Morgunblaðið - 05.11.1985, Side 57
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. NÓVEMBER1985
57
Kaupfélag Hafnfirð-
inga og lögbann
Kökubankans
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
eftirfarandi frá Bergi Haraldssyni,
stjórnarmanni Kökubankans hf.:
„Vegna yfirlýsinga frá Kaup-
félagi Hafnfirðinga í útvarpi og
blöðum óska ég eftir því að eftir-
farandi verði birt:
Á sínum tíma fékk KH úthlutað
lóð á Miðvangi 41, en þar skyldi
rekin þjónustumiðstöð s.s. banki,
pósthús, bakarí, fiskbúð, apótek
o.fl. Árið 1977 kaupir Kökubank-
inn hf. fokhelt húsnæði af KH til
þess að setja upp bakarí í fyrr-
nefndri þjónustumiðstöð. Samn-
ingar voru gerðir í vinsemd og
bróðerni og sá um þá f.h. Kaup-
félags Hafnfirðinga Jón Finnsson
hrl. Stjórn KH undirritaði öll
samninginn. Ekki kvaddi Köku-
bankinn lögmann sér til aðstoðar,
þar sem hæfni og heiðarleika lög-
manns KH var fullkomlega treyst.
í samningi þessum eru mjög skýr
ákvæði til hvers húsnæði þetta
skyldi notað, svo og réttur og
skyldur beggja aðila nákvæmlega
tilgreind. I samningnum segir
meðal annars: „Kökubankanum hf.
er heimilt að reka í húsnæðinu á
Miðvangi 41 framleiðslu og sölu á
brauðum og kökum og skyldum
vörum en óheimill annar rekstur,
nema til komi samþykki annarra
rekstraraðila í húsinu. Á sama
hátt skuldbindur Kaupfélag Hafn-
firðinga sig til þess að versla ekki
með daglega framleiðslu annarra
brauðgerðarhúsa nema samkomu-
lag verði um annað."
Samningar sem þessi eru mjög
algengir og raunar alger forsenda
þess að húsnæðið var keypt í þessu
tilfelli.
Nauðsynlegt er, ef þjónustumið-
stöð eins og Miðvangur á að standa
undir nafni, að samstarf, sam-
vinna og gagnkvæmt traust ríki
milli aðila. í byrjun var samstarfið
með ágætum eða í u.þ.b. 3 ár, en
breyttist þegar núverandi kaup-
félagsstjóri hóf störf. Þá var byrj-
að að brjóta gerða samninga og
hefja sölu á brauðvörum frá öðrum
bakaríum.
Síðan telur KH sig geta einhliða
sagt upp samningi og kemur með
órökstuddar dylgjur og beinan
atvinnuróg, en því verður svarað
á öðrum vettvangi.
Þegar svo var komið þótti ljóst
að KH ætlaði ekki að standa við
gerða samninga og var því nauð-
synlegt að leita réttar síns fyrir
dómstólum. Fyrsta skref er að
óska eftir lögbanni og síðan leggja
málið í dóm.
Kaupfélagsstjórinn lætur í það
skína i útvarpsfrétt að kvöldi 31/10
að KH sé með þessu að hugsa um
hag neytenda og bjóða upp á aukið
vöruframboð í verslun sinni. KH
ætti e.t.v. að leggja á það höfuð-
áherslu að koma betur út úr verð-
könnunum en verið hefur og t.d.
gefa Kökubankanum tækifæri á
að selja mjólkurvörur á þeim tíma
sem KH er lokað. Það væri að
hugsa um hag neytenda.
Sú auglýsing sem KH fær með
þessum hætti er ekki til þess að
auka veg þess á nokkurn hátt,
a.m.k. er það ljóst að forráðamenn
þess virða ekki gerða samninga.
Kökubankinn ætlaði að hlífa KH
við að gera framangreint að opin-
beru útvarps- og blaðamáli, en
fyrst stjórnendur þess hafa kosið
þá leið, skal ekki standa á Köku-
bankanum að leggja öll spilin á
borðið.
Biskup frá Eþíópíu
á fundi í Reykjavík
ALEMU Shetta, biskup frí Eþíópíu,
er væntanlegur til fslands í dag og
mun hann dvelja hér í tvo daga.
