Morgunblaðið - 27.10.1985, Blaðsíða 61

Morgunblaðið - 27.10.1985, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. OKTÓBER1985 61 veggina, úr dýrum viði sem hafði verið afsýrður eða á einhvern hátt meðhöndlaður til að fá gamla og heimilislega áferð. Þessu var skil- að í bundnum knippum uppað hús- dyrunum. Þaðan hvarf það síðan og varð af talsvert uppistand. Loks var afi spurður hvort hann hefði nokkuð orðið var við þennan fína við sem hefði átt að leggja við húsdyrnar. Nei, hann sagðist ekki hafa séð neinn fínan við, að vísu hefði legið þarna fyrr um daginn eitthvað búnt af kalkvistum, en hann hefði fjarlægt það af lóðinni og hent því útí tunnu. Og neitaði algerlega að trúa því að þetta væri einhver fokdýr og fínn viður, hann hefði sjálfur verið timbur- maður um árabil og þekkti muninn á traustum góðum viði og ein- hverju handónýtu fúaspreki. Yngsti sonur afa var skírður Ginar eins og hann, ég var fyrstur af barnabörnunum til að vera skírður í höfuðið á honum, og í anda þess sætis sem hann skipaði í fjölskyldunni áttu Einararnir eftir að verða nokkru fleiri. Það var hægt að taka hópmyndir af honum ásamt nöfnum sínum síðar meir þegar ættin kom saman. Það er mikill sjónarsviptir af manni eins og Einari Kristjáni Þorbergs- syni. En hann var búinn að lifa í hartnær heila öld og vissi manna best sjálfur að þannig yrði það ekki að eilífu. Við hin sem eigum minninguna um hann kveðjum mikinn höfðingja með virðingu og söknuði. Einar Kárason Á morgun verður jarðsunginn frá Áskirkju afi okkar, Einar Kr. Þorbergsson, Vesturbrún 28, og viljum við minnast hans með þess- um fáu línum. Afi fæddist að Tungu í Dalamynni í Nauteyrar- hreppi, Norður-lsafjarðarsýslu, 18. júlí 1891. í mörg ár vann hann við sjósókn, en síðar vann hann hjá Kaupfélagi ísfirðinga. Árið 1920 kvæntist hann Sigríði Valdi- marsdóttur og eignuðust þau átta börn, Valdimar, Camillu, Salvar, Braga, Bryndísi, Kristínu, Birnu og Einar. Alltaf var gaman að spjalla við afa, sérstaklega um gamla daga, því frá þeim tíma hafði hann svo margt að segja. Afi hafði gaman af að lesa góðar bæk- ur og átti hann mikið af þeim. Ár- v ið 1965 lést amma okkar. Ári seinna fluttist afi til Reykjavíkur og var til að byrja með hjá Bryn- dísi dóttur sinni yfir vetrarmán- uðina, en á sumrin var hann hjá Braga syni sínum í Hveragerði og síðustu árin var hann alveg hjá Bryndísi. Um síðastliðin áramót veiktist hann snögglega og náði sér ekki upp úr þeim veikindum, og fyrir u.þ.b. tveimur vikum versnaði honum og vissi maður þá að hverju stefndi, og lést hann á Borgarspítalanum að kvðldi 19. október. Okkur langar til að þakka starfsfólki deildar B-6 fyrir alveg einstaka umönnun og elskulegheit við afa okkar og einnig við okkur, sem komum til hans, og sérstak- lega síðustu dagana. að lokum vilj- um við þakka afa fyrir allar þær samverustundir, sem við áttum með honum um dagana. Sigga, Téta og Valdimar. Blómastofa FriÖfinns Suðurlandsbraut 10 108 Reykjavík. Simi 31099 Opið öll kvöld tll kl. 22,- einnig um helgar. Skreytingar viö Öli tilefni. Gjafavörur. Ólöf Jónsdóttir, Egils- stöðum — Minning Fædd 23. júní 18% Dáin 22. október 1985 ólöf fæddist á Egilsstöðum á Völlum 23. júní 1896, dóttir hjón- anna Jóns Bergssonar bónda, kaupmanns og póstafgreiðslu- manns á Egilsstöðum fæddur 21. maí 1855, dáinn 9. júlí 1924 og konu hans Margrétar Pétursdóttur fædda á Brimnesi