Morgunblaðið - 08.12.1985, Page 49

Morgunblaðið - 08.12.1985, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. DESEMBER1985 49 Bókverk íslenzkra listamanna og nor- rænar listaverkabæk- ur og sýningarskrár Myndlist Bragi Asgeirsson Á vegum Norræna hússins, Norræna myndlistarbandalagsins og Sambands íslenzkra myndlist- armanna, stendur nú yfir sýning í tilefni 40 ára afmælis Norræna myndlistarbandalagsins. í anddyri hússins eru sýnd bókverk íslenzkra myndlistarmanna en í bókasafni sýnishorn norræna listaverkabóka og samtíningur af sýningarskrám frá ýmsum tímum. Bókverkin spanna tímabilið er þeir Dieter Rot og Magnús Pálsson voru með ýmsar tilraunir í bók- verki á sjöunda áratugnum og allt fram til síðustu tíma er bókverk er orðið að kennslufagi í Mynd- lista- og handiðaskóla íslands. Hér væri að fara út í of langt mál að útskýra nákvæmlega samhengið í þeirri sérstöku tegund af bókverki sem verið er að kynna. Skrifið yrði of fræðilegt og svo eru bókverkin á sýningunni lokuð inni í plast- skápum og þannig ekki tilgengileg til uppflettingar. Tíminn til sýn- ingar bókverkanna er afleitur og staðurinn einnig. Nær hefði verið að sýna þau í kjallarasölum húss- ins á þægilegri tíma og sýna þá um leið Norrænu listaverkabæk- urnar en það er sanast sagna æði þröngt um þær í bókasafninu. Margt er í hæsta máta athyglis- vert í þeirri sérstöku listgrein er nefnist bókverk listamanna og um þessa listgrein hefur þjappast saman harður kjari nýlistamanna. Bókverk í sjálfu sér hefur undirrit- uðum jafnan fundist sígild list- grein enda er saga þess aldagamalt en hefur verið vakið til nýs lífs af ýmsum framúrstefnulistamönnum aldarinnar. Þetta er áhugaverð sýning fyrir þá er listgreinina kunna að meta en fer vafalítið fyrir ofan garð og neðan hjá öðr- um. Hvað norrænu listaverkabæk- urnar og sýningarskrárnar snertir eru gripirnir öllu aðgengilegri og hér er um að ræða mikla námu fróðleiks um norræna myndlist og útgáfu listaverkabóka á Norður- löndum. Auðséð er af sýningunni að hér sækir litla ísland mjög í sig veðrið hvað síðasta áratug viðvíkur, og er það máske það merkilegasta við sýninguna. í Kaupmannahöfn FÆST Í BLAÐASÖLUNNI Á JÁRNBRAUTA- STÖOINNI, KASTRUPFLUGVELLI OG Á RÁÐHÚSTORGI Fólki, er vill kynna sér þennan þátt norrænnar menningar er ráð- lagt að gefa sér góðan tíma því að úr miklu er að moða. Er það tillaga mín að Norræna húsið reyni að festa sér flest af því athyglisverð- asta á sýningunni því að ekki veitir af. f stuttu máli þá eru báðar þessar sýningar hvaireki fyrir áhugamenn um bókverk, lista- verkabækur og sýningaskrár. JOLA BÆKUBNAR SENDAR HEIM ÞERAÐ KOSTNAÐARLAUSU Við bjóðum heimsendingarþjónustu á jólabókunum. Pantir þú hjá okkur 3 bœkureða fieiri, fœrðu þœrsendar heim að dyrum. Við bendum sérstaklega á bókalista sem birtast um þessar mundir í dagblöðunum. Haldir þú þeim til haga, geturþú pantað eftir þeim. Dagana 13. til 18. desember geturðu síðan hringt í síma 622635 eða 622636, lagt inn pöntun og við keyrum bœkurnar út að kvöldi átjánda, nítjánda og tuttug- asta desember. Vanti þig jólapappírinn og merkimiðana, geturðu pantað allt slíkt um leið og bœkurnar. GREIÐSLUKORTAÞJÓNUSTA. EYMUNDSSON Austurstræti 18 GYLMIR/SÍA

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.