Morgunblaðið - 10.11.1985, Blaðsíða 5
5
MORGUNBLAÐID. SUNNUDAGUR10. NÓVEMBER1985
Listahátíð
unga fólksins
LISTAHÁTÍÐ unga fólksins er fyrirhuguð á Kjarvalsstöðum
dagana 10.—20. janúar 1986 og býður Reykjavíkurborg ungu
fólki af landinu afnot af Kjarvalsstöðum í tilefni 200 ára
afmælis borgarinnar.
Félag áhugaljósmyndara, Félag
íslenskra hljómlistarmanna, Félag
íslenskra leikara, Samtök áhuga-
manna um kvikmyndagerð og
Samband íslenskra mynd- og
handmenntakennara hafa undan-
farna mánuði staðið að undir-
búningi listahátíðarinnar og geta
allir á aldrinum 15—22 ára sent
inn verk á hátíðina. Nefnd, skipuð
fulltrúum þeirra félaga sem
standa að sýningunni, velur þau
verk sem sýnd verða.
Undir myndlist flokkast grafík,
málun, teiknun, leirmótun, högg-
myndir og fleira og eru gefnar
frjálsar hendur um þema og tækni
verkanna, sem verður að skila til
Kjarvalsstaða á tímabilinu 10.—
20. desember næstkomandi.
Allir lengri og skemmri leik-
þættir koma til greina sem inn-
send verk í leiklist, hvort sem þau
eru frumsamin eða ekki. Þátttöku
skal tilkynna á skrifstofu Banda-
lags íslenskra leikfélaga, Hafnar-
stræti 9, Reykjavík, ásamt upplýs-
ingum um lengd og nauðsynlega
tæknihlið, fyrir 15. desember
næstkomandi.
Myndbönd og kvikmyndir mega
vera fimm til 25 mínútur að lengd
og er myndefnið algjörlega frjálst.
Skilafrestur er til 20. desember og
skal verkunum skilað á Fríkirkju-
veg 11.
Verk unnin í málm, tré, leður
og fleira ásamt verkum sem unnin
eru í vefjaefni með ýmsum að-
ferðum og áhöldum má skila á
Kjarvalsstaði á tímabilinu 10.—20.
desember.
Þátttökuflokkar í ljósmyndun
eru tveir. Annars vegar er mynd-
efni frjálst og hinsvegar er mynd-
efnið „Æskan". Myndirnar eiga að
vera upplímdar og tilbúnar til sýn-
ingar og mega þær vera svart/
hvítar eða í lit. Stærð myndanna
má vera 30—40 cm og 40—50 cm.
Skilafrestur á myndum er til 20.
desember og skal þeim skilað á
Fríkirkjuvegll.
Allar tegundir tónlistar koma
til greina sem innsend tónlistar-
verkefni á Listahátíð unga fólks-
ins, allt frá klassiskum einleiks-
verkum til framsækinnar rokktón-
listar. „Stefnt verður að sem
mestri fjölbreytni og að sem flestir
verði með,“ segir í fréttatilkynn-
ingu frá íþrótta- og tómstundaráði
Reykjavíkurborgar, en tónlistar-
flutningur fer fram á Kjarvals-
stöðum og í Tónabæ. Þátttökutil-
kynningar skulu fara fram í
Tónabæ fyrir 15. desember næst-
komandi, en þar eru ennfremur
veittar nánari upplýsingar.
Örn og Örlygur:
Ljóðabók eftir Jóhann
S. Hannesson heitinn
BÓKAFORLAGIÐ Örn og Örlygur
hefur sent frá sér Ijóðabókina „Tí-
undir“ eftir Jóhann S. Hannesson,
en 9. nóvember sl. voru tvö ár liðin
frá andláti hans. Áður hafa komið út
þrjár Ijóðabækur eftir Jóhann, Feril-
orð, 1977, Hlymrek á sextugu, 1979
og Slitur úr sjöorðabók, 1980.
Jóhann lét eftir sig í handritum
ljóð þau, frumort og þýdd, sem eru
í bókinni „Tíundir" og hefur
Kristján Karlsson annast útgáfu á
ljóðunum. Allar þýðingarnar og
svo til öll frumortu ljóðin eru ort
síðustu þrjú árín sem Jóhann lifði.
Á kápu bókarinnar segir m.a. um
höfundinn: „Skáldskapur Jóhanns
S. Hannessonar er í heild sérkenni-
legt og merkilegt framlag til ís-
lenskrar ljóðagerðar á okkar tím-
um. 1 kvæðum hans fara einatt
saman skörp hugsun, Vttsmunaleg
dýpt og rík tilfinning. En fyndni
hans og formlist njóta sín víða
sérstaklega vel í þessari bók, til
dæmis í þýðingum hans á Robert
lóhann S.
Hannesson
TÍUNDIR
KVÆÐI
Herrick og ekki síður í því formi,
sem hann nefndi „spöku“, fjögurra
lína erindi af sömu gerð og Rubái-
yát.
Tinmarkaðurinn virð-
ist hafa dregið álmark-
aðinn niður með sér
— segir Ragnar Halldórsson, forstjóri ISAL
SPÁDÓMAR um að verð á áli á heimsmarkaði mundi fara lækkandi á
síðari hluta þessa árs, samhliða því að dregið er úr álframleiðslu, hafa ekki
ræst. Að sögn Ragnars Halldórssonar, forstjóra íslenska álfélagsins, hafa
miklar sveiflur verið á þessum markaði að undanförnu og verðástandið
verið mjög slæmt.
„Eins og fram kom í Morgun-
blaðinu á fimmtudag hefur tin-
markaðurinn hrapað og svo virðist
sem hann hafi dregið álmarkaðinn
niður með sér að einhverju leyti,"
sagði Ragnar.
Ragnar Halldórsson sagði, að í
upphafi þessa árs hefðu heildar-
birgðir áls í Evrópu verið 2,3 millj-
ónir tonna. Þá hefði því verið spáð,
að þegar birgðirnar væru komnar
í um 2 milljónir tonna myndi verð
á áli hækka. „Síðan hafa menn
verið að fresta þessum bata og nú
þegar því marki er nærri náð er
talað um að þetta gerist þegar
birgðir verði 1,8 milljónir tonna."
Ragnar sagði, að birgðasöfnun í
álverinu í Straumsvík væri ekki
veruleg, en þó væri gert ráð fyrir
því að birgðir yrðu meiri um ára-
mótin, en reiknað hefði verið með.
. og 1i6. nóv. n.k.
maþeiraftui7hinir
stórKostlegu ■
einvinsælasta
msveit 7. ératugarins
Vegna fjölda áskorana hefur nú tekist
aö fá hina frábæru Searchers til aö
koma aftur til íslands og skemmta í
Broadway 15. og 16. nóvember. Síö-
ast þegar Searchers komu fram í
Broadway var fullt hús og fólk
skemmti sér konunglega. Því miöur
komust þá færri aö en vildu en úr því
er nú bætt og hvetjum viö því gesti
okkar til aö tryggja sér nú miöa tíman-
lega.
Matseöill
Koníakslöguð humarsúpa
Fylltur grísahryggur
m/vínmarineruðum ávöxtum.
ís m/perum og ávöxtum.
Hljómsveitin Tibra
leikur fyrir dansi
bæði kvöldin.
Pantið borð sem
fvrst í síma 77500