í Seyðisfirði 28. mars 1865 dáin 16. júlí 1944, Sveinssonar bónda og alþingis- manns í Vestdal á Seyðisfirði. Börn þeirra hjóna voru 9, fimm drengir og fjórar stúlkur. ólöf var sjötta barn þeirra hjóna. Systkini hennar voru Sigríður fædd á Seyð- isfirði 24. maí 1888 og dó barn að aldri á Seyðisfirði, Þorsteinn fæddur 20. júli 1889 á Egilsstöðum, kaupfélagsstjóra á Reyðarfirði, Sigríður fædd 26. maí 1891, stöðv- arstjóri Pósts og síma á Egilsstöð- um, Sveinn bóndi Egilsstöðum fæddur 8. janúar 1893, Egill hér- aðslæknir á Seyðisfirði fæddur 17. júli 1894, Bergur bóndi Ketilsstöð- um á Völlum fæddur 6. apríl 1899. Öll eru þessi systkini Olafar nú látin, en á lífi eru Pétur bóndi á Egilsstöðum fæddur 23. október 1904 og Unnur íþróttakennari í Reykjavík fædd 17. ágúst 1907. Olöf ólst upp hjá foreldrum sínum á Egilsstöðum i stórum systkinahóp og á mjög fjölmennu heimili, þar sem foreldrar hennar, auk þess að reka stórt bú, höfðu með höndum verslun, póst og símaafgreiðslu og gistihús og greiðasölu. Voru oft í heimili nær fjórir tugir manna. Ung að árum fór Ólöf í Gagn- fræðaskólann á Akureyri og síðar í Kvennaskólann í Reykjavík, í hússtjórn og síðan sigldi hún til Kaupmannahafnar að afla sér frekari menntunar. Er hún kom heim var hún í fyrstu hjá foreldr- um sínum á Egilsstöðum þeim til styrktar og hjálpar við verlsunina, sem þar var rekin. Eftir að bróðir hennar Þorsteinn varð kaupfélagsstjóri á Reyðar- firði, réðst hún til Kaupfélagsins við skrifstofu- og verslunarstörf. Var þetta laust eftir 1920 og hjá Kaupfélaginu á Reyðarfirði starf- aði hún allt þar til Kaupfélag Héraðsbúa flutti á Egilsstaði, eftir að þorp fór að myndast 1944, og við vefnaðarvörudeild Kaupfélags Héraðsbúa starfaði hún allt til sjötugs. Ég er þessar línur rita, kynntist Ólöfu föðursystur minni, barn að aldri, en hún var í heimili foreldra minna allan þann tíma er ég var í foreldrahúsum. ólöf var vel gerð kona, vel að sér, las mikið, orð- heppin og fræddi okkur systkinin um margt er áður var, en nokkuð afskiftasöm og vildi aga okkur og siða, sem við systkinin þau eldri, kunnum ekki alltaf að meta. Hún vildi okkur þó alltaf vel og áhugi hennar var að koma okkur til þroska, en hún var kona ógift, + Eiginmaöur minn, faöir, tengdafaöir og afi, SIGURDUR S. MAGNÚSSON prófessor, Flókagötu 54, Reykjavík, veröur jarösunginn fró Háteigskirkju þriöjudaginn 29. október kl. 13.30. Blóm vinsamlegast afþökkuö en þeim sem vildu minnast hans er bent á líknarstofnanir. Audrey Magnússon, Ingibjörg Siguröardóttir, Þorleifur Guómundsson, Sigursteinn Sigurösson, Anna María Siguröardóttir, Snjólaug Elín Siguröardóttir, Ragnar Hrafnsson, Hjördís Sigurðardóttir og barnabörn. t Þakka innilega auösýnda samúö og vinarhug viö lát og útför eigin- manns míns, SÆVARS ÞÓRÐARSONAR, Faxabraut 78, Keflavík, fyrir hönd annarra vandamanna, Særún Ólafsdóttir. + Þökkum innilega auösýndan hlýhug sem okkur var sýndur viö andlát og útför HULDU LÝÐSDÓTTUR, Vitateig 4, Akranesi. Hjálmar Lýösson, Katrín Karlsdóttir, Lýöur Hjálmarsson, Ester Hjálmarsdóttir, Gunnar örn ísleifsson, Valur Karl Hjálmarsson, Hafdís Björg Hjálmarsdóttir, Hulda Mekken Hjálmarsdóttir. + Þökkum innilega samúö og vinarhug sem okkur var sýndur viö andlát og útför SIGMARS GUÐMUNDSSONAR, húsasmíöameistara, Sléttahrauni 26, Hafnarfiröi. Hjálmar Baldursson, Baldur S. Baldursson, Siggeröur