Morgunblaðið - 04.10.1985, Qupperneq 48
KEILUSALURINN
• OPINN 10.00-02.00
HIEKKURIHBMSKEÐJU
FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER1985
Að sameinast um umferðaröryggi er eitt af markmiðum umferðarvikunnar sem hefst á mánudaginn. Til að sýna samstöðuna gefa
borgarstjórnarfulltrúar merki vikunnar ásamt fjölda unglinga, sem heimsótti þá á borgarstjórnarfund í gærkvöldi. Morgunbiaðið/Daníet
c % $ mr v s ^
Samstaða um umferéarviku íReykjavík
UMFERÐARVIKA í Reykjavík hefst næstkomandi mánudag og
er markmið hennar að borgarbúar sameinist um bætta umferðar-
menningu og fækkun slysa. I umferðarvikunni verður meðal annars
lögð áherzla á umferðaröryggi barna með virkri þátttöku þeirra
og stefnt er að „slysalausum degi“ föstudaginn 11. október.
En það er meira á döfinni hjá yngri borgurunum. Hópur unglinga
úr félagsmiðstöðvum borgarinnar heimsótti fund borgarstjórnar í
gærkvöldi til að kynna sér störf borgarfulltrúa. Tilefnið er „borgar-
stjómarfundur unga fólksins" þann 24. október næstkomandi vegna
árs æskunnar. Una eitt hundrað unglingar fylgdust með umræðum
í þann rúma hálfa tíma, sem fundur borgarstjórnar stóð yfir.
Meðal þess, sem bar á góma á fundinum í gærkvöldi var umferðar-
öryggi barna og fyrirhuguð umferðarvika í því tilefni.
Sjóflutningarnir milli íslands og Bandaríkjanna:
Rannsókn vestra á við-
skiptaháttum skipafélaga
OPINBER stofnun í Bandaríkjun-
um, Federal Maritime Commission,
hefur hafið rannsókn á meintum
ólöglegum viðskiptaháttum íslenskra
skipafélaga vestra, að því er Bruce
Donbrowski, talsmaður FMC, sagði
I símtali við blaðamann Morgun-
blaðsins í gær. Rannsóknin tekur til
allra þátta í viðskiptum íslensku
skipafélaganna við bandaríska aðila
og gæti staðið í margar vikur enn,
að sögn Donbrowskis.
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins eiga hin meintu ólög-
legu viðskipti að hafa verið fólgin
í því, að íslensku skipafélögin hafi
veitt afslætti frá gjaldskrám sín-
um og/eða endurgreitt hluta farm-
gjalda. Reglur FMC mæla hins
vegar svo fyrir, að gjaldskrá sú
sem tilkynnt er til stofnunarinnar,
sé algild og að ekki megi víkja frá
henni í þágu einstakra fyrirtækja,
nema þá að gjaldskráin sé lækkuð
til samræmis við veitta afslætti
eða endurgreiðslur.
Federal Maritime Commission
er opinber eftirlitsstofnun, sem
fylgist með samkeppni og flutn-
Annast Flugleiðir áætl-
unarflug fyrir Arnarflug?
Forstjórar beggja flugfélaganna jákvæöir um þessa
LÍKUR eru á að Flugleiðir taki að sér að annast áætlunarflug Arnarflugs í
vetur, og að Arnarflug leigi Boeing 737-vél sína til leiguflugs erlendis. í sam-
tölum Morgunblaðsins í gær við þá Sigurð Helgason forstjóra Flugleiða og
Agnar Friðriksson forstjóra Arnarflugs kom fram að báðir eru þeir jákvæðir
fyrir því að svo geti orðið.
„Það hefur oftlega verið rætt hér
í stjórninni hvort ekki væri skyn-
samlegt og eðlilegt að félögin ættu
samvinnu um vélanýtingu yfir vetr-
armánuðina, þegar minna er að
flytja, en tækin óbreytt frá sumri,“
sagði Agnar Friðriksson. Hann
sagði að vilji hefði komið fram hjá
báðum aðilum um að gera slíkt, og
nú hefði þetta verið rætt á nýjan
leik. Flugleiðir hefðu iausa vél á
þeim tíma sem Amarflug þyrfti á
að halda tvisvar í viku, auk þess sem
Flugleiðir hefðu lausa vél í eftirmið-
daginn, fyrir þriðju ferðina. „Það
er verið að skoða það núna, hvort
við gætum leigt okkar vél í burtu
yfir vetrarmánuðina, og erum við
reyndar að kanna þrjú leigutilboð,"
sagði Agnar. Hann sagði að þegar
þeir hjá Arnarflugi hefðu skoðað
þessi tilboð og tekið afstöðu til
þeirra, þá myndu þeir væntanlega
hafa samband við Flugleiðir á nýjan
leik.
„Það er nú nokkuð um liðið frá
því að við töluðum síðast saman, en
við lítum þannig á að markaðurinn
tilhögun í vetur
á Islandi sé það lítill að okkur fynd-
ist það skynsamlegt yfir vetrarmán-
uðina að samnýta flotann," sagði
Sigurður Helgason forstjóri Flug-
leiða í samtali við Morgunblaðið í
gær.
Sigurður sagði jafnframt:„Við
erum eiginlega með eina vél til vara
í Evrópufluginu, því við erum með
tvær vélar, en raunar dugar ein.
