Morgunblaðið - 08.12.1985, Qupperneq 55
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. DESEMBER1985
55
Spónsgerði í Hörgárdal um 1930.
síðar vann hún sjálfstætt bæði við sauma-
skap og saumakennslu. Þegar ég tók við
stjórn Kvennaskólans á Blönduósi, fékk ég
Margréti til að kenna þar, og starfaði hún
þar alllengi. Síðar kenndi hún um skeið
við Húsmæðraskóla Reykjavíkur. Eftir að
móðir mín var flutt til Reykjavíkur bjuggu
þær saman, mamma og Margrét, í íbúð sem
við Valtýr bróðir minn höfðum keypt og ég
hef áður nefnt. Síðustu árin bjó Margrét
hjá fóstursyni mínum í íbúð sem við höfð-
um keypt saman. Hún lést 1956.
Margrét var að mörgu leyti töluvert lík
móður sinni. Hún hafði ekki áðeins erft
framúrskarandi hagleik hennar, heldur og
frásagnargáfuna. Segja má, að Margrét
hafi saumað á fimm ættliði. Á Möðruvöll-
um hafði hún saumað föt á afa minn og
ömmu, en undir ævilokin saumaði hún á
börn Helgu Valtýsdóttur bróðurdóttur
minnar. Eg býst varla við, að slíks séu
mörg dæmi. Og allt var gert af þeirri
snilld, sem fáum mun gefin.
Frásagnargáfan var einstök. Svo hvers-
dagslegur atburður sem ferð milli bæjar-
hluta í strætisvagni gat orðið mikið frá-
sagnarefni því að Margrét tók eftir því,
sem fer framhjá okkur hinum. Og það var
enginn hversdagsbragur yfir frásögninni.
A unga aldri hafði Margrét víst verið
hálf- eða altrúlofuð einum skólapiltinum
á Möðruvöllum, en ekkert varð úr því,
þegar á reyndi. Eftir það mun hún ekki
hafa hugsað til hjúskapar, en hún var fríð
sýnum og gekk vissulega í augun á karlfólk-
inu.
Hún naut lítillar skólagöngu. Var að vísu
um skeið í Hússtjórnarskóla Hólmfríðar
Gísladóttur í Reykjavík. En hún.var eins
og móðir hennar fróðleikfús og vel gefin.
Hún batt mikla tryggð við mig og mitt
fólk, og eins og til áréttingar því arfleiddi
hún Guðrúnu dóttur mína að miklum hluta
þess, sem hún átti. Það voru að vísu engin
ósköp, en það sýndi samt hug þessarar góðu
vinkonu minnar.
Hjónin Margrét Stefánsdóttir
og Jón bóndi Kjartansson
í Spónsgerði.
RAUÐI KROSS ÍSLANDS
REYKJAVÍKURDEILD.
THORN
HEIMILIS OG RAFTÆKJADEILD
LAUGAVEGI 170-172 SIMAR 11687 ■ 21240
KENWOOD
TRAUST NERKI MEÐ ÁRATUGA REYNSLU Á ÍSLANDI
Fullkomin varahluta- og viðgerðaþjónusta
BESTA
ELDnÚStíJÁLPm
AUGLST BJARNA D