Morgunblaðið - 08.12.1985, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. DESEMBER1985
Málverkauppboð
Klausturhóla
Á málverkauppboði Klausturhóla
á Hótel Sögu á morgun, mánudag,
verða meðal annars gömul verk eft-
ir Þorvald Skúlason og Jón Engil-
berts.
Uppboðið hefst klukkan 20.30,
en verkin á uppboðinu verða til
sýnis í dag og á morgun á milli
klukkan 14.00 og 18.00 á Hótel
Sögu. Á uppboðinu verða meðal
annars verk eftir eftirtalda höf-
unda: Ásgrím Jónsson, Jón Stef-
ánsson, Kjarval, Kristínu Jóns-
dóttur, Þorvald Skúlason, Gunn-
laug Blöndal, Jón Engilberts,
Snorra Arinbjarnar, Eyjólf Ey-
fells, Svein Björnsson og Hring
Jóhannesson.
Morgunblaðið/EBB
Guðmundur Axelsson í Klausturhólum með tvö verkanna, sem verða á
uppboðinu.
í Kaupmannahöfn
FÆST
í BLAÐASÖLUNNI
ÁJÁRNBRAUTA-
STÖÐINNI,
KASTRUPFLUGVELLI
OG Á RÁÐHÚSTORGI
Besti vinur..
litlu stúlkunnar er auðvitað
mjúk og hlý Camilla Milla
dúkka.
Við hana getur hún bjástrað
á daginn, sofnað með á
kvöldln og huggað sig við,
þegar eitthvað bjátar á.
Camilla Milla dúkkurnar
eru sterkar, vandaðar og
þola að á þeim sé tekið.
Camilla Mllla er frá SEBINO
Það tryggir gæðin.
Góð aðkeyrsla, næg
bílastæði.
Póstsendum um land allt.
TómsTunoflHúsis hf
laugaumM-fleglwil: S--21S01
28 dagar 8. jan. — 5. febr.
Beint leiguflug
Verö aöeins kr. 33.0001-
Nú er hægt að stytta skammdegið á viðráöanlegu verði og njóta
sólar og sumaryls í hinni fögru sólskinsparadís Kanaríeyja, Tenerife,
þar sem rósirnar vaxa við gangbrautir á miðjum vetri og sjórinn,
sólskinið og skemmtanaloftið er eins og fólk vill hafa það.
Hermann Ragnar Stefánsson skipuleggur
skemmtilega dvöl fyrir ungt fólk yfir sextugt og
er fólki til aðstoðar ásamt öörum fararstjórum.
Þátttaka er heimil öllum íslendingum 60 ára og
eldri. Þátttöku þarf að tilkynna sem fyrst þar sem
takmarkaö pláss er til ráðstöfunar. (En venjulegt
verð fyrir 4ra vikna ferð er um kr. 10.000,- dýrari
en þetta tilboö).
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu okkar.
Aðrar ferðir okkar;
Jólaferö: Landið helga — Egyptaland og London,
18. des. 19 dagar.
Kanaríeyjar: Jólaferð 18. des. 22 dagar, 8. jan.
28 dagar, 5. febr. og 26. febr. 22 dagar. Páskaferð
19. mars 15 dagar.
Saga Sig-
urðar frá
Brún end-
urútgefín
BÓKAÚTGÁFAN Kjölur hefur sent
frá sér aóra útgáfu bókarinnar Einn
á ferð og oftast ríðandi, eftir Sigurð
Jónsson frá Brún.
í fréttatilkynningu frá útgef-
anda segir: „Sigurður Jónsson frá
Brún var landskunnur ferðamað-
ur. Hann átti löngum marga hesta,
unni þeim og umgekkst sem vini
sína, hvort sem þeir voru hrekkj-
óttir eða hrekklausir, gæfir eða
styggir, geðgóðir eða geðillir. Víða
hefur hann ratað, farið lítt troðnar
götur, — og oftast ríðandi. Hand-
leggur, Snúður og Snælda hafa
verið kærustu förunautar hans,
þótt stundum hafi kastast 1 kekki
með þeim, eins og gjörla segir frá
í þessari bók.
Hér er á ferðinni kjörin bók fyrir
ferðamenn, hestamenn og alla þá,
sem náin kynni vilja hafa af landi
og þjóð.“ í bókinni eru teikningar
eftir Halldór Pétursson. Kápu-
teikningu gerði Brynhildur Ósk
Gísladóttir. Bókin er 244 bls.
Sigurður Jónsson frá Brún
EINNÁ FERÐ
OG OFTAST RÍDANDI
Attræður:
Guðmundur L.
Fríðfínnsson
rithöfundur
ÁTTRÆÐUR verður á morgun,
mánudag 9. desember, Guðmundur
L. Friðfinnsson bóndi og rithöfund-
ur á Egilsá í Skagafirði. Guðmundur
hefur búið á Egilsá í meira en hálfa
öld og rak um skeið sumardvalar-
heimili fyrir þéttbýlisbörn ásamt
eiginkonu sinni, Önnu Sigurbjörgu
Gunnarsdóttur, en stundar nú skóg-
rækt á jörð þeirra.
Guðmundur hefur skrifað fjölda
bóka um margvísleg efni. Um
þessar mundir eru að koma út eftir
hann bækurnar Örlög og ævintýri,
síðara bindi og leikritið Sumarjól
með tónlist eftir Árna Isleifsson.
Guðmundur verður að heiman á
afmælisdaginn.
Vinur