Morgunblaðið - 04.10.1985, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER1985
í Arizona er maður...
Kvikmyndir
Sæbjörn Valdimarsson
Laugarásbíó:
LaerisYeinn skytlunnar —
The Kid and the Gunfighter 'h
Leikstjóri Romy Suzara. Kvik-
myndataka Bhal Dauz. Aðstoóar-
leikstjóri Boy Gloria. Aðalhlutverk
Lito Lapid, Connie Angeles. Fil-
ippseyjar 1985.
Aldrei fór það svo að maður
ætti ekki eftir að upplifa það að
sjatvestra, ættaðan frá Austur-
löndum fjær, með spænskumæl-
andi Filippseying í hlutverki
indjánans, tekinn í Arizona,
byggðan á handriti sem er slík
hörmung að í samanburði gæti
argasta kung-fu-mynd verið
samin af Hemingway. Einhverj-
ir aulatilburðir eiga að kallast
leikur. Tónskáldið virðist undir
áhrifum frá Morricone og Hall-
birni.
Lærisveinn skyttunnar (sem ég
áleit, óséð, duggunarlitla barna-
mynd!) hlýtur þann vafasama
heiður að teljast vesælasta mynd
sem undirr. hefur séð um árabil.
Það er ekki glóra í neinu, sýning
hennar hérlendis hlýtur að stafa
af meiri háttar mistökum og
flokkast undir slys. Hálfu
stjörnuna hlýtur hún fyrir
stórkarlalegar hláturrokur úr
börkum áhorfenda — þær komu
reyndar á dramatískustu augna-
blikunum.
w
4
Hlustarvernd
Heyrnarskjól
Vesturgötu 16, sími 13280
Baldursgötu 14
í Reykjavík
VIÐ OPNUM
í DAG
23939
MorKunblaðið/Þorkell
Hluti hljómsveitarinnar The Voice, frá vinstri Össur Hafþórsson, bassi,
Davíð Traustason söngur og Gunnar Eiríksson gítar. Einar Berg Árnason,
fjórða mann hljómsveitarinnar, vantar á myndina.
Æskulýðsráð Reykjavíkur:
íslensk hljómsveit á rokk-
hátíð í Kaupmannahöfn
ÆSKULÝÐSRÁÐ Reykjavíkur hef-
ur á undanförnum árum haft sam-
starf við hin höfuðborgarsvæðin á
Norðurlöndum um unglingamenn-
ingu og tónlist. Á vegum þessara
aðila eru á hverju ári haldnar
rokkhátíðir og í ár verður hljóm-
sveitin The Voice fulltrúi Reykja-
víkur á rokkhátíð, sem að þessu
sinni er haldin í Kaupmannahöfn.
Þetta mun vera í fjórða sinn sem
íslensk unglingahljómsveh tekur
þátt í rokkhátíðunum. Fyrst fór
Tappi tíkarrass til Osló, þá Von-
brigði til Stokkhólms og í fyrra fór
Pax Vobis til Helsinki.
í tengslum við rokkhátíðirnar
hafa verið haldnir fundir þar
sem fjallað hefur verið um stöðu
unglingamenningar og tónlistar
á Norðurlöndum. Samstarfið
hefur notið styrkja frá norræna
menningarsjóðnum auk annarra,
t.d. mun Nomus styrkja þátttöku
okkar í rokkhátíðinni í Kaup-
mannahöfn. Nú í haust var ráð-
inn starfsmaður með aðsetur í
Osló til að hafa umsjón með
þessu starfi og undirbúa ný verk-
efni. Á afmælisári Reykjavíkur
1986 er fyrirhugað að halda
mikla tónlistarhátið ungs fólks í
Reykjavík og verður unglinga-
hljómsveitum á Norðurlöndum
boðið að senda fulltrúa sína á
hana. (Orfréttatilkynnintíu)
Frá Áfengisvamaráði:
Veitingahúsa-
áfengið varasamt
Að gefnu tilefni vekur Afengis-
varnaráð athygli á eftirfarandi sam-
þykkt sem gerð var á 16. þingi
Landssambandsins gegn áfengis-
bölinu 19. nóv. sl.:
„Ákveðin fylgni virðist vera
milli áfengisneyslu á veitingahús-
um annars vegar og slysatíðni
hins vegar. Þetta sést m.a. á því að
í þjónaverkfallinu 1973 minnkuðu
slys stórlega, skv. upplýsingum
Slysavarðstofunnar, þó að sala hjá
ÁTVR væri þá með venjulegum
hætti.
1 verkfalli BSRB í ár voru útsöl-
ur ÁTVR lokaðar. Hins vegar voru
veitingahús opin. Tjón af völdum
slysa minnkaði ekkert framan af
Siglingamálastofnun
þessum tíma. Hins vegar dró veru-
lega úr slysafjöldanum tvær síð-
ustu vikurnar en flest veitingahús
voru þá orðin uppiskroppa með
vínföng. Dragi hver af þessu þá
ályktun sem honum sýnist.
En þing Landssambandsins
gegn áfengisbölinu beinir af þess-
um ástæðum þeirri áskorun til
stjórnvalda að þau reisi sem
sterkastar skorður við vínveiting-
um veitingahúsa. í því sambandi
minnum við á tillögur nefndar um
mörkun opinberrar stefnu í áfeng-
ismálum þar sem bent er á hvern-
ig draga megi úr tjóni af völdum
áfengisneyslu."
