Morgunblaðið - 08.12.1985, Qupperneq 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. DESEMBER1985
MARK
TWAIN
Ameríkumaður við hirð Artúrs konungs.
í tugum sveitarfélaga í Bandaríkj-
unum. Bókin olli miklu fjaðrafoki
í Fairfax-sýslu, Virginíu, 1982,
þegar unglingaskóli, sem kenndur
er við Mark Twain, tók hana út
af námskrá, þar eð hún væri full
kynþáttahroka.
Æðri stjórnvöld í Fairfax
hnekktu ákvörðuninni. En í fyrra
var hún tekin út af námskrá í
Waukegan, Illinois, vegna kvört-
unar héraðsráðsmanns um að hún
væri móðgandi í garð blökku-
manna. í vor sagði síðan fulltrúi
í fræðsluráðinu í Chicago að
brenna ætti bókina.
Óþekkt bréf
Fyrr á þessu ári birtu fræði-
menn áður óþekkt bréf frá Twain
í von um að það mundi endanlega
hreinsa hann af öllum ásökunum
um kynþáttahatur á stórafmælum
hans og Stikilsberja-Finns.
Twain skrifaði þetta bréf forseta
lagadeildar Yale-háskóla til að
fara fram á að efnilegur blökku-
stúdent, Warner T. McGuinn, fengi
styrk. McGuinn varð síðar kunnur
lögfræðingur í Baltimore og bar-
áttumaður mannréttinda. Twain
skrifaði:
„Kæri herra, þekkirðu hann?
Heldurðu að hann sé verðugur? Eg
held ég mundi ekki fúslega hjálpa
hvítum stúdent, sem bæði ókunnan
mann að gera sér greiða, en mér
finnst öðru máli gegna með menn
af öðrum litarhætti. Við höfum
drepið manndóm þeirra og það er
okkur til skammar, en ekki þeim.
Við ættum að bæta fyrir það ...
svo framarlega sem ungi maðurinn
sparar við sig, og það ætti sá sem
þrengt hefur verið að fjárhagslega
að leggja stolt sitt í að gera.“
Twain bauðst síðan til að greiða
fæði McGuinns og húsnæði og
gerði það þar til hann útskrifaðist
1887.
Fræðikonan dr. Shelley Fisher
Fishkin, sem staðfesti að bréfið
væri skrifað með rithönd Twains,
kallaði það fyrstu beinu sönnunina
um að hann hefði stutt nokkra
blökkustúdenta fjárhagslega. Hún
sagði að bréfið væri fágæt yfirlý3-
ing rithöfundarins um afstöðu
hans til arfleifðar þrælahaldsins,
sem hafði verið afnumið 20 árum
áður en bréfið var skrifað.
Aðrir lýstu yfir stuðningi við
þessa túlkun, en dr. John Wallace,
svartur fræðimaður í Chicago, var
á öðru máli: „Ég held að hann
hafi viljað leiðrétta nokkrar þær
misgerðir, sem hann gerði sig
sekan um með því að skrifa þetta
rusl.“
Mark Twain. Málmristumynd eftir
Ijósmynd.
Einn þeirra sem tóku upp hanzk-
ann fyrir Twain var Ronald Reag-
an forseti, sem sagði að Stikils-
berja-Finnur og vinur hans Jim
strokuþræll væru ímynd banda-
rískra verðmæta. „Stikilsberja-
Finnur reyndi hvað hann gat að
gera Jim kleift að halda frelsi sínu
og honum tókst það að lokum,"
sagði Reagan. „Ég held að bókin
segi mikla sögu um siðferðilegan
tilgang menntunar og um gott
hjartalag, sem við reynum að
innræta börnum okkar."
Forsetinn sagði að nemendur í
einkaskólum jafnt sem opinberum
skólum „ættu ekki aðeins að læra
undirstöðugreinar, heldur einnig
grundvallar verðmætamat. Nokk-
ur þeirra verðmæta, sem ætti að
kenna, sagði Reagan, eru „mikil-
vægi réttlætis, jafnréttis, trúar-
bragða og frelsis og reglur um rétt
og rangt".
„Margt af því sem Reagan segir
er satt,“ sagði Doris Grumbach,
prófessor í Ameríkuháskólanum í
Washington. „En hvers vegna
strauk Stikilsberja-Finnur, ef
hann mat lífið í Bandaríkjunum
mikils? Hann vildi verða frjáls og
óháður, reykja þegar honum sýnd-
ist og sækja ekki skóla."
Hún kvaðst sammála því að
Stikilsberja-Finnur væri „hjarta-
hreinn, en aðalatriðið er að hann
veit meira um hið góða og illa í
manninum en nokkur annar skóla-
drengur. Mark Twain hafði þá
bjargföstu skoðun að menntun
skipti ekki hinu minnsta rnáli."
GH tók saman.
1 11
Jólakveöja
Jólin nálgast og árin líða
eftir jólakortum ekki bíða.
Verðum á sjónum í skemmtitúr
vonum þið veröiö ekki súr.
Svo héðan úr Californiusól,
óskum við öllum gleöileg jól.
Systa, Baddi og Stefán.
T-Jöföar til
XJLfólks í öllum
starfsgreinum!
"STRIÐ OG SÖNGU R
Matthias Viöar Sœmundsson
—Hispurslaus frásögn
litríkra listamanna
Sex islensk skáld lýsa viöhorfum
sinum til lífs og dauða, trúar, ástar og
listarog rekja leiö sina til skáldskapar.
Skáldin rekja þá reynslu sem þeim er
minnisstæðust og haft hefur dýpst
áhrif á þroska þeirra og lifsviðhorf.
Þau eru öll fædd milli striða og tóku
út þroska sinn á miklum umbrota-
tímum i sögu þjóðarinnar. Hér er
margt látið fjúka sem fæstum er áður
kunnugt.
Guörún Helgadóttir Álfnln Gunnlaugsdóttir
Thor Vilhjálmsson Indriði G. Þorsteinsson
Þorsteinn frá Hamri Matthlas Johannessen
Verö kr. 1.280.00.
TVF JARÐARFÖR”....—.......
LANDSMOÐURINNAR GÖMUI
Gabriel Garcia Márquez
—Meistaraverk Nóbels-
skáldsins
Makondó — þorpið þcu sem menn
þrauka og biöa. Þorpiö þar sem
grimmdin og niöurlægingin ríkir.
Andrúmsloftið mettað raka — hita-
svækjan óbærileg.
Af meistaralegri íþrótt fléttar skáldið
saman sögu þjóðar sinnar, kvunn-
dagsleika hennar, kjaftasagnir og goð-
sagnir. Þessi veröld er allt i senn, jarð-
bundin og smámunasöm, full af undr-
um og stórmerkjum.
Þorgeir Þorgeirsson þýöir verkið af
einstakri snilld.
Verö kr.1.087.00 innb.—kr. 850.00 kilja.
ÍSLENSKIR ELSKHUGAR
—viötöl viö átjan karlmenn-
Jóhanna Sveinsdóttir
— Opinská og heiðarleg
Karlmenn á aldrinum 20—75 ára ræða
um ástir sinar og tilfinningamál.
Hreinir sveinar og flekkaðir, skemmti-
staöafolar í ævintýraleit, ráðsettir
margra barna feðpr, Einsi kaldi úr
Eyjunum og Fúll á móti.
í bókinni er að finna einlægar um-
ræður um ástir og tilfinningar karla—
efni sem islenskir karlmenn ræða
sjaldan ódrukknir nema í tvíræöni og
hálfkæringi.
Verð kr. 1.180.00 innb —kr. 880.00 kilja.