Morgunblaðið - 04.10.1985, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER1985
23
í stuttu máli
Vinna Pakist-
anir að gerð
atómsprengju?
Nýju, Delhí, Indlandi, 3. október
BANDARISKUR rannsóknarblaða-
maður, Jack Anderson, sagði í dag,
að háttsettur starfsmaður banda-
ríska sendiráðsins í Nýju Delhí
hefði tjáð sér, að Pakistanir væru
að vinna aö gerð atómsprengju og
hefðu fengið tæknilega aðstoð frá
Kína.
I viðtali við indversku frétta-
stofuna UNI sagði Anderson, að
pakistanska sprengjan væri í
líkingu við þær sem smíðaðar
voru í seinni heimsstyrjöldinni.
Anderson vinnur að gerð heim-
ildamyndar í Indlandi. Hann
neitaði að gefa upp nafn banda-
riska sendiráðsmannsins, en tals-
maður sendiráðsins kvaðst ekkert
geta um málið sagt.
AP/Símamynd
Tilbúnir til átaka
Tveir skriðdrekar af gerðinni T-54, sem smíðaðir eru í Sovétríkjunum, sjást hér tilbúnir til átaka. Mynd
þessi var tekin á suðurmörkum Trípólíborgar í Líbanon fyrr í vikunni, er hersveitir vinstrimanna, sem
Sýrlendingar styðja, hófu mikla sókn inn í borgina í því skyni að einangra þar múhameðstrúarmenn úr
hópi sunnita. Á þriðja hundrað manns hafa verið drepnir í bardögunum við Trípólí undanfarnar vikur.
Afganistan:
Bandarísk-
ur blaöamað-
ur drepinn
Moskvu, 2. október. AP.
BANDARÍSKUR blaðamaður, sem
starfaði fyrir blaðið Arizona Repu-
blic var drepinn „með skömm“ í
bardaga í Afganistan milli stjórnar-
hermanna og uppreisnarmanna.
Skýrði sovézka fréttastofan Tass frá
þessu í dag.
Tass sagði, að blaðamaðurinn
hefði heitið Charles Thornton og
hefði hann komið til Afganistan
ásamt þremur öðrum bandarísk-
um fréttamönnum. Tass greindi
ekki frá nöfnum þeirra. Haft er
eftir áreiðanlegum heimildum á
meðal uppreisnarmanna, að bif-
reið fréttamannanna hefði lent á
jarðsprengju 25. september sl. og
hefðu hinir þrír særzt.
Sátu inni í 19 ár
án réttarhalda
Dacca. Bangladesh, 3. okt AP.
MAL tveggja manna, sem hand-
teknir voru fyrir tilraun til ráns
fyrir 19 árum, kom fyrst fyrir rétt
núna nýlega, en mennirnir hafa
setið í fangelsi allan tímann, að
sögn blaðsins New Nxtion í Dacca.
Þrír aðrir, sem teknir voru
höndum vegna sama máls, létust
í fangavistinni.
Mennirnir fimm voru hand-
teknir í september 1966 í borginni
Rangpur í norðurhluta Bangla-
desh, um 350 km fyrir norðan
Dacca. Hin langa bið stafaði af
því að málsskjölin fóru á flæking
milli lögsagnarumdæma.
Þrettán handtekn-
ir eftir ryskingar
Kaupmannahðfn, 3. október AP.
ELLEFU manns voru handteknir í
Kaupmannahöfn seint í gærkvöldi,
þegar lögregla varð að ganga á
milli hópa Dana og Tyrkja, sem
lent hafði saman í rimmu eftir
kjötkveðjuhátíð, sem efnt var til í
borginni.
Grjóti var kastað að lögregl-
unni, þegar hún blandaði sér í
átökin, en þar leiddu saman hesta
sína 3-400 ungmenni úr félags-
skap, sem nefnir sig „Green Jac-
kets“, og tyrkneskir innflytjend-
ur. „Grænjakkarnir" hafa ítrekað
sætt ámæli fyrir áreitni í garð
Tyrkja og annarra innflytjenda.
Atökin hófust eftir skemmtun
sem haldin var í borginni. Ekki
er vitað til, að nein meiðsl hafi
orðið.
Rýr loðnuafli
OhIó, 3. október. Frá Jan Erik Laure,
fréttaritara Morgunblaðsins.
