Morgunblaðið - 08.12.1985, Qupperneq 37

Morgunblaðið - 08.12.1985, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. DESEMBER1985 37 Fæðist líf af fold? Bókmenntir Jóhanna Kristjónsdóttir Ásta Siguröardóttir. Sögur og Ijóð. Útgefandi Mál og menning 1985. Sögur Ástu Sigurðardóttur hafa verið kynntar allítarlega síðustu mánuði og er hlutur Kjallaraleik- hússins þar drjúgur. Helga Back- mann og liðsmenn hennar unnu þar ágætt verk eins og lofað hefur verið víða. Smásögurnar í bók Ástu Sunnu- dagskvöld til mánudagsmorguns voru mjög nýstárlegar á sínum tíma og eru löngu uppseldar. Þær virðast eftir þessi endurnýjuðu kynni ekki síður höfða til fólks nú en um þær mundir sem bók sú var send út. Hrár og miskunnarlaus er sá veruleiki sem er brugðið upp í fyrri smásögum Ástu Sigurðar- dóttur. Þó missir hún ekki trúna á það góða í manneskjunni og persónur hennar (sem oft eru hún sjálf í ýmsum útgáfum) bregðast fagnandi við litlu viðviki. Og ætlar eiginlega engum beinlínis illt, þótt svo kunni það að horfa við. Margar þessara sagna eru afar vel skrifaðar og vel uppbyggðar. Agað og knappt form smásögunn- ar hefur Ásta á valdi sínu og hún dregur persónur sínar upp af því- líkri leikni að þeir stíga sumar ljóslifandi upp af blöðum bókar- innar. Nú hefur verið gefið út eins konar ritsafn Ástu, Því að nokkrar sögur og nokkur ljóð „fundust" að henni löngu látinni. Ég hef áður tjáð þá skoðun mína, að það geti orkað tvímælis svo að ekki sé meira sagt að gefa út verk sem höfundar virðast hafa lagt frá sér. Annaðhvort vegna þess þeir ætfe sér að vinna það meira síðar, elleg- ar hugnast það ekki: það hefur ekki heppnast sem að var stefnt. Höfundar eru hins vegar afar treg- ir til að eyðileggja hugverk sín, þótt þeir líti svo á að þau séu hálf eða algerlega misheppnuð. Það er vitað og margsýnt mál. Þó að vissulega sé freistandi að sinna handritum sem koma í leitirnar síðar verður að reyna að meta það hlutlægt og án þess að tilfinningar eða skyndistemmning ráði. Aðeins ein af sögunum í seinni hlutanum, sú fyrsta, Frostrigning, > mvWmí Asta Sigurðardóttir finnst mér hefði átt að vera prent- uð. Það vantar kjöt á beinið í þeim flestum hinna, það vantar stíl Ástu og tjáningu þá sem henni var framan af töm. Ljóðin eru að mínum dómi langt frá því að vera fullunnin. Ásta Sigurðardóttir var að mínu viti einnar bókar höfundur. Fyrst og fremst vegna ytri aðstæðna og erfiðrar baráttu hennar í lífinu. Hún stendur eftir söm og jöfn og sterk þrátt fyrir þessa viðbót, en öllu nær hefði verið að endurút- gefa smásagnasafnið í uppruna- iegri mynd og þá hefði kannski mátt skrifa greinargóða úttekt um feril hennar og geta í framhjá- hlaupi ýmissa þeirra smásagna ófullgerðra sem hún hefur þó sennilega aldrei hugsað sér að láta frá sér fara. Smásögurnar gömlu sýna að hún hafði til að bera meiri ögun og sjálfsgagnrýni en svo. Niótið gleðinnar sem fytgir undirbúningi jólanna riorúmarms þunur Norömannsþynur (Norömanns- ÖeWnastójólatréð.-ognýtur vaxandi vinsælda. Veana hagkvæmra mnkaupa er Sömannsþynurámiöggoðu verði hjá okkur þessi jol. Komið í iólaskoginn, veljið ykkar eigiðtré. „ Kertamarkaður jólakerti í tugþúsundatali. Allir regnbogans litir og gerðir. Litil, S'ÆSSntaeyiarKerttn vinsælu. Jölastjaman 20% afslattur Seljum jólastjörnu með miklum aíslætti pessa dagana. Áður 398.- NÚ318.- Áður 380.- NÚ304.- Áður320.- Nú 256.- Áður260.- Nú 208.- BúÖ i búöinni Höfumsettuppsérstakabuð með skreytingarefm. Allt i efni sem erfitt er að utvega og Sursumtekkisésthérlendis Gerð purrblómaskreytinga er pínföld og ánægjuleg i senn.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.