Morgunblaðið - 23.10.1985, Page 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR 23. OKTÓBER1985
128444)
2ja herb.
MIÐBRAUT. Ca. 65 fm kjallara-
íbúö. Rúmgóö falleg eign. Verö
1600-1700 þús.
ARAHÓLAR. Ca. 65 fm á 2. hæö
í lyftuhúsi. Vönduð eign. Út-
sýni. Verð 1700 þús.
GRETTISGATA. Ca. 40 fm á 2.
hæö í góðu steinhúsi. Laus
strax. Verð 1300 þús.
3ja herbergja
FLYORUGRANDI. Ca. 80 fm á
3. hæð í blokk. Falleg eign.
Laus 1. des nk. Verö 2,2 millj.
BARMAHLÍÐ. Ca. 70 fm kjall-
araíbúö. Sérinng. Góö íbúð.
Verö 1700þús.
ÁLFHÓLSVEGUR KÓP. Ca. 85
fm á 2. hæð í fjórb. Bílskúr og
vinnupláss. Verö 2,3 millj.
KRÍUHÓLAR. Ca. 85 fm á 6.
hæð. Nýtt eldhús o.fl. Falleg
eign. Verð 1800 þús.
ÁSBRAUT KÓP. Ca. 80 fm á
3. hæö í blokk. Nýlegt eldh.
Verð 1900 þús.
EIRÍKSGATA. Ca. 75 fm á 1.
hæð í steinhúsi. Nýstandsett
falleg eign. Verö 1900 þús.
KLEPPSVEGUR. Ca. 87 fm á
3. hæö í háhýsi. Falleg eign.
Verö2,1 millj.
4ra-5 herbergja
EYJABAKKI. Ca. 115 fm á 1.
hæö. Sérgaröur. Mjög vönduö
og falleg eign. Verð 2,4 millj.
HVASSALEITI. Ca. 110 fm á
efstu hæð í blokk. Bílskúr. Verö
2,6 millj.
STÓRAGERÐI. Ca. 100 fm á
efstu hæð í blokk. Bílskúr. Fal-
leg eign.Verö 2,7 millj.
FELLSMÚLI. Ca. 115 fm á efstu
hæö í blokk. Falleg eign. Mikil
sameign. Verö: Tilboö.
Sérhæöir
SKIPASUND. Ca. 97 fm á hæö
auk 3 herb í risi. Tvíbýlishús.
Mögul. á 2 íbúðum. Bílskúr.
Veröum3,1-3,3millj.
VIÐ LAUGARÁS. Ca. 125 fm
sérhæö. Bílskúr fylgir. Laus
fljótt. Verö3,2millj.
MIÐBRAUT SELTj. Ca. 115 fm
á 1. hæð í þríb. Bílskúr. Falleg
eign. Verö 3-3,1 millj.
FÁLKAGATA. Ca. 98 fm á 1.
hæö og auk þess 2ja herb. ibúö
í kjallara. Sérinng. í hvora íbúö.
Laus fljótt. Verö 3 millj.
LINDARSEL. Ca. 150 fm hæö
auk 50 fm í kjallara. Nýleg
vönduö eign. Verö 4,7 millj.
HÁVALLAGATA. Ca. 140 fm
neöri hæö í þríbýli. Góö eign.
Verð4millj._____________
Raðhús
BREKKUBYGGD. Ca. 60 fm á
einni hæð. Gott hús. V. 1900 þ.
MELBÆR. Ca. 200 fm á 2
hæöum. Nýtt glæsil. hús. Bein
sala eöa skipti á minna. Hagst.
lán áhv. Verð 4,5 millj._
Einbýlishús
GLJUFRASEL. Ca. 190 fm auk
50 fm bílsk. og 72 fm tengi-
byggingar. Laust strax. Falleg
eign. Verö um 5,3 millj.
DALSBYGGD GB. Ca. 270 fm
ser er ein og hálf hæö. Þetta er
hús í sérfl. hvaö frágang varöar.
Bein sala. V. 6,6-6,7 millj.
LAUGARÁSVEGUR. Ca. 250 fm
sem er 2 hæöir og kj. Bílskúr.
Eign í toppstandi og mikið
endurnýjaö. Verð: Tilboö.
ESKIHOLT. Ca. 385 fm á besta
staö. Selst fokhelt aö innan en
frág. utan.
REYNIHVAMMUR KÓP. Ca. 220
fm hæö og ris. Bílskúr. Fallegt
hús. Verö5,4millj.
SSZZ & SKIP
Oanwl Árnaton, Iðgg. fast.
Örnótfur örnóHtton, sðlustj.
V^terkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamiðill!
