Morgunblaðið - 27.10.1985, Side 36

Morgunblaðið - 27.10.1985, Side 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. OKTÓBER1985 Sjötug: Ragnheiður Ólafs- dóttir, Þorlákshöfn Á morgun, 28. október 1985, verður frú Ragnheiður Ólafsdóttir sjötug, og langar mig að senda þessum góða granna örfá árnaðar og þakkarorð af því tilefni. Þau hjón, en Ragnheiður er gift Björgvini Guðjónssyni, fluttu hingað í byggð árið 1959, fyrir rúmum aldarfjórðungi, frá Duf- þekju í Hvolhreppi, þar sem þau bjuggu góðu búi. Þeim hjónum varð fjögurra barna auðið, en Ragnheiður átti fyrir eina dóttur. Sá mannvænlegi hópur er löngu floginn úr hreiðri, en því oftar hlaupa barnabörnin um hlaðvarpann hjá afa og ömmu við Egilsbraut 22, þar sem þau hjónin reistu sér fagurt og hlýlegt heimili skömmu eftir komu sína í „Höfnina". Mikil og farsæl og þróun hefur orðið hér í Þorlákshöfn á því 35 ára tímabili, sem liðið er frá seinna landnámi staðarins. Það á við um flesta hluti svo sem hafn- arskilyrði og slitlögð stræti ofl. ofl., en einna mest hefur þó gróðri og uppgræðslu fleygt fram og heftingu sandfoks, sem hér var til mikils baga. í garðinum þar sem Ragna les ber af trjám sínum á síðsumar- kvöldum var sviðinn svörður, og ef vind hreyfði var sandurinn óðar farinn að fjúka, svíðandi og eyð- andi gróðri. Þannig voru frumbýlingsárin oft erfið. Það vantaði allt til alls. Það var svo gæfa staðarins, að hingað fluttist búferlum margt úrvalsfólk, m.a. úr Árnes- og Rangárþingum, þeirra á meðal Björgvin og Ragna. Fólk alið upp við átakavinnu frá æsku. Sam- heldni íbúa hins unga byggðarlags var með ágætum. Granni hjálpaði granna við að steypa upp og reisa íbúðarhús. Þannig spöruðust fjár- munir, sem Selvogsbanki lét ann- ars í té, af mismiklu örlæti, einsog gengur. Þau hjónin gengu í öll stðrf, sem flest voru tengd sjónum og fiskverkun, en þau stðrf voru þeim töm,- enda gjaldgeng vel á þeim vettvangi. Á þeim kjarna og á þessum störfum hefur veraldlegt gengi staðarins byggst. En enginn lifir á einu saman brauðinu, og kem ég þar að þeim þætti í sögu Rögnu, sem mé finnst vel þess verður að minnst sé, en það er þátttaka hennar í félagsstörfum. Þann aldarfjórðung, sem liðinn er frá komu Ragnheiðar, hafa hlaðist á hana hin margvíslegustu félags- störf. Lét hún slysavarnir mjög til sín taka, var form. deildarinnar hér, „Mannbjargar", og var nýlega kjörinn heiðursfélagi deildarinn- ar. Fyrir 25 árum var stofnað hér Söngfélag Þorlákshafnar, að áeggjan og frumkvæði Ingimund- ar heitins Guðjónssonar, heið- ursmanns. Söngfélagið sá um kirkjusöng i Hjallakirkju og Strandakirkju, auk þess að syngja við messur hér, sem þá voru oftast haldnar i barnaskólanum. Einnig kom það oft i hlut söng- félagsins, að standa fyrir 17. júní hátiðahöldum og öðrum mann- fagnaði. Var þó ósjaldan leitað til Rögnu að halda hátíðaræður af því tilefni, og hafði hún ætíð sóma af, en hún gerðist snemma virkur félagi í söngfélaginu. Það var svo í þessum sönghópi og kringum hann, sem neistinn kviknaði og hugmyndinn mótaðist að byggingu veglegs guðshúss í hinni vaxandi byggð. Haustið 1975 er hugmyndin orð- in að bjargfastri ákvörðun íbú- anna. Sóknarnefnd kýs þá kirkju- byggingarnefnd og varð Ragnheið- ur kjörinn fyrsti og eini form. þeirrar nefndar. Tíu árum og nær 50 fundum síðar, skilar nefndin, undir stjórn Ragnheiðar af sér fullunnu verki, við vígslu Þor- lákskirkju þann 28. júlí síðastlið- inn. Undirritaður var svo lánsamur að fá að tengjast þessu starfi sem ritari nefndarinnar og vill nú nota tækifærið og færa form. þakkir fyrir samstarfið, sem aldrei bar skugga á. Þá ber að þakka rausn- arlegar viðtökur og veitingar á heimili Rögnu, en þeir voru ófáir fundirnir sem þar voru haldnir. Ragnheiður hefur nýlega virt í blöðum ítarlega og greinargóða skýrslu um sögu kirkjubyggingar- innar, og er þar fáu við að bæta. Ég vil þó í lok þessa stutta spjalls ítreka þakkir okkar íbúa Þor- lákshafnar fyrir þátt Ragnheiðar að framkvæmd þessa stærsta sameiginlega