Morgunblaðið - 27.10.1985, Síða 63

Morgunblaðið - 27.10.1985, Síða 63
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. OKTÓBER1985 63 DÖUN 4C0NCWUA MOUNT MCKINLEY MONT BLANC FUJÍYAMA sterkir sólargeislarnir í gegn annað slagið. Þá hlýnaði skyndilega, en annars var smá vindur og dálítil snjókoma. Hvílíkt útsýni! Líklega hefur það tekið mig um 30. mínútur að komast síðustu 100 metrana á tindinn og nú aldrei þessu vant kom gamla þrjóskan að góðum notum. Loks eftir 5 Vi tíma puð stóð ég á tindinum. „Hvílíkt út- sýni.“ Hvítt og ekkert nema hvítt. Ég hefði þess vegna alveg eins getað staðið upp á Esju í snjókomu. En það var verk að vinna, taka sjálfsmyndir, með merki hinna ýmsu styrktaraðila. Ekki fann ég fyrir neinum ofskynjunum né brenglaðri hugsun eins og margir fjallamenn hafa orðið fyrir vegna súrefnisleysis þótt móður og þreytt- ur væri. Eftir um hálftíma dvöl á tindinum var kominn tími til að fara niður. Flest slys í fjallgöngum verða á niður- leið. Þá eru menn þreyttir og oft kærulaus- ir. Það var því mikilvægt að fara að öllu með gát, því smámistök gætu endað 3.000 m neðar. Nýr snjór hafði fallið og vildi hann hlaðast undir mannbroddana, sem er stórhættulegt. Á tímabili varð ég að standa á öðrum fæti í hverju skrefi og slá með ísöxinni í brodddana til að hreinsa undan þeim. Það var óskaplega þreytandi og tók langan tíma að ganga með þessu móti. En þetta lagaðist er neðar drót. Kaltbaöíbala Það var langt liðið á daginn er ég komst niður í tjald í 5.700 m, en þar beið Doug. Þar gistum við um nóttina ásamt nokkrum Austurríkismönnum er voru að bíða færis á fjallið. Daginn eftir fórum við alla leið niður í Aðalbúðir. Þar beið okkar mikill matur og kalt bað í bala. Næstu dagar voru teknir rólega meðan menn söfnuðu kröftum. Nú var ekki laust við að löngun i góðan mat og vestræna menningu væri farin að segja til sín, enda hafði ég verið án hennar í næstum tvo mánuði. Nú var aðaltakmarkinu náð, og við Anna og Jonni ákváðum að halda heim á leið. Þeir sem urðu eftir ætluðu að reyna við Rakaposhi og ef tími gæfist til, Nanga Parbat, níunda hæsta fjall jarðar. Heimferðin gekk að óskum að mestu, hitinn var ekki alveg eins óþolandi vegna þess að monsúnrigningarn- ar höfðu náð að hluta til Pakistan. Eftir nokkurra daga bið í Gilgit eftir flugi sem aldrei var farið fórum við með áætlunar- bifreið til Islamabad. Það er ferðalag sem ekki er hægt að mæla með. 16 tíma hrað- akstur utan í þverhnýpi, með alveg ótrú- lega þröngt á milli sætanna þannig að blóð- ið rann treglega um útlimina. Frá Pakistan flugum við þann 8. ágúst. Stuttu eftir að við fórum frá Aðalbúðum lést einn félagi í austurriska leiðangrinum á Rakaposhi East. Eftir það reyndu Bret- arnir við Nanga Parbat, en urðu frá að hverfa þegar einn þeirra veiktist af fjalla-' veiki í 6.000 m hæð. Það sem óvenjulegt má telja við þennan leiðangur, eru hin ótrulega miklu veikindi sem hrjáðu leið- angursmenn. Allir veiktumst við að meira Leiðin, sem Helgi fór frá Aðalbúðum upp á tind eða minna leyti. Alls urðu sjö manns að snúa heim vegna veikinda. í dag hafa þó flestir náð sér að fullu og eru þegar farnir að spá í næstu ævintýri. Kftirtöldum aðilum eru bestu þakkir veittar fyrir góðan stuðning: Adidas-umboðið, Kreditkort sf., Flugleiðir, Fudji-umboðið, Gefafoto, Halldór Erlendsson hf., Hjálparsveit skáta Reykjavík, Hjólbarðahöll- in, ÍSAL, LHS, Morgunblaðið, Pálmason og Valsson, R. Sigmundsson, Seglagerðin Ægir, Skátabúðin, Sveinn Egilsson hf., Sölustofnun Lagmetis, Utilíf, Vífilfell, Þýsk-íslenska. Texti: HELGI BENEDIKTSSON Diran. Minapin-jökull { forgrunni. HÆÐARMISMUNUR A ÞEKKTUM FJÖLLUM í HEIMINUM MT. EVEREST NANCAPARBG 4000 m r Helgi við komuna niður í Aðalbúðir eftir 5 daga á fjallinu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.