Morgunblaðið - 10.11.1985, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 10.11.1985, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR10. NÖVEMBER1985 23 Golfvöllur fyr- ir Árborgar- svæðið nærri Eyrarbakka? Morgunblaöiö/Sig Jóns. Formaður Golfklúbbs Selfoss, Samúel Smári Hreggviðsson, á svæðinu sem klúbburinn er að leita eftir undir golfvöll. Selfossi, 9. nóvember. HORFUR eru nú á, að Golfklúbbur Selfoss, sem hefur í rúmt ár leitað eftir landi undir golfvöll, fái land undir starfsemi sína í landi Eyrar- bakkahrepps. Hreppsnefndin á Eyrar- bakka er einhuga um að láta land frá jörðunum Gamla-Hrauni og Borg undir golfvöll og hefur verið gerður uppdráttur að níu holu velli. Golf- menn hér hafa verið landlausir síðan f maí í fyrra, að þeim var sagt upp samningi um níu holu golfvöll í landi Alviðru. Eftir brottförina hafa tún á þeim bæ farið í órækt og golfmenn verið landlausir. Hluti landsins, sem fer undir fyrirhugaðan völl við Eyrarbakka, er i eigu ríkisins (Litla-Hrauns) og skiki er þar i einkaeign. Dómsmála- ráðherra hefur tekið vel í málaleit- an golfmanna um að fá landið til afnota og engin fyrirstaða er af hálfu einkaaðilans. Ráðherra hefur beðið Náttúruverndarráð að gefa umsögn varðandi erindi golfmanna og munu ráðamenn skoða landið eftir helgina. Hraunsá rennur með fyrirhuguð- um golfvelli að austan, en i ós hennar hefst við og verpir sjaldgæf fuglategund, þórshani. Á hverju sumri leggur fjöldi ferðamanna leið sina um fjöruna milli Eyrarbakka og Stokkseyrar, m.a. til að skoða þórshanann. Samúel Smári Hreggviðsson, formaður Golfklúbbs Selfoss, sagði í samtali við fréttaritara Morgun- blaðsins, að umrætt land væri mjög hentugt fyrir klúbbinn — þar mætti útbúa skemmtilegan völl með tjörnum og fleiri hindrunum og þar væri hægt að leika golf tveimur mánuðum lengur á hverju ári en var i landi Alviðru undir Ingólfsfjalli. Samúel sagði því ekk- ert til fyrirstöðu, að völlurinn yrði tilbúinn snemma næsta sumars, svo fremi jákvætt svar fengist frá rík- inu. I golfklúbbnum er fólk víðar að en frá Selfossi og mikill áhugi meðal golfmanna að fá nýjan völl, sem hægt er að byggja upp til langs tíma. Þessi fyrirhugaði völlur kemur til með að þjóna Árborgar- svæðinu, þ.e. Selfossi, Eyrarbakka, Stokkseyri, Hveragerði — og Þor- lákshöfn, þegar brú á Ölfusárósa verður að verður að veruleika. — SigJóns. Klingjandi kristall-kærkomin gjöf r \ r. V_ KDSl rA J öQ DA Bankastræti 10. Sími 13122 — 621812. HREINT Skoöaöu í ró og næöi stór- kostlegt úrval stærstu hús- gagnaverslunar landsins. BVSGACNAHÖLLIN BÍLDSHÖFÐA 20 - 110 REYKJAVÍK* 91-81199 og 81410
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.