Morgunblaðið - 08.12.1985, Side 1
128 SIÐUR
B/C
STOFNAÐ 1913
278. tbl. 72. árg.__________________________________SUNNUDAGUR 8. DESEMBER 1985________________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins
# # Morgunblaöið/Friöþjófur Helgason
Horft yfir Hringbraut í austumtt í morgunsárið.
Kúbumenn virkari í
átökum í Nicaragua
Wa.shington, 6. desember. AP.
Bonner
til Banda-
ríkjanna
Hóm, 7. desember. AP.
GERT var ráð fyrir að Yelena Bonn-
er, kona sovéska andófsmannsins
Andrei Sakharov, héldi til Banda-
ríkjanna á hádegi í dag laugardag.
Þar mun hún gangast undir hjarta-
aðgerð.
A meðan Bonner dvaldist á ítal-
íu hitti hún bæði Craxi forsætis-
ráðherra og Jóhannes Pál II páfa.
Á leið út á flugvöll neitaði hún að
segja nokkuð um það hvað henni
og páfa hefði farið á milli. Hún
sagðist hins vegar vera glöð yfir
því að í dag myndi hún sjá 85 ára
gamla móður sína, börn og fjögur
barnabörn.
Há tíðni
hvítblæðis
við kjarn-
orkuver
London, 7. deaember. AP.
VART hefur orðið við óeðlilega
háa tíðni hvítblæðis meðal barna
sem búa í grennd við kjarnorkuver,
að því er fram kemur í grein f
breska tímaritinu Brítish Medical
Journal.
I greininni segir að á árunum
1972—84 hafi 34 börn undir 5 ára
aldri í vesturhluta Berkshire feng-
ið sjúkdóminn. Samkvæmt lands-
meðaltali hefði tíðni sjúkdómsins
í þessum aldursflokki hins vegar
átt að vera um 20,6 tilfelli.
Læknarnir segja að taka beri
þessar tölfræðilegu staðreyndir
með fyrirvara því fleiri orsakir
gætu komið til en kjarnorkuverin
á svæðinu.
Karólína
meðal
glæsikvenna
New York, 7. desember. AP.
KARÓLÍNA prinsessa af Mónakó
er í hópi 10 glæsilegustu kvenna
heims, að mati ritstjóra tízkuritsins
Elle, sem gefið er út í Bandaríkjun-
um, Frakklandi og Englandi.
Ritstjórarnir segja 10 glæsileg-
ustu konurnar hafa einstakt tízku-
skyn og að klæðaburður þeirra og
framkoma kalli fram meðfæddan
yndisþokka, sem sé ekki einungis
aðlaðandi heldur beinlínis töfr-
andi.
Auk Karólínu eru í hópi 10
glæsilegustu kvenna heims sjón-
varpsfréttamaðurinn Barbara
Walters, leikkonan og sýningar-
stúlkan Lauren Hutton, gullsmið-
urinn Paloma Picasso, veitinga-
maðurinn Tina Chow, söngkonan
Sade, franska tízkusýningarstúlk-
an Ines de la Fressange, leikkonan
Anouk Aimee og fatahönnuðurinn
Carolina Herrera.
Tekið er til þess að á listanum
eru hvorki Díana prinsessa, frú
Nancy Reagan eða Jacqueline
Onassis.
KÚBUMENN verða sífellt virkari í
átökum við uppreisnarmenn, sem
berjast gegn ríkisstjórn Nicaragua
með tilstyrk Bandaríkjastjórnar.
Þetta kemur fram í skýrslu frá ut-
anríkisráðuneyti Bandaríkjanna og
er hún byggð á frásögnum liðhlaupa
úr her og stjórn Nicaragua. Þar
segir að Kúbumenn taki nú beinan
þátt í átökum við uppreisnarmenn
og fullyrti George Shultz utanríkis-
ráðherra á fréttamannafundi í til-
efni af útkomu skýrslunnar að þetta
væri rétt.
