Morgunblaðið - 27.10.1985, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 27.10.1985, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. OKTÓBER1985 Mikið vatnsveður á Siglufirði: Aurskriður lokuðu vegum og vatn flæddi inn í hús Siglufirði, 26. október. MIKIÐ vatnsveður hefur verið hér á Siglufírði og hefur vatnselgurinn valdið skemmdum bæði á húsum og vegum. Miklar aurskriður féllu á veginn bæði austan og vestan við Strákagöng í gær og lokaðist vegur- inn af þeim sökum. Unnið hefur verið að viðgerð á veginum og er búist við að henni Ijúki dag. Að sögn stöðvarstjórans í Skeið- fossvirkjun fór vatnsborðið um 30 sentimetra yfir það sem eðlilegt er. Hvanneyrará stíflaðist og flæddi inn alla Hvanneyrarbraut og inn í hús víða i bænum. Fyrir utan vegaskemmdir hefur vatns- elgurinn valdið talsverðu tjóni á húsum hér í bænum. Meðal annars varð tjón á nýju íþróttabygging- unni, sem fylltist af aur og grjóti. Er þetta eitthvert mesta vatnsveð- ur sem hér hefur komið í manna minnum. Fréttaritari ar um 7,2 % VERÐLAGSRÁÐ hefur samþykkt 7,2% hækkun á útsöluverði gasolíu. Hver lítri hækkar um 80 aura, úr 11,10 í 11,90 kr. Georg Ólafsson verðlagsstjóri segir að hækkunin hafí verið heimiluö vegna hækkunar á innkaupsverði olíunnar. Kristján Ragnarsson formað- Sagði Kristján að svo virtist sem ur Landssambands íslenskra út- ekki væri sama hver ætti í hlut vegsmanna sagði, þegar álits hjá Verðlagsstofnun því LÍU hans var leitað á hækkuninni, væri ekki enn búið að fá svar við að markaðsverð á olíu hefði hækkað og þess vegna væri ekk- ert við hækkuninni að segja. Viðskiptabankamir: Lánveitingar til sjávarútvegs takmarkaðar við 75 % afurðalán Geti fyrirtækin ekki starfað á þeim grundvelli, verða þau bara að loka, segir Jónas Haralz, bankastjóri Landsbankans beiðni sinni um staðgreiðsluverð á olíu sem Verðlagsstofnun hefði verið sent í sumar. Olíufélögin sóttu um hækkun olíu vegna þess að þau þurftu að kaupa olíu á hærra verði á al- mennum markaði þar sem olíu- laust var að verða í landinu en olía fékkst ekki afgreidd frá Sovétríkjunum. Að sögn Georgs kom síðan í ljós að orðið hafði almenn hækkun á gasolíu. Hann sagði að meðalverð birgða í landinu væri orðið um 7% hærra en var við síðustu verðákvörðun, auk þess sem Bandaríkjadollar hefði hækkað um 1,6% á sama tíma. Ypsilon-ralliÓ: Hörkukeppni um efstu sætin ÞEGAR þremur sérleiðum var ólokið í Ypsilon-rallinu var staðan mjög tvísýn og hafði verið hörku- keppni um efstu sætin frá byrjun, aðeins sekúndur skildu keppendur að á einstökum sérleiðum. Félög- unum Þórhalli Kristjánssyni og Sigurði Jenssyni á Talbot Sunbeam Lotus hafði þó tekist að smáauka forskot sitt, en þeir náðu fljótlega forystu í keppninni. Er Morgunblaðið fór í prentun höfðu þeir 40 sekúndna forskot á bræðurna ólaf og Halldór Sigurjónssyni á Escort. Slíkt þykir lítill munur í rallkeppni. Þessar tvær áhafnir voru í sér- flokki, en mikil barátta var um næstu sæti á eftir. Aðeins 40 sekúndur skildu næstu þrjá bíla að, en Jón Ragnarsson og Rúnar Jónsson voru í þriðja sæti. Einn keppnisbíll eyðilagðist í gær. ók Eiríkur Friðriksson Escort sín- um útaf. Staðan eftir sérleið við Svartagil: Þórhallur 54,56 mínút- ur í refsingu, ólafur 55,36, Jón 59,29, Þorsteinn Ingason 59,01, Ásgeir Sigurðsson 59,29 mínútur. MorgunblaðiÖ/Gunnlaugur Rögnvaldsson „Það þýðir víst ekki annað en að gefa hressilega í núna,“ sagði Þórhallur Kristjánsson fyrir keppni. Hann hefur staðið við orð sín og stefndi í gær hraðbyri aðlslandsmeistaratitlinum í rallakstri. Gasolía hækk- Viðskiptabanakarnir hafa nú tekið þá ákvörðun að takmarka lán til sjáv- arútvegsins við afurðalán, sem nemi 75% af áætluðu skilaverði. Stjórn- endur þeirra telja sig ekki lengur geta fjármagnað taprekstur með lán- veitingum og segja að gangi fyrirtæk- in ekki við þessa kosti verði þau að hætta rekstri. Þetta kom fram í ræðu Jónasar Haralz, bankastjóra Landsbank- ans, á aðafundi Samtaka fisk- vinnslustöðvanna á föstudag. Jón- as sagði, að skuldbreytingu fyrir- tækja í sjávarútvegi, bæði við opinbera lánsjóði, banka og aðra viðskiptavini, væri nýlega lokið og nú yrði að taka upp eðlilega við- skiptahætti. Nú væru