Morgunblaðið - 10.11.1985, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR10. NÓVEMBER1985
Hafberg GK rétt sokkið í Seyðisfjarðarhöfn:
Menn voru á
sundi í bátn-
um og við hann
- segir Þorvaldur Jóhannesson
sýslufulltrúi á Seyðisfirði
„ÞAÐ mátti ekki tæpara standa — Hafbergid var rett sokkið við bryggjuna
og raunar óttuöust menn að báturinn myndi sökkva fljótlega eftir að hann
lagðist á hliðina hér fyrir utan, enda gengu skipverjarnir á síðu bátsins og
voru að fara í gúmmíbátana þegar Haukafellið kom að,“ sagði Þorvaldur
Jóhannesson, sýslufulltrúi á Seyðisfirði, í samtali við Morgunblaðið í gær-
morgun. Þá var nýlega búið að dæla sjó úr sfldarbátnum Hafbergi frá
Grindavík, sem lagðist á hliðina útaf Seyðisfirði um hádegisbilið á föstudag.
Hafbergið var dregið til hafnar af
skipin komið að bryggju um hálfátta
Illa gekk að draga Hafbergið inn
til Seyðisfjarðar. „Þeir komu með
hann afturábak inn fjörðinn á 2—3
mítíía hraða og þurftu að snúa
honum á leiðinni," sagði Þorvald-
ur. „Þegar komið var að bryggju
var Hafbergið meira og minna á
kafi I sjó — aðeins hvalbakur,
yfirbyggingin og stýrishúsið stóðu
upp úr. Vélarrúmið var fullt af
sjó og lestir, þannig að það gekk
erfiðlega að koma slöngum niður,
svo það væri þétt. Menn voru á
sundi í bátnum og við hann meðan
á þessu stóð en loks tókst að koma
Haukafellinu frá Hornafirði og voru
leytið á fostudagskvöldið.
borði á lestirnar og þá fór að ganga
betur að dæla. Þá var búið að rétta
skipið nokkuð við með aðstoð
krana og Haukafellsins."
Hafberg GK er 162 tonna stál-
bátur og var með um hundrað tonn
af síld innanborðs meðan á þessu
stóð. Ljóst er að verulegar
skemmdir hafa orðið á Hafberg-
inu. Aðalvélin fór út seint á föstu-
dagskvöldið og rafmótorar eru
ónýtir, að sögn Þorvalds Jóhannes-
sonar. Reiknað var með að sjópróf
vegna slyssins færu fram síðdegis
í gær og í dag.
Morgunblaðið/Þorkell
Akkerið komið á þurrt land. Maðurinn á myndinni er Eiríkur. Til
viðmiðunar má geta þess að Eiríkur er 180 cm á hæð.
Akkeri frá skútuöld
NOKKRIR áhugamenn um köfun
fundu merkilegan grip er þeir voru
að kafa í mynni Straumsvíkurhafnar
síðastliðið sumar. Var þar um að
ræða stórt og mikið járnstokksakk-
eri frá slðustu öld.
Það var þó ekki fyrr en um
miðjan þennan mánuð að ákvörð-
uh var tekin um að bjarga akker-
inu, sem lá á 60 feta (18 m) dýpi.
Að björguninni stóðu sex áhuga-
menn um köfun, en hún reyndist
nokkuð erfiðari í framkvæmd en
á horfðist í fyrstu, þar sem akkerið
er bæði stórtogfyrirferðarmikið.
Fyrsta tilraunin fór út um þúfur
vegna þess að poki sá sem nota
átti til að lyfta akkerinu, rifnaði
er hann var fylltur af lofti. Þá var
horfið til þess ráðs að láta sér-
smíða poka hjá seglagerðinni
Ægi, sem ætlaður er til að lyfta
þungum hlutum af hafsbotni.