Daniel Ortega, forseti Nic-
aragua, hefur ásakað Bandaríkja-
stjórn fyrir að ógna friði í lofti í
Mið-Ameríku, með því að láta
uppreisnarmönnum í té SAM-7-
flugskeyti, sem að hans sögn
grandaði þyrlu frá her Nicaragua
fyrr í vikunni með 14 manns innan-
borðs. Ef þetta er rétt er það í
fyrsta skipti sem uppreisnarmenn
beita flugskeytum. Sagði hann að
með þessu styddi og löggilti
Bandaríkjastjórn aðgerðir hryðju-
verkamanna og þetta gæti leitt til
örrar útbreiðslu þessarar notkun-
ar vopna í höndum uppreisnar-
manna. Hann vék sér undan því
að svara spurningum um það hvort
einhverjir Kúbumenn hefðu farist
með þyrlunni, en fregnir herma
að þeir hafi verið fjórir talsins.
Sagði Ortega þessa notkun vopna
ógna friðnum í Mið-Ameríku og
að hann vonaðist til að önnur lönd
í heiminum krefðust þess að komið
yrði í veg fyrir notkun þeirra.
Að sögn Elliott Abrams, aðstoð-
arutanríkisráðherra Bandaríkj-
anna, sem fer með málefni Mið-
Ameríku, eru 2.500 kúbanskir
hernaðarráðgjafar í Nicaragua og
sagði hann að stöðugt fleiri þeirra
tækju þátt í bardögum við upp-
reisnarmenn, einkum sem varalið.
Hann bætti því við að stjórn
Sandinista virtist vera að herða
aðgerðir sínar gegn uppreisnaröfl-
unum í framhaldi af því er neyðar-
ástandi var lýst yfir 15. október í
ár í landinu. Hann sagði að af 27
milljón dollara aðstoð við upp-
reisnarmenn sem þingið hefur
samþykkt, hefði helmingurinn
verið afhentur og hefði hluti henn-
ar farið til kaupa á ýmsum hjálp-
argögnum til aðhlynningar sjúkra.
I gær þvertók talsmaður Nic-
aragua-stjórnar fyrir það að kúb-
anskir hernaðarráðgjafar tækju
þátt í átökum við uppreisnarmenn
og ásakaði Bandaríkjastjórn fyrir
að nota það sem tylliástæðu fyrir
því að auka aðstoð sína við upp-
reisnarmenn.
Svissneskir flugmenn dæmdir fyrir manndráp á Grikklandi:
Hæstiréttur vísaði
máli þeirra frá sér
Aþenu, 7. desember. AP.
HÆSTIRÉTTUR Grikklands vís-
aði frá sér máli tveggja svissn-
eskra (lugmanna sem grískur
dómstóll dæmdi fyrir manndráp
af gáleysi. Formgallar voru á mál-
inu og verður það tekið upp að
nýju fyrir áfrýjunarrétti.
Tildrög málsins eru þau að 14
manns fórust er DC-8 þota frá
Svissair, með 154 farþega innan-
borðs, rann fram af flugbraut á
Aþenuflugvelli 7. október 1979.
Eldur kviknaði í þotunni er hún
féll fram af upphækkun og biðu
14 manns, sem sátu fastir í aft-
asta hluta hennar, bana.
Dómstóll úrskurðaði í fyrra að
orsök óhappsins væri flug-
mannsmistök. Flugmennirnir,
Fritz Schmutz, flugstjóri, og
Martin Deuringer, kváðust hafa
farið að öllu rétt en fengið rangar
upplýsingar frá flugumferðar-
stjórum i Aþenu um ástand flug-
brautarinnar, sem var undir
vatni er flugvélin lenti.
Schmutz var dæmdur í fjög-
urra ára fangelsi og Deuringer í
tveggja. Þeir voru látnir lausir
gegn tryggingu.