Morgunblaðið - 08.12.1985, Qupperneq 59
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. DESEMBER 1985
í FYRSTA SÆTI
Hvernig seljast íslensku plöturn-
ar þessa dagana? Misjafnlega vel.
Gömlu brýnin viröast þó enn einu
sinni ætla aö ráöa feröinni. Popp-
arinn geröi þaö aö gamni sínu aö
hafa samband viö stærstu dreif-
ingaraðilana og grennslast fyrir um
hvernig þettá gengi allt saman.
Fálkinn, Steinar og Skífan slógu
þessu einfaldlega upp meö aðstoö
tölvu, en Grammiö og Mjöt voru
ekki farin að dreifa á miövikudag
þegar þetta var ritaö.
Þaö er ekkert sem segir að
staöan veröi svona eftir viku, því
alltaf bætast fleiri plötur við og
hlutföllin geta oröiö allt önnur. Auk
þess vantar hér upplýsingar frá
einstaklingum sem dreifa sjálfir.
Sumir eiga eftir aö gera Skon-
rokksmynd og sitthvaö í þeim dúr
til aö auglýsa sig upp. En svona
var staðan miövikudaginn 4.12.
1985:
1. Laddi 1500 eintök
2. Strumparnir 1400 eintök
3. Gunnar Þóröaraon HOOeintök
4. .Herbert Guömundss. 850eintök
5. Ríó Trtó 600 eintök
6. Rikshaw 500eintök
7. Kristin Ólafsdóttir 450eintök
8.-9. Óliprik 400 eintök
8.-9. Cosa Nostra 400 eintök
10. Bjartmar Guölaugsson 350eintök
11. Magnús Þór Sigmundss. 350 eintök
12. Rokkbrœöur 300eintök
13. Lýöur iEgiseon/
Guöj.Weíhe 250eintök
Bubbi í
Zafarí
Bubbi Morthens heldur
hljómleika í Safari 12. des-
ember nk. og er ekki ástæða
til aö fjölyrða neitt meira um
það.
Ragtime Bob
í Fógetanum
RÚMLEGA sextugur maöur, aö
nafni Bob Darch, er kominn aftur
til landsins og mun skemmta
gestum veitingahússins Fógetans
á komandi vikum.
Hann fæddist í Detroit, læröi á
píanó hjá hinum fræga Gene Turp-
in, fór í herinn, en þegar verunni
þar lauk hóf „Ragtime Bob“, eins
og hann er kallaöur, litríkan feril
sinn.
Hann hefur leikiö um heim allan,
komið fram á skemmtunum í sjón-
varpi og útvarpi, veriö eftirsóttur í
skemmtiþætti og á jazzhljómleik-
um.
Ekki vita allir hvaö ragtime er.
Það nægir aö nefna lagahöfunda
eins og Scott Joplin, Scott Lamp
og Eubie Blake svo fólk kveiki á
perunni. Lögin í kvikmyndinni The
Sting voru til dæmis allt ragtime-
lög.
Ragtime Bob veröur næstum því
hvert kvöld á feröinni á Fógetanum
og er ekki aö efa aö hann nái upp
skemmtilegri stemmningu eins og
síöast þegar hann heimsótti ís-
lendinga.
Ragtime Bob, glaðhlakkaleg-
ur að vanda.
Gömul og góð mynd
af söngvara Rolling Stones,
Mick Jagger.
og hann kom meö fullt af nýjum
hugmyndum," segir Keith Richards
í spjalli viö blm. þann sem heim-
sótti piltana í hljóöveriö.
Nú er stóra spurningin: Mun
hljómsveitin fara í hljómleikaferða-
lag? „Aö sjálfsögöu,” segir Keith
Richards, sem alltaf hefur haft
hvaö mestan áhuga á hljómleika-
feröalögum af hljómsveitarmeö-
limum. Baeði Charlie Watts og Bill
Wyman ku víst ekkert ýkja hrifnir
af hugmyndinni, en eins og Rjc-
hards segir: „Þetta er nú fyrsta
platan okkar fyrir CBS. Viö veröum
aö fara í hljómleikaferðalag!"
Clarence-Ctemons/
Jackson Browne—You’re
a Fríend of Mine
Það glittir i Four Tops, Su-
premes, Temptations og fleiri í
þessu lagi. Tónlistin er sem sagt í
anda Motown-tónlistarinnar og er
þaö bara vel. Clemons er einstakur
saxófónleikari sem setur tón og
tilfinningu ofar en fingraleikfimina.
Söngvari er hann og góöur og þaö
er virkilega gaman aö heyra þessa
kunnu kappa syngja saman, svo
ólíkir sem þeir eru. Lagiö er nokk-
uö gott en nær varla aö uppfylla
þær vonir sem maður bindur viö
þaö eftir upphafsnóturnar.
Paul McCartney orðinn eitthvað
lúinn?
Afgangurinn
Justin Hayward — The
Best
isyettocome
Nú er Hayward farinn aö syngja
eins og Iglesias. En þetta bara
gengur ekki upp. Laglínan og hljó-
magangurinn hafa heyrst milljón
sinnum hér og þar og þaö er
mikill löstur i eyrum Popparans.
Þetta væri fínt sem titillag í þátt
sem héti kannski „Ættir og óðul“
og væri skrifaður af Theresu Charl-
es, ef hún er þá til?
ÍSLENSK
PLÖTUSALA
Laddi þarf ekki að kvarta yfir
plötusölunni þessa dagana,
því plata hans, Einn voöa
vitlaus, hefur selst í 1500
eintökum.
