Morgunblaðið - 08.12.1985, Síða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. DESEMBER1985
Verðandi öreigafjölskylda f Iowa.
Að halda fótfestunni
Kvikmyndir
Sæbjörn Valdimarsson
Stjörnubíó: SVEITIN
— COUNTRY ☆ ☆ >/j
Leikstjóri Richard Pierce. Frara-
leiðendur Jessica Lange og Will-
iam D. Witliff. Handrit Witliff.
Tónlist Charle Gross. Kvikmynda-
taka David Walsh. Klipping Bill
Yahraus. Aðalhlutverk: Jessica
Lange, Sam Shepard, Wilford
Brimley, Matt Clark, Therese
Graham, Levi L. Knebel. Banda-
rísk, gerð af Touchstone Films
1984. Dreifing Buena Vista. 110
mín.
Það er víðar stórvandi fyrir
höndum hjá skuldunautum en í
íslenskum peningastofnunum. í
Country kynntumst við kreppu
bandarískra miðríkjabænda.
Sagan gerist reyndar á síðasta
áratug, en hún hefur heldur
betur endurtekið sig uppá síð-
kastið. Nú blasir við að bændur
flosni upp í víðfeðmum héruðum
þar vestra, sem áður voru eink-
um fræg fyrir fiatneskju og frjó-
semi moldarinnar. Er skemmst
að minnast að Willie Nelson,
Bruce Springsteen og fleiri góðir
menn héldu stórhljómleika, í
anda Eþíópíusöfnunarinnar, til
hjálpar þessum nauðstöddu lönd-
um sínum.
Þeim Sam Shepard og Jessicu
Lange rennur greinilega blóðið
til skyldunnar, bæði afkomendur
þessara þrjósku, ólseigu mið-
ríkjabænda, sem eins og segir í
myndinni eru þjóðfélaginu
ómissandi en hafa löngum átt sín
feitu eða mögru ár. Bóndi er
bústólpi.
1 Sveitinni fer Shepard með
hlutverk bónda sem fengið hefur
afbragðsjörð með ekki síðri eig-
inkonu, Lange. En tengdapabbi
(Wilford Brimley) hefur þokað
sér til hliðar. En þegar hér er
komið sögu hafa mögru árin
orðið of mörg í röð og bankavald-
ið kippir að sér höndunum; nú
skulu lánin gerð upp, annars
gengið að veðunum.
Shepard brotnar er hann
stendur frammi fyrir gjaldþroti
en Lange reynist ódeig þegar á
hólminn er komið. Hún þjappar
bændum saman sem að lokum
tekst að stöðva aðför lánar-
drottnanna.
Mikil skelfing eru þær keimlík-
ar, þessar þrjár myndir sem
Bandaríkjamenn gerðu í rykk um
erfiðleika sveitafólks. Places in
the Heart fjallaði öðru fremur
um óbifanleik og þrautseigju
hinnar amerísku bóndakonu
þegar í harðbakkann slær og
Gibson og Spacek áttu i höggi
við miskunnarlaust peningavald
í The River. Það er því Sveitinni
tvímælalaust i óhag að hún er
sýnd hér síðust af þrenningunni.
Efnisþráðurinn er, þrátt fyrir
allt, heldur tilkomulítill og ekki
hefur tekist að nálgast hina
dramatískari þætti hans af nein-
um mætti. Myndin rennur átaka-
lítið áfram, sumir hápunktarnir
næsta ósannfærandi eins og
bragðlítið uppboðið og ofbeldi
Shepards gagnvart syni sínum.
Þá var kafli foreldra þroskahefta
piltsins yfirdrifið innlegg í ann-
ars að mörgu leyti mæta mynd.
Því eftir situr umhugsunin um
þetta ómennska vandamál, að
halda fótfestunni þegar erfið-
leikarnir eru yfirþyrmandi og
hokrað er fyrir lánardrottnana.
Það er jafn óvægt og átakanlegt
hvort sem skuldunauturinn er
bóndi í Iowa eða Ölfusinu eða
ríkisstjórnin, sem komin er í þá
úlfakreppu að verða að nota
vænan skerf af svitadropum
þegna sinna til að greiða vexti
af erlendum okurlánum.