Við höfum því bæði vélar og flug-
menn til þess að taka að okkur aukin
verkefni yfir veturinn. Við höfum
lýst því yfir að við séum tilbúnir til
viðræðna um þesskonar samvinnu
og tekið undir hugmyndir Arnar-
flugsmanna, en það hefur ekki verið
gengið frá neinu í því sambandi."
ingsgjöldum í siglingum til og frá
Bandaríkjunum. Stofnuninni er
m.a. ætlað að fyrirbyggja hringa-
myndun og þar verður að skrá öll
flutningsgjöld og fá þau staðfest,
að því er Donbrowski sagði.
„ Rannsókn okkar beinist ekki
gegn ákveðnum skipum heldur er
verið að kanna alla þætti sjóflutn-
inga milli íslands og Bandaríkj-
anna,“ sagði hann. „Á meðan rann-
sóknin stendur yfir get ég ekki
gefið upplýsingar um einstök at-
riði hennar, það er stefna þessarar
stofnunar. Eg get hinsvegar sagt,
að ef um væri að ræða ólöglega
afslætti frá skráðu verði þá myndi
rannsóknin einnig taka til þess.“
Donbrowski sagði að byrjað
hefði verið á rannsókninni fyrir
eigið frumkvæði starfsmanna
hennar auk þess sem ábendingar
hefðu borist frá öðrum aðilum.
Hann kvaðst ekki geta svarað því
hvort það hefði verið bandaríska
skipafélagið Rainbow Navigation
Inc. sem hefði vakið athygli FMC
á meintum lögbrotum í sjóflutn-
ingunum en sagði að þar sem
Rainbow Navigation annaðist nú
þessa flutninga þá myndu rann-
sóknarmenn ekkert síður beina
athygli sinni að því fyrirtæki.
Federal Maritime Commission
hefur lagaheimild til að refsa fyr-
irtækjum, sem ekki hlíta reglum
stofnunarinnar, til dæmis með
fjársektum.
VERÐ í LAUSASÖLU 35 KR.
Reynt að
ná eikar-
báti af
hafsbotni
EIKARBÁTURINN Þórunn ÞH frá
Grenivík, sem er 12 lestir að stærð,
hefur legið á hafsbotni í Eyjafirði í
tæpt ár, en nokkrar líkur er á því,
að svo verði ekki miklu lengur.
Eigandi bátsins, Heiðar Baldvinsson,
hefur komið vír í bátinn og hyggst
draga hann upp á yfirborðið, strax
og tækifæri gefst.
Heiðar Baldvinsson sagði í
samtali við Morgunblaðið, að með
aðstoð myndavélar í eigu Stefáns
Hjartarsonar, kafara í Reykjavík,
hefði tekizt að koma vír í bátinn
fyrir skömmu. Þá hefði einnig sézt,
að hann hefði brotnað nokkuð að
framan frá því hann hefði verið
skoðaður fyrir um það bil mánuði
síðan. Það virtist eins og dreki eða
eitthvað þess háttar hefði verið
dregið yfir hann.
„Við bíðum bara eftir hagstæðu
veðri og flóabátnum Drangi til að
gera úrslita tilraunina. Við þurf-
um að nota kraftmikið spil, eins
og er um borð í Drangi og þeir
munu aðstoða okkur, gefist færi
til þess, en veðrið skiptir miklu
máli. Ég er ekkert allt of bjartsýnn
á að þetta gangi, en það er búið
að eyða svo miklum peningum í
tilraunina, að við verðum að
reyna," sagði Heiðar Baldvinsson.
Bjartviðri
sunnanlands
NÆSTU daga er spáð norð-
austlægri átt um allt land. Á
sunnanverðu landinu má búast
við að léttskýjað verði og stillt,
en norðanlands og austan-
verði vætusamara, súld og
jafnvel slydda. Búist er við að
hiti verði 2—6 stig á landinu
norðaustanverðu, en 5—9 stig
á sunnanverðu landinu að deg-
inum til.
Hrognasíld
til Japan
Sjávarafuróadeild Sambandsins er
nú að senda til Japan 35 lestir af
frystri hrognasíld. Er þetta þáttur í
markaðskönnum og mögulegum út-
flutningi á sfld með hrognum. Til-
raunir sem þessi hafa verið gerðar
áður án þess að skila tilætiuðum
árangri. Norðmenn flytja talsvert af
hrognasíld til Japan, en hún er stærri
en íslenzka Suðurlandssfldin.
ólafur Jónsson, aðstoðarfram-
kvæmdastjóri deildarinnar, sagði
í samtali við Morgunblaðið, að
leyfi hefði verið fengið til veiða á
þessari síld í sumar og hefði hún
verið fryst hjá Brynjólfi hf. í
Njarðvíkum. Hann sagði Japani
annars heldur vilja Kyrrahafssíld
verkaða á þennan hátt, en alltaf
væri nauðsynlegt að leita nýrra
markaða. Ennfremur væru Japan-
ir mjög kræsnir á gæði og þyrfti
því að vanda meðferð síldarinnar
alveg sérstaklega. Hann sagði, að
þegar fulltrúar deildarinnar yrðu
staddir í Japan um áramótin, yrði
þessi markaðsmögleiki kannaður
nánar. Hann væri ekki nema hóf-
lega bjartsýnn á að þetta skilaði
árangri, en það væri alltaf rétt að
reyna.