Grein um ísland
í alþjóðlega tíma-
ritinu ISLANDS
í OKTÓBERHEFTI alþjóðatíma-
riLsins „Islands", eöa Eylönd, er
löng grein um ísland, sem rituö er
af Bandaríkjamanni að nafni Peter
Stark. Greinin er prýdd fjölda
Ijósmynda. Höfundur bindur frá-
sögn sína að miklu leyti við jökla-
ferð sem hann fór í með samlanda
sínum og Ijósmyndara ásamt ís-
lenskum fararstjóra. En í upphafi
gýtur hann gestsauga til ýmissa
þátta mannlífsins á landinu.
Höfundur átti von á því að
hitta fyrir á íslandi veðurbarna
sjómenn með ísað, saltmengað
skegg og búralega smala, og
vonlegt var að honum brygði i
brún þegar hann kom inn á ís-
lenskan skemmtistað og upplifði
endursýningu á Animal House
eftir Fellini. Honum segist svo
frá:
„Upp úr 11 á kvöldin fyllast
diskótekin af fyrirgangssömum
ungmennum, ýmist klædd eftir
nýjustu Evróputísku eða í fjöl-
skrúðugum pönkarafatnaði, þar
sem öllu mögulegu ægir saman,
jökkum úr hlébarðaskinni, leð-
urbrókum og stuttpilsum.
Krakkarnir veltast hver um ann-
an þveran, hrópa og garga, klípa
og kreista, og dansa eins og vit-
firrtir eftir útlendum tónum.
Þar má finna karaktera, sem
standa vaggandi yfir hlandskál-
unum á klósettinu sönglandi am-
eríska slagara, miðaldra lista-
menn sem vilja vita hvort þú
þekkir Jack Kerouac, eða stjórn-
Þessi mynd fylgir greininni og sýnir leiðsögumanninn Ólaf Baldursson
þar sem hann stendur á einum af skriðjöklum Vatnajökuls.
málatýpuna, sem vellir látlaust
upp úr sér spakyrðum um al-
þjóðapólitík."
Landslagi íslands þykir höf-
undi best lýst með því að líkja
því við sviðssetningu sérfræð-
inga í Hollywood á framandi
plánetu. Þá kemur fram í grein-
inni að höfundur hefur smakkað
skyr, sem honum finnst minna
sig á þykka jógúrt. Saga íslend-
inga er rakin í framhjáhlaupi, og
„holan til helvítis", eldfjallið
Hekla, fær sína umfjöllun.
En að uppistöðu til rekur höf-
undur ferðalag þeirra þremenn-
inga upp á Vatnajökul og lýsir
þar ævintýrum, sem þeir rata í.
Tvær nýjar barna-
bækur frá Björk:
Kalli segir
frá og Tóta
tætubuska
BÓKAÚTGÁFAN Björk hefur sent
frá sér 2 nýjar barnabækur, sem eru
prentaðar í Prentsmiðjunni Odda hf.
í fjórum litum og endursagðar úr
dönsku af Stefáni Júlíussyni rit-
höfundi og fyrrverandi yfirkennara.
Kalli segir frá er 15. bókin í
safninu Skemmtilegu smábarna-
bækurnar. Tóta tætubuska er
barnabók í léttum kviðlingum,
segir í frétt frá útgáfunni. Sagan
er gömul, en þó alltaf ný, að því
er segir í bókarkynningu frá for-
laginu. Höfundur er Kamma Laur-
ents. Vísurnar eru auðskildar
hverju barni í þýðingu Stefáns og
þær má syngja við lagið Kátir
voru karlar. Teikningar eru eftir
danska listamanninn R. Storm-
Petersen.
LAUGAVEGI26,4. H/ED.
SÍMI621533
FLYÐRUGRANDI. 2|a herb. 65 m’.
ÆSUFELL. 2ja herb. 60 m'.
ENGJASEL. 2ja herb. 60 m>.
HRAUNB/ER. 2ja herb. 65 m’.
LYNGMÓAR GB. 2 ja herb. 70 m'.
REYKJAVfKURV. HF. 2ja herb. 50 m'.
STÓRAGERDI. 3ja herb.
LAUGAVEGUR. 3ja herb 60 m’.
BOGAHLÍD. 3ja herb. 90 m>.
KÁRSNESBR. 3ja herb. 85 m>.
FÍFUSEL. 4ra herb. 100 m’.
SPÓAHÓLAR. 4ra herb. 110 m’.
KJARRHÓLMI. 4ra herb. 110 m’.
STÓRHOLT. Sérhæð 160 m’.
ÁLFHÓLSVEGUR. Sérhæð 140 m’.
HOLTAGERDI. Sérhæð 106 m>.
KÁRSNESBR. KÓP. Sérhæö 114 m’.
REYKJAVfKURV. HF. Sérhæö 140 m>.
UNUFELL. Raöhús 137 m>.
AKRASEL. Elnbýli 300 m’.
