Morgunblaðið - 08.12.1985, Qupperneq 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. DESEMBER1985
Sveinn Björnsson listmálari við eitt verka sinna í Listveri.
Myndlist
Bragi Ásgeirsson
Það er um margt óvenjuleg
sýning sem í gangi er í hinu
nýstofnaða galleríi, eða réttara
sagt sýningarsal, á Seltjarnar-
nesi, er hlotið hefur nafnið
Austurver.
í stuttu máli þá hófu þeir
Sveinn Björnsson listmálari og
Matthías Johannessen skáld í
rælni þann leik að tengja
saman myndlist og ljóð og mun
sú samvinna hafa átt upphaf
sitt á síðastliðnu vori.
Myndirnar eru unnar á þann
hátt, að Matthías skrifaði ljóð
eða ljóðabrot á auðar arkir og
síðan málaði Sveinn myndirn-
ar á arkirnar. Má segja að í
þessu formi séu myndirnar
ekki bein og skipuleg mynd-
skreyting við ljóð, heldur er
ætlast til að ljóðin verði hluti
af heildinni, — falli að formi
lit, línu og hugarflugi mynd-
listarinnar.
Ljóðin eru og misjafnlega
læsileg eftir viðhorfi málarans
hverju sinni en einnig virðist
næmt auga geta greint að
stundum hafi litur og vatn
óvart blandast ljóði og að
nokkru máð út línur og hnikað
til samhengi orða. Slíkt er
sjaldan til prýði nema að unnið
sé út frá súrrealistískum við-
horfum. Mynd og ljóð, svo og
ljóðabrot, eiga að njóta sín til
fulls og mynda órofa heild ef
vel á að fara.
Þetta tekst á köflum svo sem
í myndunum „Fagur er dalur"
(4) „Flýgur örn yfir“ (6), sem
er að mínu mati heillegasta
myndin vegna þess að ljóðíð
rennur inn í myndheildina lík-
ast árfarveg úti í náttúrunni,
rökrétt og eðlilega. Þá er
myndin „Ljóð úr sögu“ (12)
ákaflega létt og ljóðræn í út-
færslu allri.
Það er líkast til, sem að þessi
samvinna hafi magnað Svein
upp sem myndlistarmann því
myndirnar eru margar hverjar
mýkri og ferskari en maður á
að venjast frá hendi hans.
Matthías er líka óvenju kröft-
ugt og myndríkt skáld, sem
hlýtur að hrista upp í hugar-
flugi þeirra er myndskreyta
ljóð hans.
Matthías hefur og flestum
skáldum verið skilningsríkari
á þýðingu lýsingu ljóða því að
ýmsir myndlistarmenn hafa
lagt hönd að verki við útgáfu
ljóða hans.
Samvinna skálda og mynd-
listarmanna er ekkert sem
telst til nýjunga því að lýsingar
hafa verið gerðar í margri
mynd og bæði við ljóð og mál-
verk. Stundum hafa myndlist-
armennirnir teiknað fyrst og
skáldið síðan samið Ijóðið
undir hughrifum frá teikning-
unni. Hef ég séð mörg stórvirk-
in á því sviði á sýningum er-
lendis. Þetta er og ekki heldur
óþekkt hérlendis. Listamenn
ólíkra listgreina eiga að vinna
saman í einhverjum mæli því
það er þeim til góðs og eykur
á sköpunarmátt þeirra — upp-
hefur þá í hæstu hæðir í sum-
um tilvikum.
Hvað sem öðru líður þá hefur
þessi samvinna þeirra Sveins
og Matthíasar skilað eftirtekt-
arverðum árangri, sem kann
að marka tímamót í list annars
hvors og jafnvel beggja. Slík
samvinna sem þessi er alltaf
skemmtun frá upphafi til enda
og aldrei á að koma til tals að
sýna myndir fyrr en þær
standa fyrir sínu sem gild
myndverk.
Sem myndlistarsýning er
þetta ein sú besta, sem frá
Sveini hefur komið og rökrétt
framhald af sýningu hans á
Kjarvalsstöðum eigi alls fyrir
löngu. Inn í hreina ljóðrænuna
í lit hefur Sveinn staðsett fyrri
hugarflugsform sín og gerir
það af fíngerðari tilfinningu —
fjarlægst hið grófa og hvella
til hags fyrir l’Art líkt og þeir
segja í Frans.
Það er hárrétt sem Sveinn
segir „að ekki sé mögulegt að
vinna á þennan hátt nema ljóð-
in séu myndræn (malerísk).
Það veit enginn nema sá er
reynt hefur hve erfitt er að
myndskreyta ljóð er á engan
hátt ýta við tilfinningum
myndlistarmannsins. Dregið
saman í hnotskurn þá hefur
þessi samvinna skilað góðum
árangri og mega báðir lista-
mennirnir vel við una.
AMSTRAD
---háþróuð afburðatölva-
Tölvukaupendur fá alltaf meira og meira fyrir peningana sína.
f þeirri þróun er Amstrad tvímælalaust toppurinn:
Allt á einum st«6:
AMSTRAD CPC 6128 128k meft diskdrifi og litaskja . 32.980 kr.
AMSTRAD CPC 464 64k með segulbandi og Mtaskjá . 21.980 kr.
AMSTRAD DISKDRIF með tengi..................... 12.995 kr.
AMSTRAD diskdrif nr. 2 .................................. 8.200 kr.
AMSTRAD talbox og 2 sterio hatalarar........... 2.495 kr.
AMSTRAD Ijósapenni.............................. 960 kr.
AMSTRAD telex-tengi............................ 3.950 kr.
AMSTRAD sjónvarps-tengi........................ 2.320 kr.
AMSTRAD stýripinni ........................................ 850 kr.
Aliar tæknilegar upplysingar fast í tölvudeild
Bókabúð Braga
TOLVULAND H/F
Bókabúð
Umboðsmenn um land allt
Bókabuð keflavikur • Kaupfélag Hafnarljarðar
Bókaskemman Akranesi
KEA - hljómdeild Akureyri og viðar.
Laugavegi 118v/Hlemm S 29311.6?1122