Morgunblaðið - 08.12.1985, Side 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. DESEMBER1985
Ein og hálf öld
fráfœðingu
MARK
TWAIN
„Hershöfðingi, ég virðist
hálffeiminn; en þú? " sagði
Mark Twain þegar
vandrœðaleg þögn varð í
fyrsta samtali hans og
Grants, hins fræga
herforingja norðanmanna
í bandaríska þrœlastríðinu
og síðar forseta.
Hershöfðinginn hló og
engin önnur vandræðaleg
þögn varð í samtali þeirra.
Þótt það væri sérgáfa
Twains að fá fólk til að
hlæja var hann annað og
meira en kímniskáld og
háðfugl. Frægasta bók
hans,
„S tikilsberja-Finnur ",
kom fyrst út fyrir einni öld
og á því merkisafmœli um
svipað leyti og
höfundurinn, sem fœddist
fyrir réttum 150 árum.
Bókin er ekki aðeins
skemmtileg aflestrar og
góð afþreying: húner
bókmenntaafrek og hefur
Asvipaðan hátt og
„Stikilsberja-
Finnur" er „Am-
eríkumaður við
hirð Artúrs kon-
ungs“ („A
Connecticut
Yankee in King Arthur’s Court")
annað og meira en sérvizkuleg fu
rðusaga; sú bók er nöpur og háðsk
ádeila á riddaramennsku og léns-
skipulag miðalda. Ádeilan kemur
skýrast fram þegar höfundurinn
fjallar um yfirgang hinna ríku og
voldugu og kúgun alþýðufólks.
Mark Twain hafði ekki síður
áhrif á önnur kímniskáld en alvar-
lega rithöfunda á borð við Hem-
ingway. Spéfuglar, sem skemmta
öðru fólki, líkja enn eftir aðferð-
um, sem hann notaði þegar hann
hélt fyrirlestra. Allir höfundar
grínefnis hafa orðið fyrir áhrifum
frá stuttorðum og kaldhæðnislegu
m predikunum ha XLns (dæmi:
„Maðurinn er eina lífveran sem
roðnar; eða ætti að gera það.“).
Twain samdi fyndnar ferðabæk-
ur. Hann skrifaði ævisögur eins
og „Joan of Arc“, sem er undarlegt
verk, en þótti skemmtilegt. Ein-
kennilegast var að hann skrifaði
af djúpri, heimspekilegri alvöru
um lífið og manninn og trúarbrögð
mannsins. Síðast en ekki sízt skrif-
aði hann á „alþýðlegri og tilgerðar-
lausri ensku“ af mikilli kunnáttu
og leikni. Sumir segja að því megi
halda fram að hann sé merkasti
rithöfundur Bandaríkjanna.
Fljótalíf
Mark Twain hét réttu nafni
Samuel Langhorne Clemens og
fæddist 30. nóvember 1835 í
Florida, Missouri, afskekktum
stað, um 60 km suðvestur af bæn-
sér höfundarheitið „Mark Twain",
sem lóðsarnir hrópuðu þegar þeir
mældu dýpt og hún reyndist „tveir
faðrnar."
Til Nevada
Þáttaskil urðu í Ufi Twains
þegar þrælastríðið hófst. Hann
missti atvinnuna þegar átökin
nálguðust og tók þátt í heræfing-
um vopnaðrar sveitar, sem æsku-
félagar hans komu á fót í Hannibal
1861 til stuðnings Suðurríkjasam-
bandinu. Eftir hálfan mánuð urðu
þeir leiðir á æfingunum og her-
flokkurinn leystist upp.
Skömmu síðar fór Mark til
Nevada ásamt Orion bróður sín-
um, sem hafði barizt fyrir kjöri
Lincolns forseta og fékk að launum
vellaunað embætti þar. í Nevada
starfaði Twain við blaðið „Enter-
prise" í Virginia City, leitaði að
gulli og aflaði sér reynslu, sem
hann lýsti rúmum tíu árum síðar
í bókinni „Roughing It“.