-ADDI
Reyni ekkert
að fela mína
fortíð
er hreinskilinn og reyni ekkert
að fela mína fortíð og kannski
þess vegna eru menn tilbúnir
til að aðstoða mig.“
Ég þekki þrjá sem ætla ekki
að gefa út plötu um jólin. Ertu
ekkert hræddur við að hrein-
lega drukkna í þessu jólaplötu-
flóði?
„Alls ekki. Platan er að-
gengileg. Hljómurinn er góður
og ég held ég þekkist það vel
að ég nái altjent fyrir kostnaði.
Maður er búinn að læra af
reynslunni eftir Rimlarokkið,
SATT-lögin og kassettuna
frægu sem gleymist vonandi
sem fyrst."
Framtíðin?
„Næsta mál á dagskrá er að
koma sér í tónlistarskóla. Blás-
arakennaradeildina í Tónlist-
arskóla Reykjavíkur. Ég var
að læra á trompet í gamla
daga og það væri ekkert vit-
laust að klára það.“
Súbesta
SMÁSKÍFUR
VIKUNNAR
Clannad — Almost Seems
Lag af plötunni Macalla sem án
efa er ein sú besta sem komið
hefur út á þessu ári. Maöur skynjar
náttúru í tónlist Clannad sem og
„mystík". Útsetningarnar eru unnar
af mikilli smekkvísi svo unun er
aö hlýöa á. Söngurinn er afbragö
og lagið sérstakt og vinnur á meö
hverri hlustun.
Aðrarágætar
Topper Headon — Leave
IttoLuck
Fyrrum trymbill Clash hefur sank-
aö aö sér þeldökkum hijómlistar-
mönnum sem kunna aö flytja
„soul" og flytur nú kraftmikla tón-
list af þeirri tegund. Mickey Gallag-
her, hljómborösleikarinn hressi-
legi, er á sinum staö eins og á
gömlu, góöu Clash-plötunum.
Þetta er svo sem ekkert frumlegt,
en nákvæmlega eins og „soul" á
aö vera.
Survivor — Buming Heart
Grænar bólur, grænar bólur. Á
nú aö endurtaka Eye of the Tiger?
Þetta er eiginlega alveg eins. Þaö
er slæmt!
Paul McCartney—
Spies Like Us
Þeir segja aö allt sé gott sem
endi vel, en hér kemur undantekn-
ingin sem sannar þá reglu. Lagiö
endar vel en þaö sem á undan
kemur er ekki neitt neitt. Gamli
maöurinn hefur örugglega veriö
örmagna af þreytu eftir þær 3
mínútur sem hann hefur veriö aö
semja og útsetja lagið.
Hann er 32 ára gamall og
kom fyrst fram opinberlega rétt
eftir fermingu. Hann lék í hin-
um og þessum hljómsveitum '
ísafirði með mönnum eins og
Rúnari Vilbergssyni sem gerði
garðinn frægan með Þursa-
flokknum og Erni Jónssyni sem
var eitt sinn á bassa í Grafík.
Fór í Héraðsskólann á Núpi og
lék meðal annars í skólahljóm-
sveit með Agli Ólafssyni, síðar
Spilverks,- Stuð- og Þursa-
flokksmanni. Þá lá leiðin í höf-
uðstaðinn og var spilað með
ýmsum hljómsveitum. Árið 1974
fór umræddur maður á fyllerí
sem stóð meira eða minna í 10
ár. Hér er átt við Rúnar Þór
Pétursson sem nú hefur verið
„þurr“ í rúmt ár og horfir björt-
um augum til framtíðarinnar.
Um þessar mundir er hann að
senda frá sér sólóplötu sem
heitir Auga í veggnum. Poppar-
inn hitti Rúnar að máli á
Mokka í vikunni.
„Það er ofsaleg vinna að
standa í svona hljómplötuút-
gáfu,“ segir Rúnar í óspurðum
fréttum. „Ætli maður fái sér
ekki framkvæmdastjóra næst
og borgi honum bara tuttugu
þúsund kall fyrir að sjá um
allar þessar útréttingar? Þá
getur maður snúið sér óskiptur
að tónlistinni."
Hverjir eru helstu aðstoðar-
menn þínir á plötunni?
„Ég fékk þrjá ágæta menn
til að hjálpa mér við sönginn.
Þeir eru Bubbi Morthens, Ei-
ríkur Hauksson og Sigurður
Sigurðsson (Eik, Tívolí, Kjöt-
súpan). Einnig mætti nefna
Kjartan Baldursson, bassa-
Rúnar Þór
Pétursson
leikara, Grétar Örvarsson,
hljómborðsleikara og Bjössa
sem tók upp plötuna í Mjöt.“
„Ég ræð öllu,“ segir Rúnar
og glottir. Auk þess tromma ég,
spila allan gítar og hljómborð
við og við.“
Stendur þú einn að þessari
útgáfu?
„Ekki alveg. Davíð Karl
Andrésson heitir maður sem
gefur þetta út ásamt mér og
Mjöt dreifir."
Hvað með Bílaver? *
„Já, það stóð til að félagarnir
þar gæfu þetta út en sökum
anna fór það ekki sem skyldi.“
Þú ert sjálfsagt enginn há-
tekjumaður frekar en aðrir
popparar: Áttu greiðan aðgang
að hjörtum bankastjóranna?
Kannski. Alla vega hefur
mér verið mjög vel tekið alls
staðar og sérstaklega hef ég
fengið góða fyrirgreiðslu í Út-
vegsbankanum í Keflavík. Ég