Morgunblaðið - 08.12.1985, Page 69
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. DESEMBER1985
69
| raðauglýsingar — raðauglýsingar — raöauglýsingar
tíl sölu
Tölvubúnaður
Til sölu er tölvusamstæöa Wang 2200 meö
2x16 mb harða diska, diskettudrif, prentara
og fjóra skjái. í kaupunum fylgir umtalsvert
magn af diskettum og diskettuskápar.
Samstaðan er búin öflugu fjölnotandakerfi
og mjög fjölhæfum og margvíslegum hug-
búnaöi ætluðum bókhaldsstofum s.s. rit-
vinnslukerfi, launabókhald fyrir starfsmanna-
hald af ýmsum stærðum og fjöl-
breytni, viðskiptabókhald sem m.a. reiknar
vexti, gerir hvers konar yfirlit og eyðublöö
og gefur nær ótæmandi möguleika á listum
yfir viðskiptavini, fjárhagsbókhald sem er
óvenjulega fjölbreytt og gagnlegt stjórntæki,
gefur allar venjulegar útskriftir, tengist árs-
uppgjörsaðgerðum s.s. endurmati og fyrn-
ingaskýrslu og skrifar út fullkominn ársreikn-
ing í samræmi við reikningskilastaöal endur-
skoðenda.
Bæöi vélbúnaöur og hugbúnaöur hafa notið
reglulegs viðhalds frá upphafi.
Þeir sem áhuga hafa leggi nafn og símanúm-
er á augl.deild Mbl. fyrir mánudaginn 16.
des. nk. merkt: „T — 10103“.
Iðnaðardeild Sambandsins
Akureyri
auglýsir:
Til sölu IBM SYSTEM/34 tölva meö línu-
prentara. Tölvan er meö magasírii fyrir
segulplötur, 256 K minni og 193 Mb diska-
rými (3 diskar), og fjarvinnslubúnaöi fyrir 1
línu (geta veriö 2). Prentarinn er IBM 5211
model 2, 300 LPM til afhendingar í maí/júní
1986.
Tilboð óskast. Nánari upplýsingar veita
Þórarinn Magnússon, tölvudeild iðnaöar-
deildar sími 96-21900, og Ragnar Pálsson,
tölvudeild SÍS sími 91-28200.
Matvöruverzlun
Mjög góð matvöruverzlun á góðum staö til
sölu. Þeir sem óska eftir nánari upplýsingum
leggi inn nafn, heimilisfang og símanr.á
augld. Mbl. fyrir fimmtudaginn 12. desem-
ber, merkt: „Æ — 3468“.
| fundir — mannfagnaöir |
Fundur um skólamál
Þroskahjálparfélagið á Reykjanesi minnir á
fund um skólamál, sem haldinn verður í
Safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli við Hofstaöa-
braut í Garðabæ þriöjudaginn 10. desember
nk. kl. 20.30.
Efni fundarins veröur: Möguleikar barna viö
upphaf skólagöngu og lok grunnskóla.
Allir velkomnir.
Lionsfélagar - Lionessur
Fjórði samfundur á starfsárinu veröur annað
kvöld kl. 19.15 í Víkingasal Hótel Loftleiða.
Dagskrá m.a. Ávarp: Gylfi Þ. Gíslason pró-
fessor. Frásögn af þátttöku í unglingaskipt-
um Fjóla Jónsdóttir. Kvikmynd Vigfúsar
Sigurgeirssonar frá fyrstu árum Lions.
Þessi fundur er opinn öllum Lionsfélögum
og Lionessum og mökum þeirra. Þátttaka
tilkynnist sem allra fyrst og eigi síöar en
kl. 13.00 á morgun í síma (símsvara) Lions
33122.
Fjölumdæmisráð.
Félag viðskipta- og
hagfræðinga
kjaradeild ríkisstarfsmanna
Aðalfundur kjaradeildar veröur haldinn að
Lágmúla 7 miðvikudaginn 18. des. og hefst
kl. 18.00.
Fundarefni: Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
| tilboö — útboö I
ff| ÚTBOÐ
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar óskar
eftir tilboðum í náttúrustein á gólf í forsal
Borgarleikhússins í Reykjavík fyrir bygginga-
deild.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri,
Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík.
Tilboð verða opnuð á sama stað, miðviku-
daginn 15. janúar 1986, kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 — Simi 25800
Byggingarnefnd flugstöövar á Keflavíkurflug-
velli óskar eftir tilboöum í lyftur og rúllustiga
fyrir nýju flugstöðina í Keflavík og nefnist
verkið
Flugstöð á Keflavíkurflugvelli
lyftur og rúllustigar
FK —10
Verkið nær til:
1. Fjögurra lyfta og tveggja rúllustiga.
2. Hönnunar, smíði, uppsetningar, prófunar
og viöhalds í flugstöðvarbyggingunni í
samræmi við útboösgögn.