(Fréttatilkynning.)
ríkisins:
Samþykkt bann gegn lág-
geislavirkum efnum í sjó
NÍUNDI aðalfundur samningsaöila
Lundúnasamningsins, um varnir
gegn mengun sjávar, var haldinn
dagana 23.-27. september sl. í
aðalstöðvum Alþjóðasiglingamála-
stofnunarinnar, IMO, í London.
Fundinn sátu fulltrúar 41 ríkis,
auk áheyrnarfulltrúa ýmissa ann-
arra ríkja alþjóðlegra stofnana og
samtaka. Fyrir íslands hönd sátu
fundinn þeir Magnús Jóhannesson,
siglingamálastjóri, og Gunnar H.
Ágústsson, deildarstjóri.
Auk venjulegra aðalfundar-
starfa lágu ýmis mál fyrir fundin-
um þ. á m. skýrslur og tillögur um
losun geislavirkra efna í hafið.
Umræður um losun lág-geisla-
virkra efna í hafið, sem heimil er
skv. ákvæðum Lundúnasamnings-
ins, tóku verulegan hluta fundartí-
mans. Fyrir fundinum lá skýrsla
sérfræðinga um mat á áhrifum
frá losun geislavirkra efna í hafið
hingað til, svo og ef um áfram-
haldandi losun þessara efna yrði
að ræða. Eftir miklar umræður var
samþykkt ályktun með 26 atkvæð-
um ggn 6, en 7 aðildarrríki sátu
hjá, að ekki skuli losa lág-geisla-
virkum efnum í hafið, þar til að
sýnt hafi verið fram á það, að slíkt
sé ekki skaðlegt, m.ö.o. er sönnun-
arskyldu snúið við frá því sem áður
var.
Tillaga að þessari ályktun var
borin fram af 16 aðildarríkjum.
Voru öll Norðurlöndin 5 í þessum
hópi. Á móti ályktuninni voru:
Kanada, Frakkland, Sviss, Suður-
Afríka, Bretland og Bandaríkin.
Umræður um förgun á há-geisla-
virkum efnum með því að grafa
þau niður í hafsbotninn voru einn-
ig á dagskrá, en þar eð nánast allur
fundartíminn fór í umræður um
losun lág-geislavirkra efna í hafið
varð að fresta umræðum um þetta
málefni til næsta aðalfundar
haustið 1986.
Þriðja málið sem ísland varðar
mjög missir fiskineta eða annarra
þrávirkra plastefna í sjóinn. ís-
land óskaði þess að þetta mál yrði
kannað. Var sérstök ályktun sam-
þykkt um könnun og undirbúning
þessa máls fyrir næsta aðalfund
Lundúnasamningsins að ári.
(FrétUUIkynning.)
Leiðrétting
í grein minni í Morgunblaðinu
2. október sl. var meinleg vélritun-
arvilla í handriti, sem eðlilega
kom óbreytt í blaðinu. í greininni
stóð að íbúafjöldi Suður-Afríku
hefði verið 5'A milljón árið 1950.
Hér átti að vera árið 1900.
Ég bið Morgunblaðið og lesend-
ur þess afsökunar á þessari villu.
Gísli Gunnarsson
VZterkurog
k-J hagkvæmur
auglýsingamiðill!
[ raðauglýsingar — raöauglýsingar — raóauglýsingar
Seltjarnarnes
Baldur FUS Seltjarnarnesi hefur opiö hús nk. föstudagskvöld í sjálf-
stæöíshúsinu á Austurströnd 3. Opiö veröur frá 21.00 til 01.00 og
.•*o«iuhi viu cnid in ao mæta.
BaldurFUS.
Akurnesingar
Fundur um bæjarmálelni veröur haldinn í Sjálfstæöishúsinu v/Heiðar-
braut sunnudaginn 6. október kl. 10.30. Bæjarfulltrúar Sjálfstæöis-
flokksins mæta á fundinn.
Sjálfstæöisfélögin Akranesi.
Seltirningar - viötalstímar
Fulltrúar meirihluta sjálfstæöismanna i bæjarstjórn veröa með viö-
talstíma í Félagsheimili Sjálfstæöisflokksins, Austurströnd 3, Seltjarn-
arnesi, nk. laugardag 5. október 1985 kl. 14.00-16.00 e.h.
Til viðtals verða bæjarfulltrúarnir:
Magnús Erlendsson,
Ásgeir S. Ásgeirsson,
Jónatan Guöjónsson.
Bæjarbúar eru hvattir til aö lita inn og ræöa viö bæjarfulltrúana um
bæjarmálin.
Sjálfstæöisfélögin á Seltjarnarnesi.
Almennur félagsfundur
Landsmálafélagsins Varðar
Almennur félagsfundur veröur haldinn í Valhöll, Háaleitisbraut 1,
fimmtudaginn 10. október kl. 20.30. A fundinum veröur m.a. kjörin
þriggja manna kjörnefnd vegna stjórnarkjörs.
Landsmálafélagiö Vöröur.
Skagfirðingar
Aöalfundur Víkings FUS í Skagafiröi veröur haldinn i Sæborg föstudag-
inn 4. október kl. 20.30.
Dagskrá:
1. Venjuleg aöalfundarstörf.
2. Inntakanýrrafélaga.
3. ðnnurmál.
Ungt fólk hvatt til aö f jölmenna.
Stjórnin.
Framhaldsskóla-
nemendur
Skólanefnd Heimdallar stendur fyrir opnu húsi í kjallara Valhallar föstu-
daginn 4. október kl. 21.00. Lóttar veitingar og tónlist. Mætiö á staöinn
og eigiö huggulega kvöldstund meö skemmtilegu fólki.
Nefndin.