átaks okkar Þor- lákshafnarbúa. Þar reið á, að halda strikinu þótt móti blési og umfram allt að sameina krafta þeirra mörgu, sem svo dyggilega studdu verkið. Þar brást aldrei félagsþroski Ragn- heiðar, auk þess, sem hún er gædd eiginleika, sjaldgæfum, hann ávinnst ekki, er ekki falur fyrir fé, næst ekki með völdum né aðstöðu, hún er höfðingi. Að lokum óska ég þér Ragna og fjölskyldu þinni alls árnaðar og blessunar í tilefni merkra tíma- móta og vona að síðdegið verði þér blessunarríkt. bened. Auk hinnar margrómuðu þjónustu, sem ásamt hlýlegu umhverfi og {jölbreyttum matseðli hafa aflað veitingahúsinu svo mikilla vinsælda, eykur Amarhóll enn við umsvif sín. Víð hinn almenna veitingarekstur hefur berlega komið í ljós að margir af viðskiptavinum Amarhóls hafa brýna þörf fýrir aðstöðu til lokaðra funda og samkvæma. Til þess að koma til móts við þessar þarfir gesta sinna hafa aðstandendur Amarhóls ákveðið að veita þessa þjónustu og eins og alltaf þegar AmarhóII er annars vegar situr fjölbreYtnin í fýrírrúmi. Að aflokinni hagræðingu á salarkynnum veitingastaðarins getur Amarhóll nú boðið fjölbreyttum hópi viðskiptavina sinna margvíslega þjónustu. KLÚBBAR FÉLAGASAMTÖK_______________FYRIRTÆKI AmarhóII býður ykkur aðstöðu til fastra hádegisverðafunda jafnt sem eínstakra og einnig einkasamkvæma. ARNARHÓLL BYÐUR AÐSTÖÐU FYRIR- Smærri hópa (frá 10 manns) hádegi og kvöld alla virka daga(í koníakssal). EINKASAMKVÆMI Stórar veislur jafnt sem smáar. Sama hvert tilefnið er, brúðkaup, afmæli, fermingar, próflok, Amarhóll annar öllu.______________ ARNARHÓLL BÝÐUR AÐSTÖÐU FYRIR: Stærrí samkvæmi (allt að 100 manna matarveislur og 200 manna hanastél til kl. 18.00) hádegi Iaugardaga og sunnudaga. ------—--------------—----------3-----------' ■ '' '■ ........... ... Gestir utan af landí - Opera - Leikhús Amarhóll tekur á móti hóppöntunum óperu- og leikhúsgesta utan af landi. Aukín Attræður: Ragnar Guðleifsson fyrrv. bæjarstjóri Áttræður er í dag 27. október Ragnar Guðleifsson, fyrrverandi bæjarstjóri í Keflavík. Ragnar er borinn og barnfæddur Keflvíking- ur. Hann lauk kennaraprófi 1933. Strax að námi loknu hóf hann afskipti af verkalýðsmálum og 1935 er hann kosinn formaður verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og gegnir þeirri stöðu allt til 1970. Sem verkalýðsleiðtogi var Ragnar gætinn og varkár og þekktur fyrir að ná fram hagstæð- um samningum. 1 hreppsnefnd Keflavíkur var Ragnar fyrst kos- inn 1938. Hann var fyrsti bæjar- stjórinn í Keflavík, þegar bærinn fékk kaupstaðarréttindi 1949. Þá hefur Ragnar ætíð verið mikill samvinnumaður, fyrst vann hann við pöntunarfélagið hér, síðan tók KRON við og þar á eftir Kaupfélag Suðurnesja og nágrennis. Þar sat Ragnar í stjórn í áratugi. Vitaskuld segir þessi stutta upptalning nokkra sögu um lífs- hlaup Ragnars. Hann hefur ætíð verið Alþýðuflokksmaður, um- bótamaður í þessa orðs bestu merkingu. Fá mál hefur hann talið sér óviðkomandi: að barnavernd- armálum vann hann og skógrækt svo dæmi séu tekin af málum sem ekki teljast kjarabarátta né lands- mál. Atvikin höguðu því þannig að 1974 urðum við nágrannar. Vinnu- staður minn var alveg við bæjar- dyr Ragnars. Síðan má segja að ég sé vikulegur eða jafnvel daglegur gestur á heimili Ragnars og hans ágætu konu Bjargar Sigurðardótt- ur. Ef mér er ekki boðið í kaffi þá býð ég mér bara sjálfur. Þessar heimsóknir hafa verið mér að- komumanninum ometanlegur skóli um sögu og málefni Suður- nesja. Margvíslegan heiður hefur Ragnar uppskorið fyrir sín hug- sjónastörf. 1975 var hann kosinn fyrsti og eini heiðursborgari Keflavíkur og énn í dag situr hann í stjórn Samvinnutrygginga. Þau hjón Björg og Ragnar eru að heim- an í dag. Eru stödd í Ameríku á heimili Sveinbjarnar Jónssonar, fóstursonar Ragnars. Ég vil með þessum fátæklegu línum þeim Ragnari, Björgu og börnum þeirra Sigrúnu og Svein- birni mínar bestu kveðjur og konu minnar. Hilmar Jónsson 4

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.