FRAKKASTlGUR. Einbýll 170 m’.
HÁTÚN. Einbýll 270 m>.
BLESUGRÓF. Einbýli 210 m>.
STEKK ARKINN HF. Einbýli 200 m>.
IDNADARHÚSN. IHVERAGERÐI.
VERSLUN ARHÚSN. IHVERFISGÖTU.
VERSL.HÚSN. IVESTMANNAEYJUM.
90 m* HÚSN. V. LAUGAVEG
Gott atvinnuhúsnæöi hentar vel
tyrir heiidsölu-, skrlfstotu- eöa
hárgreiöslustofu.
Páll Skúlason hdl.
Sendiherra Bandaríkjanna
opnar sýningu á Selfossi
Selfossi 18. október.
SÝNINGIN Architecture and Rene-
wal var formlega opnuð í Safnahús-
inu á Selfossi í gærkvöldi 17. októ-
ber. Sýningin er samvinnuverkefni
Menningarstofnunar Bandarikjanna
og Arkitektafélags ísiands.
Það var Nicholas Ruwe sendi-
herra Bandaríkjanna sem opnaði
sýninguna með þeim orðum, að
sýningin varpaði ljósi á það
hvernig unnið væri gegn þeirri
þróun að eldri borgarhlutar verið
niðurníðslu að bráð. En sýningin
lýsir í máli og myndum endurbót-
um sem gerðar hafa verið á eldri
bæjarhlutum í Bandarikjunum.
Steingrímur Jónsson safnvörður
bauð sendiherrann og fylgdarlið
hans, Hush Ivory frá Menningar-
stofnuninni og Friðrik Brekkan
blaðafulltrúa, velkomna. Stein-
grímur minnti á að á Selfossi
væru fyrirliggjandi svipuð verk-
efni og benti í því sambandi á
Tryggvaskála, en hugmyndir hafa
komið fram um að endurnýja
hann.
Opnun sýningarinnar var fyrsta
opinbera stjórnsýsluverk Nicholas
Ruwe sendiherra utan höfuðborg-
arsvæðisins. Sendiherrann er mik-
ill áhugamaður um laxveiði og
hefur komið hingað til lands und-
anfarin 25 ár til laxveiða. Hann
var reyndar minntur á það af
Steingrími safnverði að ölfusá
væri á sumrin full af laxi og stað-
urinn vænlegur til heimsókna.
Sýningin sem sett var upp á
Selfossi hefur farið um 7 Evrópu-
lönd og uppsetningin á Selfossi er
sú síðasta í röðinni en áður hefur
hún verið sett upp í öllum lands-
fjórðungum. Að lokinni sýning-
unni hér verður hún tekin niður og
gefin Arkitektafélagi íslands.
Sig. Jónsson
Útsölu-Rambó
Kvikmyndir
Sæbjörn Valdimarsson
Tónabíó: Eyðimerkurhermaðurinn
— Tuareg
Leikstjóri: Enzo G. Castellari.
Aðalhlutverk: Mark Harmon, Rit-
za Brown.
Nú er röðin komin að Rambo
karlinum hjá ítölskum undir-
málskvikmyndagerðarmönnum
og hugmyndaraufurum. Nú stela
þessir sómamenn sem sagt
Rambó-myndauppskriftinni og
þó þær séu ekki merkilegar í
rauninni þá verða þær það í
samanburði við Eyðimerkurher-
manninn.
Efnisþráðurinn er í stuttu
máli sá að hirðingjaforinginn og
tuareginn Gacel leggur upp í
hefndarherferð einn síns liðs
þegar örm yfir’'öld ráðast inn á
heimili hans. Þar eru tveir
flóttamenn. Annar er drepinn,
hinn, sem er fyrrverandi lands-
höfðingi, tekur Gacel uppá sína
arma og kemur úr landi. Upp-
hefst nú sláturtíð á tjaldinu.
Líkt og búast mátti við frá
hendi þessara kvikmyndagerð-
armanna er um ósköp líflausa og
ófrumlega framleiðslu að ræða.
Mikið er drepið en öll átök
bragðlítil og meinlaus, a.m.k.
þegar stórdrápsmyndir eins og
First Blood I og II eru hafðar í
huga. Það eina sem vekur at-
hygli áhorfandans er stórbrotið
og hrikalegt landslangið. Það er
álíka tignarlegt og mannskapur-
inn er óburðugur.
Sagt er að tuaregar séu með
stoltustu og blóðþyrstustu þjóð-
flokkum mannkynsins. Mega því
kvikmyndagerðarmenn þessir
þakka sínu sæla á meðan hirð-
ingjarnir komast ekki í mynd-
ina.
Djúpt er á efnisskránum í
Tónabíói. Það er hvað iðnast við
að forsmá þetta sjálfsagða
hjálpargagn.