Morgunblaðið - 23.10.1985, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 23.10.1985, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR 23. OKTÖBER1985 7 „Kvennasmiðjan“ í Seðlabankabyggingunni: 70 starfsstéttir taka þátt í sýningu kvenna á vinnumarkaðinum KVENNASMIÐJAN, sýning kvenna i vinnumarkaðinum, opnar í nýja Seðlabankahúsinu kl. 11.00 á morg- un, fimmtudag 24. október, en þi eru tíu ir liðin fri kvennafrídegin- um. Tilgangurinn með sýningunni er að sýna hversu víðtæk atvinnu- þátttaka kvenna er og er kjörorð hennar „Konan - Vinnan - Kjörin". Á blaðamannafundi er haldinn var til kynningar Kvennasmiðjunni kom fram að yfir sjötíu starfs- stéttir taka þátt í sýningunni. Jó- hanna Sigurðardóttir alþingis- maður og ein þeirra, sem sæti eiga í undirbúningsnefnd kvennafrí- dagsins, sagði að megináhersla 24. október yrði lögð á launamál kvenna. „Við viljum að gestir sýn- ingarinnar sannfærist um að hjól ið ber nafnið „Kvennasmiðjan" og er síðar ætlunin að binda það inn og gefa út sem eitt blað eftir sýn- inguna. Hver dagur verður helgað- ur ákveðinni starfsstétt þar sem sérstök áhersla verður lögð á störf hennar. T.d. munu snyrtifræðing- ar bjóða gestum upp á ókeypis snyrtingu þann daginn og eins munu aðrar stéttir gera slíkt hið sama í viðkomandi störfum. Einn- ig kom fram á fundinum að skólum hefur verið boðið að koma með nemendur sína á sýninguna síð- asta dag hennar og yrði heimsókn- in þáttur í starfskynningarnámi þeirra. Kostnaður sýningar nemur um einni milljón króna að sögn nefndarmanna en húsnæðið er frítt. Hönnuðir sýningarinnar eru Á blaðamannafundi er haldinn var til kynningar „Kvennasmiðjunni" — sýningu kvenna i vinnumarkaðinum. Fri vinstri: Ragnheiður Harvey, framkvæmdastjóri sýningarinnar, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, borgarfulltrúi, Álf- heiður Ingadóttir, blaðamaður, Jóhanna Sigurðardóttir, alþingismaður, Ingibjörg R. Guðmundsdóttir, skrifstofumað- ur, Elísabet Kochran og Ólöf Þorvaldsdóttir, hönnuðir sýningarinnar, og Þórunn Gestsdóttir, blaðamaður. Starfsstúlkur fri Pósti og síma vinna hér við uppsetningu síns biss og eru að setja upp gamalt símaborð fri Húsavík. atvinnulifsins geti ekki snúist án þátttöku kvenna. Við höfum eftir megni hvatt konur til að leggja niður vinnu á morgun og vonum við að kvenmenn muni sýna sem mesta samstöðu á þessum degi.“ ’85 nefndin skipaði undirbún- ingsnefnd sl. vor til að annast skipuiagningu kvennafrídagsins og hefur nefndin lagt áherslu á þrennt: Útifund á Lækjartorgi, Kvennasmiðju í Seðlabankabygg- ingunni og vinnustöðvun á kvenna- frídaginn sjálfan. Við opnun sýningarinnar flytur Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir ávarp. Skemmtidagskrár verða á hverju kvöldi auk tískusýninga þar sem íslenskir kventískuhönnuðir sýna framleiðslu sýna. Veitinga- sala verður á staðnum og gefið verður út dagblað með fréttum frá sýningunni og munu kven- blaðamenn sjá um þá útgáfu. Blað- þær Elísabet Kochran og Ólöf Þorvaldsdóttir. Framkvæmda- stjóri hennar er Ragnheiður Harv- ey. { undirbúningshópnum eru sjö konur: Álfheiður Ingadóttir blaða- maður, Annie G. Haugen félags- ráðgjafi, Arndís Steinþórsdóttir viðskiptafræðingur, Ingibjörg R. Guðmundsdóttir skrifstofumaður, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borg- arfulltrúi, Jóhanna Sigurðardóttir alþingismaður og Þórunn Gests- dóttir blaðamaður. Sýningin verður opin virka daga kl. 16.00-22.00 og um helgar kl. 14.00-22.00. Á morgunn verður sýningin þó lokuð á meðan á úti- fundinum stendur. Aðgangseyrir á „Kvennasmiðjuna" er 120 krónur fyrir fullorðna, 80 krónur fyrir unglinga og ellilífeyrisþega og frítt fyrir börn innan 12 ára aldurs. Sýningunni lýkur 31. október. Verðbréfaþing íslands: Stofnaðilar valdir og verðbréfakerfið í mótun UNNIÐ er að því að starfsemi Verð- bréfaþings íslands geti hafist innan tíðar, samkvæmt upplýsingum Gunn- ars Helga Hálfdánarsonar, varafor- manns Verðbréfaþings íslands. For- maður Verðbréfaþings er Sigurgeir Jónsson, en ekki reyndist unnt að ná í hann, þar sem hann er erlendis. „Undirbúningurinn er kominn vel á veg, og þessa dagana er verið að leggja drög að því að velja stofnaðila Verðbréfaþings," sagði Gunnar Helgi, „og við stefnum að því að ljúka því fyrir lok mánaðar- ins. Auk þess er verið að vinna að verðbréfakerfinu sem slíku. Ætl- unin er að hafa það eins einfalt og hægt er, og það verður keyrt með aðstoð Reiknistofu Háskól- ans. Kerfið verður elektrónískt, en ekki uppboðskerfi eins og í kaup- höllum almennt." Gunnar Helgi sagði að unnið væri að því að kerfið gæti orðið starfhæft í næsta mánuði og þá yrði jafnframt búið að velja fyrstu flokkana til skráningar. Gunnar Helgi var spurður hvort ströng skilyrði yrðu sett fyrir þátt- töku í Verðbréfaþingi: „Stjórnin er ekki búin að móta endanlega skoðun sína þar að lútandi, þó hniga mörg rök að því að ströng skilyrði verði sett fyrir þátttöku," sagði Gunnar Helgi Hálfdánarson. Sumargleðin 15 ára trískogtjörug sumargleainna d*gUrtínli*wr varinn ítalski Si puríö' heillar Kamfra' — Dans Sö»9ur __ Grín — G'eö' Bæjarins besta skemmtun er í IBIRCaVD Ath.: Uppselt var um sídustu helgi, svo pantid í tíma í síma 77500 eina Sumar- gledistund. WAT Matsedill helgarinnar Rækjupaté Sinnepskryddaður svínahryggur Ananas rjómarönd í súkkulaðiísbollum Pianósnillingurinn Ingimar Eydal leikur fyrir matargesti

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.