Þorvaldsdóttir, Guómundur H. Sigmarsson, Ingibjörg S. Magnúsdóttir, Hannes Sigmarsson, Guörún Gunnarsdóttir, Þór Sigmarsson og barnabörn. barnlaus og átti því ekki að önnur börn en bræðrabörn sín, sem hún var öllum góð. Við störf sín við verslunina var hún vel kynnt, enda var fjöldi viðskiptavina Kaupfé- lagsins víðsvegar á Héraði er skrif- aði henni og bað hana um aðstoð við val á einu og öðru er konur þurftu með til fatnaðar á heimilum og ekki síst að velja smekklega svuntu og slifsisefni til íslenska búningsins er konur klæddust. ólöf hafði næmt fegurðarskyn, vinnusöm, ströng við sjálfa sig og vann oft langan vinnudag án þess að hirða um að það færi fram yfir eðlilegan og tilskyldan vinnutíma. Þessu kynntist ég vel, er ég starf- aði með henni við verslunina á Reyðarfirði. Eftir að verslunin kom á ný á Egiisstaði og hún fór að starfa þar, átti ólöf heimili með systur sinni Sigríði og var svo allt til Sigríðar missti við. Ólöf var þá orðin fullorðin, hætt störfum vegna aldurs og heilsan farin að bila. Fór hún þá fyrst til systur sinnar Unnar í Reykjavík, var þar vetrarlangt, en fór síðan aftur til síns heimilis á Egilsstöð- um. En heilsu hennar hrakaði svo að hún varð að vistast á heilsu- gæslustöðina á Egilsstöðum og þar var hún þar til yfir lauk að kveldi þriðjudagsins 23. þ.m. að hún fékk langþráða hvíld. A sjúkrahúsinu naut hún góðrar umönnunar lækna, hjúkrunarfólks " og alls starfsfólks, og var því öllu þakklát. Ólóf var bundin Egils- stöðum og gladdist yfir að mikið og blómlegt kauptún var risið á heimaslóðum hennar á hinu heill- andi og fagra Héraði. Gengin er góð og trúuð kona, en hún hafði það fyrir fasta venju að lesa í Biblíunni á hverju kvöldi að leita sér styrks og huggunar með- an hún mátti. Við systkinin þökkum samfylgd- ina. Útför ólafar fer fram frá Egils- staðakirkju mánudaginn 28. okt- óberkl. 14.00. Margrét Þorsteinsdóttir + Hjartans þakkir fyrir auösýnda samúö og vináttu vegna andiáts og útfarar elskulegs sonar okkar og bróöur, EYJÓLFS BEN SIGURÐSSONAR, Faxabraut 80, Keflavík. Sérstakar þakkir eru færöar björgunarsveitunum öllum, iön- sveinafélagi suöurnesja og öörum sem aöstoöu viö leitina aö honum beint og óbeint meö þátttöku eöa láni á búnaöi. Guö blessi ykkur öll. Siguröur Ban Þorbjörnsson, Mæja Sigurgeirsdóttir, Ásta Ben Siguröardóttir. + Þökkum samúö og vinarhug viö fráfall og útför móöur okkar, FJÓLU BORGFJÖRÐ, Þverbrekku 4, Kópavogi. Jóhanna Valdimarsdóttir, Sigurjón Valdimarsson, Ásta Valdimarsdóttir, Ólafur Valdimarsson, Anna Valdimarsdóttir, Aðalsteinn Valdimarsson, Valgeröur Ásmundsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Dóra Gissurardóttir, Anna Jörgensdóttir, Einar Ársælsson, Auöur Kristjénsdóttir, Hákon Steindórsson, + Útför móöur minnar, tengdamóöur og ömmu, FANNÝAR SIGRÍÐAR ÞORBERGSDÓTTUR, Austurbrún 2, veröur gerö frá Áskirkju þriöjudaginn 29. október kl. 15.00. Jónína Hallgrfmsdóttir, Ástróður Magnússon og barnabörn. ___________________________________________________C Lokað Lokaö verður þriöjudaginn 29. október vegna jarðarfar- ar HAFLIÐA GISLA GUNNARSSONAR. Bílaverkstæöi Gunnars Sigurgísla. Legsteinar Framleídum allar stæröir og gerðir af legsteinum. Veitum fúslega upplýsingar og ráðgjöf ________um gerð og val lcgsteioa._ IB S.HELGASON HF I STEINSffHÐJA f SKEMMUV/EGl 48-SÍMt 78677
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.