Morgunblaðið - 04.10.1985, Síða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER1985
fclk í
fréttum
Tískuþátturinn i bresku út-
gáfunni af Vogue-tímaritinu
þennan mánuðinn fjallar um loð-
feldi og þann fatnað sem kaldri
veðráttu tilheyrir. Til þess að full-
komna umhverfið var flogið til
íslands og haldið í Jökulsárlón á
Breiðamerkursandi. Þar sátu fyr-
irsæturnar fyrir í pelsum og eins
og segir í meðfylgjandi texta
„gaddaskóm sem hæfa íslensku
umhverfi"!
Það var ljósmyndarinn Hans
Feurer sem tók myndirnar og ef
einhverjir skyldu vera að íhuga
möguleikann á að kaupa sér svona
loðfeldi virðist verðið vera frá
hundrað þúsundum og upp í eina
milljón íslenskra króna.
Islandi
Dóttir
Racquel
Welch með
aöalhlutverkið
Tahnee, dóttir Racquel
Welch, hefur nú
hreppt sitt fyrsta stóra
hlutverk í kvikmynd. Það
er í myndinni „Cocoon“
þar sem hún leikur veru
frá annarri plánetu sem
leitar að vinum sínum er
brotlentu óviljandi á jörð-
unni. íbúarnir á plánet-
unni sem Tahnee kemur
frá hafa fundið ráðið til
eilífs ungdóms og það á
eftir að valda skondnum
misskilningi. Að sjálf-
sögðu eru í myndinni
hugljúf augnablik á milli
Tahnee og jarðnesks pilts
sem hún hittir á ferð
sinni.
Nú er bara að bíða og
sjá hvort henni tekst eins
vel til og móðurinni.
Friðrik Eiríksson hættir eftir 25 ár í Pólýfónkórnum
„Æfingarnar hafa alltaf
verið tilhlökkunarefnia
Ef fólk hefur komið nálægt
starfi Pólýfónkórsins þá er
það næstum öruggt að menn
kannast við Friðrik Eiríksson
sem um 25 ára skeið hefur verið
virkur kórfélagi og mestan hlut-
ann verið starfandi formaður
kórsins. Friðrik lét hinsvegar
nýlega af því starfi og við tók
Kristján Már Sigurjónsson.
„Það er mál til komið að ég
fari að hvíla mig eftir 25 ár og
einnig að gefa öðrum tækifæri
til að vinna að þeim málum sem
fylgja formannsstarfinu," sagði
Friðrik Eiríksson þegar blað-
amaður hafði samband við hann.
„Það er aldrei að vita hvort ég
kem til með að syngja með kórn-
um seinna, en í vetur a.m.k. hvíli
ég mig, síðasta starfsár var
óvenju langt."
— Þú hefur ekki séð eftir tím-
anum í sönginn þessi ár?
— Nei, æfingarnar hafa alltaf
verið mikið tilhlökkunarefni og
gaman að glíma við hin ýmsu
verk tónbókmenntanna sem kór-
inn hefur verið með á söngskrám
— Eitthvað uppáhaldsverk?
— Ætli mér hafi ekki fundist
skemmtilegast að æfa Mattheus-
arpassíuna og H-molI-messu
Bachs.
— Starf formannsins?
— Það er fyrst og fremst fólg-
ið í því að hlúa að starfseminni
bæði félagslega og hvað söng-
starfið varðar. Það er dálítið
meira og víðtækara en að boða
til stjórnarfunda.
— Þú heldur ekki að það verði
erfitt að sitja heima í vetur þeg-
ar félagarnir fara að hefja upp
raustina?
— Eflaust koma þær stundir
að eitthvert tóm á eftir að skap-
ast í huganum en það er svo
margt annað sem hægt er að
gera.
Friðrik Eiríksson fyrrverandi for-
maður og félagi í l’ólýfónkórnum
ásamt núverandi formanni Kristjáni
Má Sigurjónssyni.