Morgunblaðið - 08.12.1985, Page 60

Morgunblaðið - 08.12.1985, Page 60
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. DESEMBER1985 60 Saga íslensku knattspyrnunnar — 1: Mörk og sætir sigrar Fyrsta bindi. Bókin sem hefur aö geyma hafsjó af upplýsingum og myndum. Verið með frá byrjun! ÓNLI STARFÉLAGIÐ American String Quartet Tónleikar í Austurbæjarbíói miðvikudag- inn 11. desember kl. 20.30. Efnisskrá: Alban Berg: LÝRÍSK SVÍTA. Franz Schubert: STRENGJAKVARTETT op. 161. Miðasala í Bókaverslunum Sigfúsar Eymundssonar, Lárusar Blöndal og versluninni Istóni. Jótl Ól. Hermanm- son - Minn- ingarorð Fæddur 26. mars 1934 Dáinn 27. nóvember 1985 Hvert liggur sú leið, sem lífið oss teymir? Hve stór er sá hring- ur? Frá vöggu til grafar... Já hringur, — eilífðin er hringur, — án upphafs og án endis. Við erum alltaf að miða við eitt- hvað, — það er eðli vort. Og þá er fyrir oss fæðing og dauði hið nærtækasta, sem upphaf og endir. En er það endilega rétt. Hví skyldi lífið liggja að gröf og ljúka þar ferli sínum? Ætli flestum muni ekki þykja það nokkuð tilgangslít- ið? Þó víst séu það tímamót, en takmarkið er æðra, því trúum vér og það vitum vér, og því er dauðinn enginn óvinur lífsins, heldur áfangi á langri leið, sem liggur hvert? Það verður alltaf hin áleitna spurning, en henni fæst seint svarað. Þroskaskeið hérvistar er mis- langt, því ræður óséð hönd Drott- ins. Hversu sárt sem það er að missa vini og venslamenn, — ó, það vekur söknuð og trega, en víst erum við um ieið þakklát fyrir þann tíma, sem við fengum að njóta návistar hans. Jón ólafur Hermannsson frá Eyrarkoti í Kjós var frá okkur hrifinn svo skyndilega að við fáum það vart skilið, hann var ennþá ungur að árum og átti hlýtt hjarta, sem laðaði börn og breiddi um sig yl, sem lægði storma daglegs amsturs, með hæglátu tali í leit að bjartari hliðum á lífinu, lýst upp af þessu góðlátlega brosi, sem okkur er svo minnisstætt, sem þekktum hann. Við munum ætíð minnast hans í þakklæti fyrir þetta bros, því það er óendanlega dýrmætt þegar dökkir skuggar þrengja að ef hlýir geislar frá brosi góðs vinar fá að smjúga það myrk- ur, — þá grípum við hvern geisla og gerum okkur þræði í þá voð, sem við erum að vefa gegn um lífið. Guð blessi Ólaf Hermannsson og leiði sál hans um ljósa vegu hins nýja lífs, við vottum þakkir fyrir samfylgdina, það andvarp megi fylgja sál hans til himna og falla að eyrum almættisins, sem bæn um blessun til handa þeim anda, sem upp stígur frá ólafi, sem við öll þekkjum svo vel, og nú kveðjum með söknuði og trega, en full þakkar fyrir þá stund, sem við fengum að njóta hans. Við vottum hina dýpstu samúð syrgjendum og sendum okkar hlý- justu kveðjur, — megi trúin á almættið vera þeim styrkur gegn- um lífið og leiða til farsældar. Jón og Fjóla Landíó þitt ísland lokabindi - lykilbók opnar lesandanum nýja helma sem felast i þessu viðamikla ritverki, opnar nýja sýn til sögu lands og þjóðar, þúsundfaldar notagildi þessara gagnmerku bóka. LANDIÐ ÞI LANDIÐ ÞITT LANDIÐ ÞITT tSLAND LANDIÐ ÞITT t KT’T’T í tilefni þess að hér er um lokabindi að ræða fylgir því litmynd úr baðstofunni í Glaumbæ í Skagafirði að gjöf til kaupenda. Hún er 48x68 cm að stærð og hugsuð til innrömmunar fyrir þá sem það vilja. í lokabindinu er sérstakur kafli um Bessastaði eftir Einar Laxness. Kaflinn er prýddur 100 myndum og teikningum, gömlum og nýjum, sem varpa skýru jjósi á þróunarsögu staðarins og á það fólk sem þar kemur mest við sögu. f bókinni er einnig afar sérstæður kafli er ber heitið Leiftur frá liðnum öldum. Þar er brugðið upp IÐ ÞITT AND myndum er endurspegla horfna lífshætti þjóðarinn- ar tii sjávar og sveita. Samanburður á gömlu tveggja binda útgáfunni og þessari nýju: Fyrri útgáfa: Bindafjöldi: 2 BlaðsíðuQöldi: 696 Uppflettiorð: 2660 Myndir: 47 svart-hvítar Staðanöfn: 5686 Mannanöfn: 1923 Nýja útgáfan: Bindafjöldi: 6 Blaðsíðufjöldi: 1869 Uppflettiorð: 4567 Myndir: 1400 litmyndir Staðanöfn: 14300 Mannanöfn: 4300 BÓKAÚTGAFAPi ÖRI> & ÖRLYGUR Síðumúla 11, sími 84866

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.