Morgunblaðið - 10.11.1985, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR10. NÓVEMBER1985
7
íslandslax hf.:
Framkvæmd-
ir hafnar við
500 tonna
eldisstöð
— Tilraunir
með lúðueldi
Seiðastöðin er að mestu búin.
Framkvæmdir hafnar við útikerin.
FRAMKVÆMDIR eru hafnar við
byggingu 500 tonna eldisstöðvar
íslandslax hf. á Stað í Grindavík.
Eldið fer fram í 20 steyptum útiker-
um með sjó. Sjórinn verður tekinn
úr borholum og verður hann notaður
óupphitaður. Islandslax hf. hefur
ákveðið að gera tilraun með eldi á
smálúðu upp í fulla stærð. Tilraunin
mun standa í að minnsta kosti tvö
ár og verður gerð í samvinnu við
Hafrannsóknarstofnun og Rann-
sóknastofnun fiskiðnaðarins.
Kostnaður við byggingu eldis-
stöðvarinnar er áætlaður 135
milljónir kr., seiðstöðin kostaði 65
milljónir, rannsóknir 18 milljónir
og vatnsöflun 27 milljónir, þannig
að heildarkostnaður við stöðina er
áætlaður 245 milljónir kr. Fram-
kvæmdir við seiðastöðina hófust í
byrjun ársins og er nú að mestu
lokið. Húsið er 2.300 m2 að flatar-
máli og útbúið fullkomnum tækja-
búnaði. Mögulegt er að framleiða
allt að 750 þúsund gönguseiði á ári
í stöðinni. í stöðinni eru nú seiði
af norskum stofnun, sem komu til
landsins sem augnhrogn í mars og
apríl sl. Munu þau ná gönguseiða-
stærð um mitt næsta ár. Stöðin
er rekin sem sóttkví undir eftirliti
íslenskra og norskra sérfræðinga.
Seiðin verða á næstunni sett í ker
í aðalsal seiðastöðvarinnar þar
sem þau verða alin þar til þau
verða sett út í eldisstöðina á næsta
ári.
Hlutafé íslandslax hf. er 91
milljón íslenskar krónur og á
Samband íslenskra samvinnufé-
laga og dótturfyrirtæki þess 51%
en norska fyrirtækið k/s Norlax
a/s 49%. íslenska hlutaféð skiptist
í fjóra hluta, SÍS á 26%, Iceland
Seafood Corp. 13,5%, Olíustöðin í
Hafnarfirði 8,1% og Reginn hf.
3,4%. Þorsteinn Ólafsson er
stjórnarformaður, Vilhjálmur
Jónsson varaformaður en ólafur
Jónsson, Einar Holmefjord og
Thor Seeberg meðstjórnendur.
Þórður H. Olafsson er fram-
kvæmdastjóri íslandslax hf. og
Jón Þórðarson framleiðslustjóri.
MorgunblaðiA/Priðþjófur
Jón Þórðarson framleiðslustjóri við
ker með norsku seiöunum f seiða-
stöðinni.
EINSTÖK AÐSTAÐA
í Sölden færð þú á einum stað allt sem til þarf í frábæra
skíðaferð. Hvort sem þú ert einn á ferð, með
fjölskylduna eða í stærri hóp, uppfyllir Sölden allar þínar
kröfur - og heldur meira.
Umhverfið er heillandi og veðursæld mikil. Ótrúlega þétt
lyftukerfi teygir sig upp eftir hlíðunum og skilar þér í allt
að 3.100 m hæð. Brautimar eai vel merktar og allt lagt
upp úr því að hver maður finni brekkur við sitt hæfi.
Mörg hundruð skíðakennarar ern til taks, útsýnisstaðir,
veitingastaðir og hvíldarstaðir eru á hverju „strái“ og
dagurinn líður hratt, fullur af skemmtilegum atvikum, -
ævintýri líkastur.
VERÐ FRÁ KR.
27.600
og mjög góðir greiðsluskilmálar að auki!
(MIAaö vlb gangl 20. aapt. 85.)
Gisting er fjölbreytt og við allra hæfi.
Ferðatllhögun gæti ekki verið öllu þægilegri: Beint flug til
Salzburg og 3 klst. akstur til Sölden.
Brottfarardagar: 21. des.,15 feb. og 1. mars.
FRÁBÆRT NÆTURLÍF
Þegar líður að kvöldi læturðu notalega þreytuna
líða úr skrokknum í sundlaugum, nuddpottum og
gufuböðum, og færð þér síðan hressingu á
huggulegum bar þar sem útsýnin til snæviþakinna
fjalla verður ógleymanleg í Ijósaskiptunum.
Kvöldið tekur síðan við í eldfjörugum Tírólabænum:
Veitingastaðir, diskótek, skemmtistaðir, nætur-
klúbbar og hressilegt götulíf gefur hverju kvöldi
nýjan lit og setur punktinn yfir i-ið í glæsilegri
skíðaferð.
ÍCOMIÐ OG SKOÐIÐ STAÐIW*
Pið æ«o5 aö H.a Vjb * ****$££?. •
umboðsmönnum og fá nán Pyr segja yKkur allt
bæklinga og myndir o?| iai_____________
um stoltið okkar - Solden^ —
Samvinnuferdir - Landsýn
AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899
SÖLUSKRIFSTOFA AKUREYRI: SKIPAGÖTU 18 - SIMAR 21400 8 23727
í jólaferð okkar til Sölden nýtur þú ekki aðeins
skíðaaðstöðu eins og hún gerist best, heldur
færðu í kaupbæti alveg einstaka jólastemmningu
- jólahald í fjallaþorpum Tíról er ógleymanlegt ævintýri.
JÓLAGJÖF FJÖLSKYLDUNNAR í ÁR