Sveitin er einstaklega vel leikin
mynd og óaðfinnanleg valið í
hlutverkin. Kvikmyndatakan
sannkallað augnayndi. Með
broddbetra handriti hefði hún
hæglega getað orðið það minnis-
merki þrautseigju litla mannsins
gagnvart kerfinu, sem til var
stofnað.
Kröftugur ófögnuður
Stjörnubíó: Martröð í Álmstræti
— Nightmare on Elm Street -b'/i
Leikstjóri, handrit, tónlist Wes
Craven. Aðalhlutverk Ronee Bla-
keiey, John Saxon. Bandarísk,
1984.
Wes Craven er einn þeirra
minniháttar spámanna í kvik-
myndagerð sem á sér stóran hóp
fylgjenda reyndar hinn traust-
asta söfnuð. (T.d. er sá semsetn-
ingur sem hér býðst búinn að
hala inn hátt á annan tug millj-
óna Bandaríkjadala og nýbyrjað
er að sýna framhald hans
vestra.) Flest verka hans verða
svokallaðar „cult-myndir“, sem
sf og æ skjóta upp kollinum við
vænar undirtektir „safnaðarins".
Þær eru snöfurlega gerðar og
reyndar mun betur en margar
sem ekkert er til sparað að gera
sem vandaðastar. Fjalla undan-
tekningarlaust um efni tengt
miskunnarlausu ofbeldi og hafa,
mitt í allri blóðstorkunni, deilt á
vissa þætti í bandarísku þjóðlífi.
Sem fyrr, þá flæðir tómatsós-
an upp um alla veggi og útum
öll gólf í Martröóinni í Álmstræti
og efnið glórulaus rökleysa: aft-
urgenginn fjöldamorðingi reynir
að ná hefndum í gegnum martr-
aðir nokkurra unglinga.
Sjálfsagt býður flestum við
hinum takmarkalausa hrotta-
skap og öllu því ofsafengna of-
beldi sem blasir við í myndinni.
Þaö hefði ekki verið fráleitt að
banna hana innan a.m.k. átján
ára, eða jafnvel öllum þeim sem
ekki er í sértrúarsöfnuði Cra-
vens. Þóoer ein afsökun fyrir
sýningu hennar: Craven tekst
flestum betur að fylla áhorfend-
ur skelfingu, er vel á veg kominn
með að hræða úr þeim líftóruna
þegar djöfulgangurinn er í al-
gleymingi. Og allt á þetta að
gerast mitt í vernduðu öryggi
bandarískrar millistéttar. Að
öðru leiti flokkast þetta nýjasta
afkvæmi Wes Cravens undir
sóðaskap.
Sinfóníuhljómsvei t
íslands
Amadeus
tónleikar
í Háskólabíói fimmtudaginn 12. des. kl. 20.30.
Efnisskrá:
V.A. Mozart: Sinfónía nr. 1
Forleikur aö óp. Brúökaup
Figarós.
Tvær aríur úr óp. Brúökaup
Figarós.
2. þáttur úr píanókonsert
nr. 21.
Aría úr óp. Don Giovanni.
1. þáttur úr sinfóníu nr. 39
Ave verum.
Einsöngvari:
Einleikarar:
Kór:
Kórstjóri:
Kynnir:
Stjórnandi:
3. þáttur úr klarinettukon-
sert Lacrymosa.
Katrín Siguröardóttir
Einar Jóhannesson, klari-
nett.
Gísli Magnússon, píanó.
Langholtskirkjukórinn.
Jón Stefánsson.
Siguröur Sigurjónsson.
Jean-Peirre Jacquillat.
Forsala aðgöngumiöa er í Bókaverslunum Sigfúsar Eymundssonar
og Lárusar Blöndal og ístóni, Freyjugötu 1.
Sinfóníuhljómsveit íslands
Grípandi
Frábært og fallegt úrval
sængurver
handklæði
gardínuefni
vattefni í
rúmteppi
og allt í stíl!
finla
frá
yTníatiean
Heildsölubirgðir:
F. Bertelsen
Síðumúla 23
S: 686260 &
6862 66