Morgunblaðið - 27.10.1985, Síða 57
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. OKTÓBER1985
57
Norska kaupakonan Tína (Trine Samuelsen) tekur til bendi og lætur sig
ekki muna um að lyfta þungum bagga.
með Barðaströnd og skeljasandinn
út með Skorarhlíðum, fyrir Látra-
bjarg og inn í víkur og firði fyrir
norðan."
Lifir vel í sandroki
Síðan Þorvaldur Thoroddsen
taldi að allt yrði þarna að auðn,
hefur vörn verið snúið í sókn. Árið
1946 lét Gunnlaugur Kristmundsson
sandgræðslustjóri girða þarna af
nokkurt svæði og eftirmaður hans
Runólfur Sveinsson lét stækka þá
girðingu. Þá hafði Sandgræðslan
tekið melinn í sína þjónustu til að
græða upp þar sem engin önnur
planta getur lifað. Var fyrst sáð
mel á Reykjum á Skeiðum á árinu
1907, og urðu það tímamót í land-
græðslu. En melurinn er þeirrar
undarlegu náttúru að vilja lifa þar
sem sandrok er og víkja síðan
undan þegar hann hefur bundið
jörðina og annar gróður kemur
til. Þrátt fyrir þau miklu tímamót
sem urðu 1957 þegar farið var að
dreifa fræi og áburði úr flugvélum
til uppgræðslu, þá dugar það ekki
á þessum erfiðustu foksvæðum.
Melfræið verður að herfa niður,
enda sandurinn á svo mikilli hreyf-
ingu. Hálminn af melgresinu nýtir
Landgræðslan á þann hátt að
hlaða því upp í garða á erfiðu
svæðunum, grafa það niður í
sandinn til að mynda melvarnar-
garða. Einnig hefur hálmurinn
verið notaður nokkuð til sveppa-
ræktar.
Melurinn hefur stóru hlutverki
að gegna við að græða upp landið.
Það má sjá með berum augum
þegar litið er yfir þetta svæði við
Patreksfjörð. Þar sem fyrst var
byrjað að vélslá melinn, hefur
síðan verið sáð grasfræi og þar er
nú grænt graslendi. Melurinn
bindur sandinn en síðan kemur
annar gróður í kjölfarið. í minja-
safninu á Hnjóti er mynd frá
Sauðlauksdal, sem sýnir vel að
þarna var alveg eyðimörk áður en
farið var að klæða landið melgresi.
Það er gaman að sjá svo góðan
árangur í baráttunni við uppblást-
urinn í landinu.
MYNDIR OG TEXTI
ELÍN PÁLMADÓTTIR
Melurinn, sem búiö er að slá, er vélbundinn i bagga, sem hlaðið er í Land-
græðslubflinn, 9 tonna hlass. Við vélina eru starfsmenn Landgræðslunnar
Einar Magnússon og bflstjórinn Björn Bjarnason, og lengst til hægri Krist-
<nn bóndi Egilsson á Hnjóti.
itölsk
sófeiboiö
Þú gengur aö gæðunum vísum.
Borgartún 29. Sími 20640
—