Morgunblaðið - 08.12.1985, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. DESEMBER1985
Jónas Guðmundsson
Saltar sögur
eftir Jónas
Guðmundsson
BÓKAÚTGÁFA Menningarsjóðs
hefur gefið út bókina Saltar sögur
eftir Jónas heitinn Guðmundsson,
en það er sýnisbók af smásögum
höfundar. Helgi Sæmundsson valdi
efni í bókina og ritar eftirmála þar
sem hann kveðst hafa lokið við að
velja sögurnar í samráði við Jónas
er hann lést 9. júní í sumar.
Fimmtán „Saltar sögur" eru í
bókinni og eru þrettán þeirra úr
smásagnasöfnunum Dáið á mið-
vikudögum, sem út kom árið 1969
og Farángri frá 1979. Tvær hafa
ekki birst fyrr.
Kynning höfundar og bókar á
kápu er á þessa lund:
„Sögur Jónasar Guðmundssonar
fjalla nær allar um sjómannalíf
og farmennsku eða að minnsta
kosti hlutskipti fólks við sjávarsíð-
una, en af þessu draga Saltar sög-
ur nafn. Höfundur var jöfnum
höndum rithöfundur og myndlist-
armaður. Sögurnar bera þessu
vitni. Þær einkennast löngum af
frásagnargleði og hugkvæmni Jón-
asar Guðmundssonar en eru eigi
síður myndrænar, hvort heldur
viðfangsefnið telst mannlýsingar
eða atburðir. Saltar sögur eru sýn-
isbók smásagna Jónasar og harla
fjölbreyttar enda þótt drög að
þeim virðist oft hin sömu í fljótu
bragði. Þær reynast margar
skemmtileg listaverk sem spegla
aldarfar, baráttu og sífellda ham-
ingjuleit, þó að á ýmsu velti. Best
lætur höfundi að skilgreina sér-
kennilega einstaklinga í átökum
við óblíð náttúruöfl þar sem iðu-
lega munar mjóu hver úrslit verði.
Smásagnagerðin hentaði Jónasi
Guðmundssyni vel og skipaði hon-
um á bekk með sjálfstæðum og
listfengum höfundum. Bak við
gáska og tiltektir ríkir einlæg
alvara og næmur skilningur á
mannleg örlög."
Saltar sögur eru 172 bls. að
stærð. Bókin er unnin í prent-
smiðjunni Eddu. Kápu teiknaði
Sigurður Örn Brynjólfsson.
1.600 íbúðir
fullgerðar 1984
f ÁRSLOK 1984 voru í byggingu
4.476 íbúðir hér á landi, samtals
2.288 þásund rúmmetrar að stærð.
Fullgerðar íbúðir á árinu voru 1.601,
samtals að stærð 813 þúsund rúm-
metrar. Til samanburðar voru 4.516
íbúðir í byggingu (2.394 þús. rúmm.)
og lokið við 1.623 íbúðir (783 þús.
rúmm.)
(Heimild: Atvinnuvegaskýrslur/
Þjóðhagsstofnun)
Cterkurog
hagkvæmur
auglýsingamiöill!
DAVID MORRELL
Konsalík
am
Tt
'USI
Lík ungrar stúlku er flutt af
skuröstofu sjúkrahússins um
miöja nótt. Enginn veit hver
fylgdi henni á sjúkrahúsið né
hverjir ættingjar hennar eru.
Þessa nótt hefst harmleikur sem
hefur örlagaríkar afleiöingar
á sjúkrahúsinu.
Erika Werner er ungur læknir
sem stendur í ástarsambandi viö
Bornholm yfirlækni, aöalskurö-
lækni sjúkrahússins.
Henni er ekki Ijóst að hann notar
hana á miskunnarlausan hátt til
aö hylja yfir glæp.
Áöur hafa komið út eftir Heinz
G. Konsalik á íslensku bækurnar
Hjartalæknir mafíunnar, Eyði-
merkurlæknirinn og Hákarlar um
borð og hefur hann þegar tryggt
sess sinn á íslenskum markaði.
Ó guö
minn góöur!“ sagði konan.
„Þaö eru fleiri grafir sem ekki finnast."
Allt byrjaði þetta í heimsstyrjöldinni síöari
og endaði þrjátíu og sjö árum síðar á skelfi-
legan hátt. Pétur Houston kemurtil Frakk-
lands til að efna gamalt heit um aö heim-
sækja leiði fööur síns sem dáið haföi
í stríðinu. En yfirvöld tjá honum aö
leiöiö finnist ekki og franskur vinur fööur
hans sem lofað haföi að annast gröfina haföi
horfiö á dularfullan hátt áriö 1944.
Eini maðurinn sem veit leyndarmál hans er
gamall og lasburöa prestur sem er þögull
eins og gröfin.
Höfundur bókarinnar, David Morrell,
nýtur mikilla vinsælda og bækur hans
seljast í stórum upplögum um allan heim.
Eftir fyrstu bók hans, í greipum dauöans, var
gerð samnefnd kvikmynd (First Blood),
og söguhetjan Rambo varö síöar tilefni
annarrar geysivinsællar myndar.
IÐUNN
ví-
ÞÚ ’*SOFNAR> SEINT lfM*ÞESSI*JÓL
ÁRA
OCTAVO/SlA 23.24