Næsta skref var að strengja línu
milli lands og akkeris, svo auð-
veldara væri að koma nauðsynleg-
um búnaði fyrir. Þegar búnaðinum
hafði verið komið fyrir, reyndist
óhjákvæmilegt annað en að bíða
færis sökum mikilla strauma. Við
fyrsta tækifæri var akkerinu svo
lyft með því að hleypa lofti í
pokann. Því næst var akkerið
dregið inn í Straumsvíkurhöfn, en
þar var því sökkt meðan krani var
fenginn til að lyfta því á þurrt
Síðastliðinn þriðjudag var akker-
inu svo lyft með með aðstoð hafn-
arkrana í Straumsvíkurhöfn.
Þegar akkerið var komið á þurrt
kom í ljós að það var bæði stærra
og tilkomumeira en gert hafði
verið ráð fyrir. Til gamans má
geta þess að akkerið er um tveir
og hálfur metri á hæð, liðlega
faðmur á breidd og á annað tonn
á þyngd.
Prófkjör sjálfstæðis-
manna í Reykjavík:
Utankjör-
staðakosning
hefst á morgun
Utankjörstaðakosning vegna próf-
kjörs um skipan framboðslista Sjálf-
stæöisflokksins í Reykjavík við
næstu borgarstjórnarkosningar,
hefst á morgun, mánudaginn 11.
nóvember, kl. 14:00. Utankjörstaða-
kosningin fer síðan fram á virkum
dögum frá kl. 9:00 til 17.-00 og á
laugardögum frá kl. 10:00 til 12:00,
í sjálfstæðisbúsinu Valhöll, Háaleit-
isbraut 1. Utankjörstaðakosningunni
lýkur laugardaginn 23. nóvember en
prófkjöríð sjálft fer fram dagana 24.
og 25. nóvember.
Utankjörstaðkosning er þeim
ætluð sem af einhverjum ástæðum
geta ekki greitt atkvæði sjálfa
prófkjörsdagana vegna fjarveru úr
borginni eða annarra forfalla.
Atkvæðisrétt í prófkjörinu eiga
allir félagsbundnir sjálfstæðis-
menn í Reykjavík sem þar eru
búsettir og náð hafa 16 ára aldri
prófkjörsdagana og þeir stuðn-
ingsmenn Sjálfstæðisflokksins,
sem eiga munu kosningarétt við
borgarstjórnarkosningarnar og
undirritað hafa inntökubeiðni í
sjálfstæðisfélag í Reykjavík fyrir
lok kjörfundar.
Kjörnefnd Fulltrúaráðs sjálf-
stæðisfélaganna í Reykjavík hefur
lokið gerð prófkjörslistans og er
hann skipaður 34 mönnum. Allar
frekari upplýsingar um utankjör-
staðakosninguna og prófkjörið
sjálft eru veittar á skrifstofu Full-
trúaráðsins í síma 82900.
Frystitogararnir fá allt að
23 % hærra verð en frystihús
Aflaverðmæti Akureyrinnar nálgast 200 milljónir
Guðjón A. Kristjánsson
Farmanna- og fiskimanna-
samband íslands:
Guðjón A.
Kristjáns-
son var
endurkjör-
inn forseti
GUÐJÓN A. Kristjánsson var á
laugardag endurkjörinn forseti
Farmanna- og fiskimannasambands
íslands og Helgi Laxdal varaforseti.
Þinginu lauk á laugardag og var
meðal annars niðurstaða þess, að
hafna framkomnu frumvarpi sjáv-
arútvegsráðherra um stjórnun flsk-
veiða.
Aðrir í stjórn voru kosnir eftir-
taldir, nöfnum raðað eftir at-
kvæðafjölda: Guðlaugur Gísla-
son, Ragnar G. D. Hermannsson,
Reynir Björnsson, Freysteinn
Bjarnason, Þorbjörn Sigurðsson,
Höskuldur Skarphéðinsson, Ari
Leifsson, Ásgeir Guðnason, Matt-
hías Nóason. Varamenn eru
Kristján Ingibergsson, Guðbjart-
ur Gunnarsson, Hörður Reynir
Jónsson, Birgir Stefánsson og
Skafti Skúlason.
