Morgunblaðið - 23.10.1985, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 23.10.1985, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. OKTÓBER1985 5 Frá guðsþjónustunni í Þingrallakirkju. í predikunarstól er staöarprestur, séra Heimir Steinsson. Morgunblaðið/Július MorgunblaðiÖ/Bjarni Biskup íslands, herra Pétur Sigurgeirsson, setur kirkjuþingið. 16. Kirkjuþing íslensku þjóð- kirkjunnar sett á Þingvöllum KIRKJUÞING 1985 hófst í gær með guðsþjónustu í Þingvallakirkju og að henni lokinni setti biskup fslands, herra Pétur Sigurgeirsson, 16. Kirkjuþing íslensku Þjóðkirkjunnar. Meðal kirkjuþingsmanna var Jón Helgason kirkjumálaráðherra. Kirkjuþingið var sett á Þingvöllum í tilefni þess að kirkjan er nú að hefja undirbúning að því að minnast 1000 ára afmælis kristnitöku á ís- landi, á Þingvöllum árið 2000. Séra Jón Einarsson, prófastur í Saurbæ á Hvalfjarðarströnd, predikaði og altarisþjónustu önn- uðust staðarprestur séra Heimir Steinsson og séra Sveinbjörn Sveinbjörnsson, prófastur í Hruna. Þá las Jón Helgason kirkjumálaráðherra ritningar- texta. Að lokinni guðsþjónustu þáðu Kirkjuþingsmenn kaffi í Þingvallabænum, i boði Þingvalla- nefndar og prestshjónanna. Að kaffidrykkju lokinni var gengið aftur til kirkju þar sem biskup íslands lýsti 16. kirkjuþing- ið sett og Jón Helgason kirkju- málaráðherra ávarpaði kirkju- þingsmenn. Biskup fslands, herra Pétur Sigurgeirsson, minntist í upphafi orða sinna tveggja fyrr- verandi kirkjuþingsmanna, sem létust á árinu, séra Gunnars Árna- sonar, fyrrum sóknarprests í Kópavogi, og Þórarins Þórarins- sonar, fyrrum skólastjóra. Síðan sagði biskup m.a.: „Hér byrjaði það - þinghald bæði kirkju og þjóðar. Kristinitakan árið 1000 og stofnun Alþingis 930 eru tveir merkustu atburðir á íslandi. Dag- ur og sól kristnitökuhátíðar er að renna upp. Við héldum þjóðhátíð 1874, Alþingishátíð 1930, lýðsveld- ishátið 1944,- og eftir 15 ár mun renna upp sú fjórða, sem eftir sól- armerkjum að dæma hefur bæði efni og ástæður til að verða þeirra þýðingarmest. - Kristnihátíð - þús- und ára kristnitökuhátíð. - Og nú er ekki ráð nema í tíma sé tekið. Þriggja manna milliþinganefnd hefur starfað til þess að gera frum- drög að undirbúningi, og á sú nefnd að skila áliti á þessu þingi. Af kirkjunnar hálfu má segja, að undirbúningur sé hafinn með þessu Kirkjuþingi, - þess vegna er það sett á Þingvöllum". Kirkjuþing stendur til 31. októ- ber og verða fundir haldnir í Safn- aðarheimili Bústaðakirkju. t dag, miðvikudag, flytur biskup fslands skýrslu kirkjuráðs, sem er fram- kvæmdaraðili Kirkjuþings, og einnig frumvarp til laga um breyt- ingu á lögum um almannafrið á helgidögum kirkjunnar. /01. K. M. Þrír af forystumönnum Landssambands Iðnaðarmanna. Frá vinstri: Sigmar Ármannsson lögfræóingur sambandsins, Sigurður Kristinsson forseti og Þór- ólfur Jónsson framkvæmdastjóri. 41. Iðnþing íslendinga hefst á morgun: Verkmeimtun í ljósi þjóðfélagsbreytinga aðalstef þingsins Sigurður Kristinsson forseti mun ekki gefa kost á sér til endurkjörs BÆIT verkmenntun - aukin hag- sæld, er yfirskrift 41. Iðnþings Is- lendinga, sem verður haldið á Hótel Sögu dagana 24.-26. október nk. Iðnþing kemur saman annað hvert ár og hefur það æðsta vald í málefn- um Landssambands iðnaðarmanna. Á þinginu verður sérstaklega leitast við að skoða stöðu iðnmenntunar á landinu í Ijósi þjóðfélagslegra breyt- inga, en auk þess verður ályktað um ýmis hagsmunamál einstakra iðn- greina og iðnaðarins almennt. Enn- fremur verður fjallaö um iðnaðar- stefnu og iðnþróun og stefnuskrá landssambandsins tekin til umræðu í því sambandi. Yfir 200 fulltrúar eiga seturétt á Iðnþingi nú. Á þinginu verður einnig kosinn nýr forseti og varaforseti Lands- sambands iðnaðarmanna. Núver- andi forseti, Sigurður Kristinsson málarameistari, og varaforseti, Sveinn A. Sæmundsson, blikk- smíðameistari, munu ekki gefa kost á sér til endurkjörs. Sigurður Kristinsson hefur verið forseti landssambandsins í 12 ár. Einn maður hefur lýst sig fúsan til að bjóða sig fram til forseta, Harald- ur Sumarliðason, byggingameist- ari, en hann hefur átt sæti í stjórn landssambandsins frá 1976. Meðal málaflokka, sem fjallað verður um á þinginu, eru iðnaðar- lögin, skattamál, og útflutnings- og markaðsmál, tæknistofnanir iðnaðarins, innkaupastefna, lána- mál og fjármögnum fyrirtækja, „svört atvinnustarfsemi", fríversl- un og tollamál. Að sögn landssam- bandsmanna má búast við fjörug- um umræðum um skattamálin, einkanlega gildi þess að taka upp virðisaukaskatt. Skoðanir eru mjög skiptar um það mál innan Landssambands iðnaðarmanna. Þá verða iðnaðarlögin tekin til umræðu og þeirri spurningu velt upp á yfirborðið hvort til greina komi að afnema eða breyta löggild- ingu starfa í iðnaði. Landssamband iðnaðarmanna eru samtök atvinnurekenda í lög- giltum iðngreinum. Um 3 þúsund rekstraraðilar í iðnaði eru innan vébanda sambandsins, en starfs- fólk í löggiltum iðngreinum er talið vera um 18 þúsund talsins. LATTU HENDUR STANDA FRAM ÚR ERMUM Frá Herragarðinum. -fierra- GARÐURINN AÐALSmET19 S12234 ^Sjjjj^Góóan daginn!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.