður
sem kenndar eru við Kennedy og
Tókýó hafa verið haldnar um
GATT síðan þá var fyrst undirrit-
að 1947 og Þorsteinn sagði að nýju
viðræðurnar yrðu í framhaldi af
viðræðum og væru nauðsynlegar
til að styrkja stoðir GATT og frí-
verslunar í heiminum.
isins. Hófst vinna þar í morgun,
nánast eins og ekkert hefði í
skorizt.
Talið er að eldur hafi komið upp
í smíðaefni í byggingunni. Tals-
maður ráðuneytisins segir ekkert
benda til annars en að um slys
hafi verið að ræða.
ERLENT
GENGI
GJALDMIÐLA
London. 3. október. AP.
DOLLARINN ýmist lækkaði í
verði eða hækkaði á gjaldeyris-
mörkuðum í dag. Verð á gulli
hækkaði. Búizt er við að dollar-
inn lækki áfram, a.m.k. fram að
ársfundi Alþjóðagjaldeyrisvara-
sjóðsins, sem hefst í Seoul í
Suður-Kóreu í næstu viku.
í London hækkaði sterlings-
pundið gagnvart dollar, kostaði
1,4222 dollara miðað við 1,4142
dollara í gær. Annars var gengi
dollars á þá leið að fyrir dollar
fengust:
2,6270 vestur-þýzk mörk (2,6440)
2,1563 svissneskir frankar (2,1490)
8,0575 franskir frankar (8,0450)
2,9730 hollenzk gyllini (2.9675)
1.780,00 ítalskar lírur (1.780,00)
1,3687 kanadískir dollarar (1,3650).
í Japan var gengi dollars
skráð á 213,30 jen í dag, miðað
við 213,10 jen í gær. í London
var gengið 213,45 jen í kvöld.
Við
erum
fluttar í
Austurver
Sími 37Í45
F.RVA