Verkinu skal lokið eigi síðar en 15. janúar
1987.
Útboðsgögn verða afhent hjá Rafhönnun hf.,
Ármúla 42, Reykjavík gegn kr. 4.000,-
greiðslu.
Tilboðum skal skila til:
Byggingarnefndar flugstöðvar, Skúlagötu 63,
Reykjavík, eigi síðaren 11. feb. 1986, kl. 14.00.
Reykjavík, 29. nóvember 1985.
Byggingarnefnd flugstöðvar á
Kefla víkurflugvelli.
Tilboð
Sjóvátryggingarfélag íslands hf. biður um
tilboð í eftirfarandi bifreiöar sem skemmst
hafa í umferðaróhöppum:
Nissan Patrol P/4 árgerð ’85.
Ford Escort árgerð ’85.
Fiat UNO árgerö ’84.
Skoda árgerð ’85.
Honda Civic árgerð ’84.
Lada Lux árgerð ’84.
Peugeot 505 GR árgerð ’82.
Mazda 929 station árgerð ’82.
Datsun Laurel árgerö ’83.
Volvo 244 árgerð ’79.
Volvo 343 árgerð ’82.
Cortina árgerö ’77.
BMW árgerð ’72.
Takiðeftir!
Bifreiðarnar veröa til sýnis að Melabraut
26, Hafnarfiröi, mánudaginn 9. desember.
SJÓVfl
SUÐURLANDSBRAUT 4 SÍMI 82500
tilkynningar
Sóknarfélagar
Hin árlega úthlutun úr Vilborgarsjóöi stendur
frá mánudegi 9. desember til 20. desember.
Umsækjendur komi á skrifstofu félagsins í
Skipholt 50A eða hafi samband í síma 81150
eða 81876.
Stjórn Sóknar.
Auglýsing
um nafnbreytingu þeirra sem veittur hefur
veriö íslenskur ríkisborgararéttur með lög-
um.
Með lögum nr. 45, 24. júní 1985 um veitingu
ríkisborgararéttar er þeim sem fengið hafa
íslenskan ríkisborgararétt með lögum að
uppfylltu því skilyrði að þeir tækju upp ís-
lensk nöfn samkvæmt lögum um mannanöfn
nr. 54/1925 veitt heimild til að fá núverandi
nöfnum sínum breytt að nýju þannig að þau
samrýmist ákvæðum þeim sem gilda um
þá sem fá ríkisborgararétt með lögum nr.
45/1985. Á þetta við um þá sem fengiö
hafa ríkisborgararétt á tímabilinu 1952-1980.
Ákvæði þessa efnis er í 2. gr. laga nr.
45/1985 og hljóðar svo:
„Nú fær maður, sem heitir erlendu nafni,
íslenskt ríkisfang með lögum og skulu þá
börn hans, fædd síðan, heita íslenskum
nöfnum samkvæmt lögum um mannanöfn
en hann skal, þá er hann hlýtur íslenskt
ríkisfang, taka sér íslenskt eiginnafn - ásamt
því sem hann ber fyrir - er börn hans taka
sem kenningarnafn. Honum skal þó heimilt,
ef hann kýs heldur, að breyta svo eiginnafni
sínu að það fullnægi kröfum laga um
mannanöfn.
Þeim sem hafa áður fengið íslenskt ríkisfang
með lögum meö því skilyrði að þeir breyttu
nafni sínu í samræmi við ákvæði þeirra laga
sem veriö hafa með öðrum hætti í því efni
en hér að ofan greinir, skal heimilt til árs-
loka 1985, að fá nöfnum sínum breytt
þannig að þau samrýmist ákvæöum þessara
laga“.
Þeir sem óska eftir að fá nafni sínu breytt
í samræmi við heimild í ofangreindu ákvæöi
skulu senda umsókn sína eigi síðar en 31.
desember nk. til dómsmálaráðuneytisins,
Arnarhvoli, 101 Reykjavík.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið, 2. des. 1985.
þjönusta
Þjónusta:
National olíuofnar
Viðgerðar- og varahlutaþjónusta.
Kallkerfi
Rafborg sf.
Rauðarárstíg 1. Simi: 11141.
Getum útvegað lán —
fyrir 13% — en eingöngu fyrir útflutnings-
atvinnuvegina og aðeins gegn ábyrgð þjóö-
bankanna.
Vinsamlegast sendið fyrirspurnir til blaðsins
merktar: „LÁN — 8610“.
Atvinnurekendur
- forstöðumenn fyrirtækja og stofnana
Lögfræðingur óskar eftir föstum viöskipta-
mönnum með innheimtur. Þeir sem heföu
áhuga leggi nafn og símanúmer inn á augl.-
deild Mbl. fyrir 16. des. nk. merkt:
„Atvinnurekendur — 0304“.
4r.
✓
< "