afurðalán 75% af áætluðu skilaverði og í erlendum gjaldeyri. Áður hefðu afurðalánin verið með þeim hætti, að hluti þeirra hefði verið í er- lendri mynt, endurkeyptur af Seðlabankanum og ofan á þann hluta hefði síðan komið viðbótar- lán úr viðskiptabönkunum, mis- hátt hlutfall fasta hlutans. Nú væri hvorki meira né minna en 75% af áætluðu skilaverði lánað. Væri fyrirtæki í fjárhagsvandræð- um og afurðalánin dygðu ekki gætu stjórnendur þeirra komið í bankann og fengið fyrirgreiðslu til skamms tíma, sýndu þeir fram á, að erfiðleikarnir væru aðeins tímabundnir. Gætu fyrirtæki ekki gengið á þessum grundvelli yrðu þau bara að loka. Það væri ekkert sem bankarnir gætu gert eða gerðu til þess að halda fyrirtækjum gangandi, því þá væru þau bersýni- lega rekin með tapi og bankarnir gætu ekki staðið undir taprekstri. Þetta væru breytt viðhorf frá þvf, sem áður var, því á erfiðleikatíma- bilinu frá 1982 til loka skuldbreyt- ingar, hefði fyrirtækjum verið haldið gangandi vegna þess, að einhverjar aðgerðir hefðu verið framundan, gengis- og skuldbreyt- ingar. Nú væri þessu lokið og sjáv- arútvegurinn yrði að starfa við þær aðstæður, sem hefðu verið myndaðar. Gæti hann það ekki, væri það ekki á færi bankanna að halda honum gangandi og engum, greiði gerður með því. Þess vegna væru ströng fyrirmæli um að það skyldi ekki gert. Nafn drengsins sem beið bana DRENGURINN, sem lést þegar hann varð fyrir vörubifreið á Höfn í Hornafirði, hét Sævar Þór Vals- son, til heimilis að Hæðargarði 4, Nesjum í Hornafirði. Hann var ellefu ára, fæddur 17. apríl 1973. Sævar heitinn var á leið úr skóla- sundi, þegar hann varð fyrir vöru- bifreið á Hafnarbraut í Höfn í Hornafirði. Atvinnuráðstefna íÓlafsvík: Sjónvarpað beint til bæjarbúa Ólafsrík, 26. október. í MORGUN hófst hér atvinnumála- ráðstefna á vegum bæjarstjórnar, atvinnumálanefndar Ölafsvíkur og samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi. Halldór Ásgrímsson, sjávarút- vegsráðherra, opnaði ráðstefnuna með ítarlegri ræðu um fiskveiði- stefnuna. Um hádegi höfðu 12 manns kveðið sér hljóðs, en jafn- framt umræðum um sjávarútvegs- mál verða framsögur um ýmis önnur mál, er varða atvinnulíf í ólafsvík. Á annað hundrað manns eru á ráðstefnunni, sem er sjónvarpað beint til allra bæjarbúa um kapal- kerfí Fréttaritari Von á Mikka mús á skjáinn á næstunni SAMNINGAR hafa tekist milli sjón- varpsins og bandaríska fyrirtækisins Walt Disney um kaup á efni frá fyrirtækinu. fslensk böm mega því eiga von á því á næstunni að sjá nokkrar helstu teiknimyndapersón- urnar á skjánum hér, svo sem Mikka mús, Andrés önd, Plútó og aðra góða. Þá var samþykkt í útvarpsráði á föstudaginn að hefja í janúar- mánuði 1986 beinar útsendingar í sjónvarpinu á einskonar „maga- zín-þætti“ undir stjórn Ómars Ragnarssonar, þar sem reynt verður að gera helstu þáttum þjóð- lífsins, fréttum, menningu og list- um og íþróttum skil. Þetta sagði Inga Jóna Þórðardóttir, formaður útvarpsráðs, blaðamanni Morgun- blaðsins. Sagði hún að þátturinn myndi verða sendur út vikulega til að byrja með, undir nafninu „Á liðandi stundu“. Inga Jóna sagði að méiningin væri að inn í þennan þátt kæmu umfjöllunarefni sem verið hefðu i öðrum þáttum sjónvarpsins, svo sem það efni sem verið hefur i Glugganum og fleiri þáttum. Þá sagði Inga Jóna að rætt hefði verið á þessum fundi með hvaða hætti hægt yrði að haga útsend- ingum á nýársnótt nk. en hug- myndir væru uppi um að eftir miðnætti yrði skemmtiprógramm í beinni útsendingu, þar sem ýmsir kæmu við sögu. Sagði hún að verið gæti að hliðsjón yrði höfð af þeim þætti, sem var í beinni útsendingu á nýársnótt síðastliðinni í útvarp- inu, en þó væru hugmyndir þar að lútandi ekki fullmótaðar. Þá var ákveðið að vera með beina útsendingu á gamlárskvöld frá áramótabrennu og mun leikhópur- inn Svart og sykurlaust aðstoða við þá dagskrárgerð. Inga Jóna sagði að gengið hefði verið frá dagskrá hátíðardaganna á fundin- um. Ákveðið væri að jólaleikritið yrði „Bleikar slaufur", sjónvarps- leikrit Steinunnar Sigurðardóttur, og á jóladag og annan í jólum yrði sýnd mynd um Jóhannes Kjarval, I tilefni þess að 100 ár
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.