VEIÐAR á sumarloðnu hafa gengið
illa sökum erfiðs tíðarfars og afli
verið rýr. Aðeins hefur tekist að
veiða tæplega þriðjung af leyfileg-
um afla eða um 97.000 tonn af
320.000 tonna aflakvóta.
Loðnuverksmiðjurnar hafa
sumar hverjar hætt að taka á
móti og lokað hjá sér vegna þess,
hve lítið hráefni hefur borist.
Kærðu sig ekki
um hæfnispróf
París, 2. október AP.
MIKLAR truflanir urðu á járn-
brautarsamgöngum í Frakklandi I
gær vegna verkfalls lestarstjóra
hjá ríkisjárnbrautunum. Þeir voru
að mótmæla ákvörðun stjórnar
fyrirtækisins um aö láta þá ganga
undir hæfnispróf.
Eftir fimm klukkustunda fund
með lestarstjórunum ákvað
stjórnin að falla frá áformum
sínum.
I sumar hafa 83 látist í járn-
brautarslysum í Frakklandi.
Enn rafmagnslaust eftir Gloríu
Conaectkut, 3. okL Frá rréttaritaro MorguBblaósina, Jóni Ásgeiri Siguréssyni.
TALIÐ ER að fellibylurinn Gloría hafi valdið tjóni sem nemur rúmlega 210
milljónum bandaríkjadollara (8,6 milljörðum íslenskra króna) er hann geis-
aði á austurströnd Bandaríkjanna í lok síðustu viku. Um 250.000 heimili hafa
nú verið rafmangslaus í sex daga frá því að fellibylurinn fór yfir.
Skólabörn hafa átt frí frá skóla-
göngu þar frá því á fimmtudag í
síðustu viku. Maturinn þiðnar í
frystinum og mörg hús eru ljós-
laus þegar kvöldar. Frá því að
fellibylurinn Gloria geystist eftir
austurstönd Bandaríkjanna hafa
hundruð þúsunda heimila á Long
Island og Connecticut verið raf-
magnslaus með öllu.
Rafmagnsleiðslur hér eru born-
ar uppi af tréstaurum og setja
svip á margar bandarískar borgir.
Gloria blés og pústaði í lok síðustu
viku svo að tré og staurar brotn-
uðu eins og eldspýtur. Núna heyrir
maður víða hljóðið í vélsögum þar
sem fara húseigendur og iðnað-
armenn önnum kafnir við að hluta
í sundur fallin tré. Þeir tína líka
saman afslitnar trjágreinar og
lauf, pakka síðan öllu saman i
snyrtilega böggla sem bíða á
gangstéttarbrúnunum eftir
hreinsunardeildinni.
Rafveitunum hefur ekki enn
tekist að greiða úr flækjunni.
Starfsmenn rafveitnanna eiga
langan og strangan vinnudag um
þessar mundir. Allir sem vettlingi
geta valdið, eru úti í viðgerðum. í
gærmorgun hvatti öldungardeild-
arþingmaður einn til þess að raf-
veitunum verði leyft að ljúka öll-
um viðgerðum, áður en hafizt er
handa um rannsókn á tildrögum
rafmagnsleysisins í kjölfar Gloríu.
Ýmsir stjórnmálamenn hafa
krafist opinberrar rannsóknar á
því hvort viðbúnaður vegna ham-
fara Gloriu hafi verið ófullnægj-
andi og sérstaklega hvort raf-
veitufyrirtækin hafi verið illa
undirbúin. Það hafa heyrzt
óánægjuraddir vegna þessa lang-
varandi rafmagnsleysis. Menn
telja það með ólíkindum hve seint
vinnst að koma orkunni á aftur.
TOS verksmiðju r
Sýning á TOS
• Rennibekkjum
• Fræsivélum • Borvélum
Fulltrúarfrá umboðinu,
Axel Nordahl og Leo Madsen frá
Maskinhuset Leo Madsen a/s og
Jaroslav Lapka frá TOS verksmiðjunum
í Tékkóslóvakíu verða á staðnum.
Opiö frá kl. 13—18 á morgun, laugardag.
Viö bendum mönnum sérstaklega á að notfæra sér
þetta ágæta tækifæri til aö kynna sér eiginleika
Maskinhuset
Leo Madsen a/s
TOSvéla.