Mun hann tala á samkomu á vegum
Sambands ísl. kristniboósfélaga
annað kvöld og í kvöld situr hann
fund med stjórnum hinna ýmsu
kristniboðsfélaga innan SÍK.
Alemu Shetta var kjörinn for-
seti suðursynódu lúthersku kirkj-
unnar í Eþfópíu árið 1983 og er
það hliðstætt starfi biskups.
Kirkja hans, Mekane Yesus kirkj-
an, starfar í nánum tengslum við
kristniboða frá mörgum löndum,
m.a. frá fslandi. Sem fyrr segir
mun Alemu Shetta tala á sam-
komu kl. 20.30 annað kvöld í húsi
KFUM og K á Amtmannsstíg í
Reykjavík og er hún opin öllum. f
kvöld, þriðjudagskvöld, mun hann
hins vegar eiga fund með stjórnar-
mönnum kristniboðsfélaga og
hópa innan SfK. Hefst sá fundur
kl. 21 og verður einnig haldinn í
húsi KFUM og K.
Alemu Shetta biskup frá Eþíópíu
talar á samkomu á vegum SÍK f
Reykjavík á miðvikudagskvöld.
KFUM og K:
Kristniboð-
komuvika í
KRISTNIBOÐS- og samkomuvika
stendur yfir í félagsheimili KFUM
og KFUK í Sunnuhlíð dagana 3.—10.
nóvember, og hefjast samkomurnar
alla dagana kl. 20.30. Fluttar verða
ræður á hverju kvöldi, en auk þess
verða myndasýningar, vitnisburðir
og fjölbreyttar sögur.
Dagskrá verður þannig:
Þriðjudagur 5. nóvember: Ræða:
Benedikt Arnkehson. Myndir frá
Kenýa. Skúli Svavarsson.
Miðvikudagur 6. nóvember: Ræða:
Séra Lárus Halldórsson.
Fimmtudagur 7. nóvember: Ræða
Benedikt Amkelsson.
og sam-
Sunnuhlíð
Föstudagur 8. nóvember. Ræða:
Alemú Shetta frá Eþíópíu.
Laugardagur 9. nóvember: Vitnis-
burðir. Lokaorð og bæn: Jón Viðar
Guðlaugsson. Kl. 23.30 miðnætur-
samkoma.
Sunnudagur 10. nóvember:
Kristniboðsdagurinn. Kl. 14.00
guðsþjónusta með altarisgöngu í
Akureyrarkirkju. Ræðumaður
Reynir Hörgdal. Séra Þórhallur
Höskuldsson þjónar fyrir altari.
Kl. 20.30 Samkoma i SunnuhUð.
Ræða: Dr. Sigurbjörn Einarsson,
biskup.
(Frétutilkjumg.)
Club8
■ Loksins
loksins
geturþú
keypt þér
veggeiningar
sem þú
innréttar
sjálfur
~—
Þú kaupir grunneiningar í beyki eöa
hvítlakkaðar í mismunandi stærðum og
síðan eftir þörfum glerhurðir, viöar-
hurðir, hillur, plöturekka eða Ijósakappa.
Sendum myndalista.
Vdrumarkaðurinn hl.
ARMÚLA 1 a
cristal
vönduðu bresku
vegg-og gólfflísarnar
Steinprýði hf. hefur tekið við
umboði John Lindsay hf. á
fslandi fyrir hinar þekktu
framleiðsluvörur breska fyrir-
tækisins H & R Johnson
Tiles, og fyrirtækjanna A G
Tiles og Maw & Co.
Fyrirtækin eru þekkt fyrir
vandaða og fjölbreytta fram-
leiðslu á CRISTAL vegg- og
gólfflísum, auk fylgihluta og
margvíslegrar gjafavöru úr
gleri.
Verðið er hagstætt og í
sumum tilvikum lægra, en
áður hefur þekkst hér á landi.
Steinprýði hefur fyrirliggj-
andi sýnishorn ásamt öllum
nánari upplýsingum, og
býður nýja viðskiptavini og
að sjálfsögðu gamla viðskipta-
menn velkomna.
Nýr umboðsmaður á íslandi
15 steinprýöi hf.
■■ Stórtiotöa 16 simi 83340-84780
UmboAsmaður í Akureyri:
^skpptií