Ári síðar fór hann til Kaliforníu,
hóf þar ritstörf og náði skjótum
vinsældum. Höfundarnafn sitt
notaði hann í fyrsta skipti þegar
hann sendi frá sér gamansamt
ferðabréf í febrúar 1863. Tveimur
árum síðar varð hann fyrst frægur
þegar hann gaf út „froskasögu"
sína („The Celebrated Jumping
Frog of Calaveras County"), sem
náði mikilli útbreiðslu. Um sama
leyti hófst ferill hans sem fyrirles-
ari.
Snemma árs 1867 fór hann alfar-
inn til austurstrandarinnar til að
afla sér frægðar og frama. Um
sumarið og haustið ferðaðist hann
um Evrópu og Landið helga og
viðaði að sér efni í ferðabókina „A
flækingi" („The Innocents Abro-
ad“), sem varð geysivinsæl þegar
hún kom út 1869. Við tók mikið
velgengnitímabil.
Árið 1870 kvæntist hann Oliviu
Langdon frá Elmira, New York.
Hún var erfingi mikilla kola-
auðæfa og 61 honum þrjár dætur.
Þau bjuggu fyrst í New York, en
síðan í Hartford, Connecticut, og
loks í „Stormfield" í Redding í
sama ríki.
Twain ferðaðist mikið alla ævi,
var sískrifandi og flutti ótal fyrir-
lestra. Hann varð næstum því eins
vinsæll á Englandi og í heimalandi
sínu. Svo mikla hylli hlaut hann
fyrir bækur sínar, fyrirlestra,
ræður, fleygar staðhæfingar og
er deilt um
um Hannibal við Mississippifljót.
Þangað fluttist hann með fjöl-
skyldu sinni fjórum árum síðar.
f Hannibal varð hann þátttak-
andi í iðandi lífi þess tíma á bökk-
um stórfljótsins og alla ævi lof-
söng hann bæinn, fljótið, fólkið og
skólafélagana, sem hann lýsir í
„Stikilsberja-Finni“ og „Tom
Sawyer" (í þeirri bók er bærinn
Hannibal kallaður St. Petersburg).
„Ég sé enn fyrir mér gamla tíma:
gamli bærinn blundar á sumar-
morgni, fljótið Mississippi líður
áfram, mílubreitt, stórfenglegt og
tignarlegt og geislandi í sólskin-
inu,“ skrifaði hann síðar.
Faðir hans, John Clemens, var
misheppnaður lögfræðingur, sem
lét sig alltaf dreyma um auð og lézt
áður en sá draumur hans yrði að
veruleika að hann gæti gert
Hannibal að mikilvægum við-
komustað við járnbrautina, sem
færðist vestur á bóginn.
Twain var 12 ára gamall þegar
faðir hans lézt og varð að sjá um
sig sjálfur. Hann hætti skólagöngu
tveimur árum síðar og fór að heim-
an 1853, lærði prentiðn, vann á
blöðum í mörgum borgum og fór
alla leið til New York.
Árið 1857 fór hann aftur heim
og varð stýrimaður og lóðs á Miss-
issippi. Um þetta leyti tók hann
Skopmynd af Twain
um það leyti
sem „froskasaga"
hans kom út.
Twain i þeim árum þegar hann ferð-
aðist til Evrópu og Palestínu.
að geyma harða
þjóðfélagsgagnrýni.
JStikilsberja-Finnur"
hefur að vísu verið umdeilt
verk, sem hefur verið
gagnrýnt fyrir
kynþáttahroka, en er fyrir
löngu orðin klassískt.
„Allar bandarískar
bókmenntir eru runnar frá
einni bók eftir Twain,"
skrifaði Ernest
Hemingway, „oghún
kallast
JStikilsberja-Finnur". Á
undan henni var ekkert til.
Síðan hefur ekkert jafnazt
á við hana."
semenn
Háðfugl