FRYSnTOGARAR fá nú allt að
23% hærra verð á mörkuðum er-
lendis en frystihúsin fyrir sambæri-
legar afurðir. Rekstur frystitogar-
anna er því góður um þessar mund-
UM 70 konur voru mættar til iands-
fundar Kvennalistans, sem hófst í
Gerðubergi í Reykjavík í gær. Svava
Kr. Guðmundsdóttir, fundarstjóri,
sagði í samtali við Morgunblaðið, að
fyrír hádegi hefðu kvennalistafélögin
flutt skýrslur um störf sín frá síðasta
landsfundi.
ir og verði frystitogarinn Akureyrin
ekki fyrir neinum skakkafollum til
áramóta, verður aflaverðmæti
skipsins allt að 200 milljónum
króna þetta ár og hefur reksturinn
Sigríður Dúna Kristmundsdótt-
ir, formaður þingflokks kvenna-
listans, skýrði frá störfum þing-
flokksins og Kristín Einarsdóttir,
lífeðlisfræðingur, sem er nýkomin
frá New York ræddi þá athygli,
sem kvennafrídagurinn á Islandi,
vakti erlendis.
því gengið þokkalega að sögn út-
gerðarstjóra þess.
Þorsteinn Már Baldvinsson,
útgerðarstjóri Akureyrinnar,
sagði í samtali við Morgunblaðið,
Svava Kr. Guðmundsdóttir
sagði, að eftir hádegi í gær yrðu
umræður um ýmsa málaflokka og
síðan yrðu samþykktar ályktanir
landsfundarins, en stefnt er að því
að honum ljúki í dag.
að undafarið hefðu þeir verið að
fá 15 til 23% meira fyrir millilögð
þorskkflök með roði í Englandi
en frystihúsin fyrir sambærilega
vöru. Hvað Japan og Bandaríkin
varðaði, fengju frystitogararnir
einnig hærra verð fyrir fram-
leiðslu sína. Hann sagði skýringu
þessa einfaldlega þá, að nú væri
mikil áherzla lög á gæði fisks og
sjórfyrstur fiskur og ferskur fisk-
ur í hæsta gæðaflokki gæfu ein-
faldlega bezta verðið. I þessu til-
felli væri rétt að geta þess, að
fullyrðingar ákveðinna frystihú-
samanna um það, að verðmæta-
sköpun frystihúsanna væri meiri
en frystitogaranna, væru rangar.
Við resktur frystitogaranna
skipti miklu máli, að tengsl
áhafnar við markaðinn væru
miklu meiri en starfsfólks frysti-
húsa. Sjómennirnir fylgdust
grannt með markaðsverði afurð-
anna og gæðum og gerðu sér ljóst
að þeir væru ábyrgir fyrir gæðum
og endanlegu verði framleiðsl-
unnar. Verðfelling á henni væri
einfaldlega bein launalækkun. Þá
skipti það miklu máli, að um borð
væru tæki og búnaður nýtt allan
sólarhrigninn og slík nýting fjár-
festingar hlyti að skila sér. Nýt-
ing búnaðar og tækja í frystihús-
um væri all miklu lakari og rýrði
að sjálfsögðu afkomumöguleika
þeirra.
Þorsteinn sagðist telja, að fisk-
sala í framtíðinni myndi byggjast
á ferskum fiski og sjófrystum svo
og sérvinnslu frystihúsanna í
neytendapakkningar, þar sem
greitt yrði fyrir gæði um fram
allt. Hann teldi að rekstur frysti-
húsanna ætti eftir að styrkjast,
þegar hann hefði gengið í gegn
um það breytingarskeið, sem nú
væri að hefjast. Frystihúsin gætu
því í framtíðinni keppt við sölu á
ferskum fiski og sjófrystum, þó
þau gætu það tæpast nú.
Kvennalistinn:
70 konur á landsfundi