Morgunblaðið - 05.11.1985, Side 50
50
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. NÓVEMBER1985
fólk í
fréttum
Tangó á Borginni
Svisslendingurinn, David
Honer, hefur verið að kenna
Tangó í Kramhúsinu að undan-
förnu. Honer sem er rithöfundur
og leikari kom til landsins til að
skrifa og varð sér úti um sumar-
bústað nálægt Eyrarbakka, þar
sem hann sat í ró og næði, og vann
á milli þess sem hann kom og
kenndi íslendingum hvernig á að
dansa Tangó.
I lok námskeiðsins var öðrum
nemum í Kramhúsinu svo og vin-
um og kunningjum boðið til sam-
kvæmis á Hótel Borg, þar sem
ungir sem aldnir stigu Tangó við
mikinn fögnuð.
Rúsínan í pylsuendanum var svo
er Edda Heiðrún Backman kom
og steig sporið með kennaranum
sjálfum, David Honer.
Morgunblaðið/Bjarni
Hjónin Ásta Erlingsdóttir og Ingimar Lárusson.
Kunnið þið
einhver ráð?
Emanuel þjáist af arfgengum sjúkdómi sem
kallast .epidermalysia bullosa", húðsjúkdómi,
sem m a veldur þvi aó hann þolir alls engan fatnad,
hver minnsti leppur veldur honum kvolum og kláða.
svo hann verftur helst aft vera nakinn.
Þetta var uppgótvaft skjótlega eftir aft Emanuel
fæddist, er starfsfólk i fcöingardeild spítalans
komst aft raun um aft sifelldur grátur og vanliftan
stafafti vegna reifa barnsins og jafnvel snertingar
fólks
Læknar standa ráðþrota frammi fyrir vandanum
og engin ráft hafa dugaft til þessa. Poreldrarnir hafa
nú tekift þaft til bragfts aft auglýsa eftir hjálp fyrir
barnift sitt, ef einhver kynni aft þekkja til ráfta. Ef
þift. lesendur góftir, kunnift skil á einhverri lausn er
Né hafa foreldrarair tekió þaé Ul bragás aó unnt aft koma boftum bréflega til Morgunblaftsins
augtytt rftli hjálp (yrir drrnplnn. I Mttum".
ÁSTA ERLINGSDÓTTIR:
Ætlar að senda drengn-
um áburð og inntöku
sem hún býr til úr
íslenskum jurtum
Sagt var f rá því hérna á síðun-
um í síðustu viku að drengur-
inn Emanuel þjáðist af húðsjúk-
dómi sem m.a. veldur því að hann
þolir alls engan fatnað, hver
minnsti leppur veldur honum kvöl-
um og kláða, svo hann verður helst
að vera nakinn.
Læknar standa ráðþrota frammi
fyrir vandanum og foreldrarnir
hafa nú tekið til bragðs að auglýsa
eftir hjálp.
Ása Erlingsdóttir hefur áhuga á
að fá að senda piltinum, sem er
norskur, áburð og inntöku sem hún
lagar úr íslenskum jurtum.
„Ég vil gjarnan fá að senda
drengnum áburð og inntöku úr
íslenskum jurtum og sjá þannig
hvort ég get ekki hjálpað honum.
Piltinum verður ekki meint af
þessu svo mikið er víst, þetta er
alveg skaðlaust.
Ég hef ekki fengið tilfelli sem
lýsa sér nákvæmlega eins, en rosk-
ið fólk hefur oft komið með svipuð
einkenni þó ugglaust sé nú annað
sem amar að þessum litla snáða.
Engu að síður langar mig að prófa
hvort ég get ekki linað þjáningar
hans.“
— Hefurðu fengist við lækning-
ar af þessu tagi lengi?
Grasalækningarnar hafa gengið
í arf. Faðir minn var Erlingur
Filipusson grasalæknir og föður-
fólkið mitt hefur kunnað þetta frá
örófi alda og þekkingin miðlast
mann fram af manni. Það eru
líklega 17 eða 18 ár síðan ég byrjaði
að fást við þetta svona fyrir alvöru
og 15 ár síðan við hjónin fórum
að vinna saman að þessu í frí-
stundum.