Morgunblaðið - 04.10.1985, Side 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER1985
Q) -17 © 19Q5 Universal Pfess Syndicate
, JóhanncL; hvob lact ég j?ci borga mikiá, ^
5em ég veit ckki sjúkdómsgreinin^unaá?
V
ást er...
... aðfara í báts-
ferð áfljótinu
TM Rea. U.S. Pat. Oft.—all rights reserved
01985 Los Angeles Times Syndicate
Þú hlýtur að vera teikni- Tek ekki í mál að ræða
kennarinn hans Lilla, það skilnað skal ég segja þér!
sé ég á teikningunum hans.
Ilúfur eru ekki meindýr.
Dúfur eru ekki meindýr
Háttvirti Velvakandi.
Ég skrifa vegna fréttar í Morg-
unblaðinu þess efnis, að hreinsun-
ardeild Reykjavíkurborgar, hafi
fjarlægt dúfnahús nokkurra
drengja, og vegna ummæla Péturs
Hannessonar, deildarstjóra, þar
sem hann lætur hafa eftir sér, að
almennt séu dúfur taldar meindýr!
Undirritaður hefur alla tíð verið
áhugamaður um fugla, bæði villta
og tamda. Vegna þess hóf ég
dúfnahald sem ungur drengur, og
hef verið með dúfur með stuttum
hléum, fram á þennan dag. Að
dúfur séu meindýr, er fráleitt og
að þær mörgu milljónir manna og
kvenna, sem stunda dúfnarækt,
víðsvegar um heiminn séu að ala
meindýr! Ég veit ekki hvernig í
ósköpunum menn geta sagt svona
vitleysu. Sannleikurinn er auðvit-
að sá, að öll dýr geta borið sýkla sé
þrifnaðar ekki gætt í umgengni
við þau, en að stimpla þau mein-
dýr fyrir það, er fráíeitt.
Af gefnu tilefni langar mig að
geta þess, að hérlendis er þrótt-
mikil hreyfing, og mikiö unglinga-
starf í sambandi við bréfdúfur og
kappflug þeirra. Aðalhvatamaður
í því starfi var Jón Guðmundsson í
Álfabrekku við Suðurlandsbraut.
Hann stofnaði, ásamt öðrum,
Bréfdúfnafélag Reykjavíkur og
hratt af stað fyrstu keppni með
bréfdúfur á íslandi, þann 28. ágúst
1982. Þess má og geta að Jón Guð-
mundsson á heiðurinn af því að
Bræðrapartur við Engjaveg, var
fenginn undir dúfnastarf. Þá er
komið að kjarna málsins, öryggis-
leysi strákanna, sem eru að stíga
sín fyrstu spor í dúfnaræktinni.
Því miður komast alltof fáir fyrir
í þessu húsi. Vil ég því hvetja
hreinsunarmenn til að sýna skiln-
ing, þótt dúfnahúsin hjá strákun-
um séu ekki háreistar hallir, þá
hýsa þau lifandi dýr sem þeim eru
kær. Auk þess ber að hafa það í
huga að það fer mikill timi í
dúfnaræktina hjá strákunum sem
er sannarlega vel varið.
Meó vinsemd.
Gísli Rúnar Maríusson
Þessir hringdu . . .
Ásmund í vinnu-
veitendasambandið
Inga hringdi og lagði fram þá
tillögu að næstu framkvæmda-
stjórar Vinnuveitendasambands
íslands yrðu þeir Ásmundur Stef-
ánsson forseti Alþýðusambands
íslands og Kristján Thorlacius
formaður stjórnar BSRB. Þeirra
starf hefði verið íslenskum vinnu-
veitendum í hag en þeir hefðu
svikið verkafólk.
Hún sagði jafnframt verra að
Guðmundur J. Guðmundsson
formaður Verkamannasambands
íslands og verkalýðsfélagsins
Dagsbrúnar væri ekki hótinu
skárri en hinir kumpánarnir.
Endurflytjið útvarps-
messu séra Gunnars
María Guðmarsdóttir hringdi og
tók undir orð Öldu Maríu i garð
séra Gunnars Björnssonar frí-
kirkjuprests. „Ég held að þurfi að
yngja upp í safnaðarstjórninni.
Einnig ætti að endurflytja út-
varpsmessu Gunnars frá því 25.
september og leyfa fólki að hlusta
á ræðuna sem olli fjaðrafokinu.
Vinna fyrir hálfu kaupi
— borga fullt í strætó
Ragnheiður hringdi og tók ein-
dregið undir orð Helgu sem birt-
ust í Velvakanda fyrir skömmu.
Þar er fjallað um sérstök fargjöld
með strætisvögnum fyrir ungl-
inga. „Mér finnst fargjaldið of
hátt fyrir þennan aldurshóp,
þ.e.a.s. 12—16 ára. Krakkarnir fá
ekki fullt kaup fyrir sína vinnu
þótt þeir vinni á við fullorðið fólk
og því mikið óréttlæti að þeir
þurfi að borga fullt fargjald: Ég
vona að þeir sem hafa umsjón með
þessum málum taki þessa hug-
mynd til vandlegrar athugunar."
Kvæði Hallgríms
Tómas Helgason frá Hnífsdal
hringdi og sagði að kvæðið
„mannsævin" sem birtist í Velvak-
anda fyrir skömmu væri eignað
Hallgrími Péturssyni. Reyndar
hefðu bæði ljóðin komið á prent í
almanaki þjóðvinafélagsins 1917,
en þar væri ekki tekið fram hver
ætti síðara ljóðið.
Þar sem nokkrar prentvillur
slæddust inn í ljóð Hallgríms birt-
ist það hér aftur og eru hlutaðeig-
endur beðnir afsökunar á mistök-
unum.
Fæðast, gráta, reifast, ruggast,
ræktast, berast, stauta, gá.
Tala, leika, hirtast, huggast.
Herðast, vaxa, þanka þá.
Elska, biðja, giftast, greitt,
girnast annað, hata eitt.
Mæðast, eldast, andast, jarðast,
ævi mannsins svo ákvarðast.
(Einnig þekkist að „biðla“ standi fyrir
„biðja“.)
Hvar fást öryggis-
læsingar á eldhússkápa?
Helgi Kristinsson hringdi og
sagðist hafa leitað lengi að örygg-
islæsingum á eldhússkápa, til að
halda börnum frá þeim. Hann hef-
ur leitað í byggingavöruverslunum
og á þeim stöðum sem sérhæfa sig
með vörur fyrir börn. „Þetta er
mjög bagalegt þar sem í skápun-
um eru gler, hreinsiefni og aðrir
hlutir sem eru hættulegir börnum.
Núna er ár æskunnar og nauðsyn-
•egt að tryggja öryggi hennar, sem
reyndar alltaf áður. Því hvet ég
verslanir sem selja þessar örygg-
islæsingar að Iáta vita af sér.“
I