Morgunblaðið - 08.12.1985, Síða 74

Morgunblaðið - 08.12.1985, Síða 74
74 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. DESEMBER1985 Minning: Kristín Kristjáns- dottir Hallberg Harðdrægur sjúkdómur hefur enn höggvið skarð í glæsilegan systkinahóp frá Dagverðareyri við Eyjafjörð. Kristín Kristjánsdóttir Hallberg er kvödd í dag. Rannveig systir hennar, fyrri kona Peters Hallberg, dó 35 ára, Eggert lög- maður bróðir þeirra um fimmtugt og Guðrún 42ja ára. Eftir lifir i Gunnar bóndi á Dagverðareyri. Þar sem heimili okkar Kristínar, JPwþó hvort í sínu landi, voru nokkuð samtvinnuð um árabil vegna sam- starfs eiginmanna okkar, langar mig að kveðja hana með nokkrum endurminningar- og saknaðarorð- um. Upphafi farsæls samstarfs þeirra Peter Hallbergs og Halldórs verður best lýst með orðum hans sjálfs í bréfi til mín: „Ég varð mjög hrifinn af „ís- landsklukkunni", enda var hún á allra manna vörum. Ég byrjaði að snúa henni á sænsku, í upphafi mest til þess að glíma við málið, og án þess að hugsa neitt um birt- ingu. Én svo komst ég í samband við Halldór, og það varð til þess að ég hélt áfram þangað til verkinu var lokið. Og árið 1948 varð „Is- lands klocka“ mesti bókmennta- viðburðurinn hér í Svíþjóð. Um það leyti var ég auðvitað ákveðinn í því að halda áfram, bæði með því að þýða eftir Halldór og skrifa um bækur hans.“ Það voru Kristín og Pétur sem fyrst lyftu glösum á heimili sínu „Ískjallarahlíðinni" í Gautaborg fyrir réttum 30 árum þegar Hall- dór fékk nóbelsverðlaunin. En nú kemur fyrst upp í hugann dagurinn þegar Stína kom ein upp " > að Gljúfrasteini og sagðist vera að fara aftur til Svíþjóðar til Pét- urs og barnanna. Mig minnir að það hafi staðið yfir verkfall hjá verkfræðingum og ég blaðraði eitt- hvað um að það væri rétt hjá henni að nota frítímann; en Kristín varð alvarleg og reyndi að gera mér ljóst á sinn fína og hæversklega hátt að hún væri á leið að giftast Pétri Hallberg. Fram að þeim tíma höfðum við verið góðar kunningja- konur, en engir trúnaðarvinir. Það var því ekki fyrr en þennan dag sem ég kynntist einlægni hennar og innileik, og seint gleymi ég hvernig hún brosti þegar hún fann að ég samgladdist henni í því sem hún var að segja mér, þó það kæmi mér svona á óvart. Þessi frænd- garður hafði sérstaklega viðkvæmt og fínlegt bros og ég sé því stund- um bregða fyrir hjá Auði dóttur- dóttur minni sem er af sama fólki í föðurætt. Þegar ég hitti Kristínu fyrst hjá þeim Rannveigu og Guðrúnu Jónasdóttur í Karfavogi, fanst mér hún kyrrlát og stilt og ekki mjög mannblendin. Kanski var það vegna þess að nú var hún ásamt Eggert bróður sínum, að flytjast inní það fyrirferðarmikla kven- réttindabæli sem þar hafði staðið um nokkur ár; en Rannveig á för- um til Svíþjóðar og eldmóðurinn með henni. Við Kristín áttum þó eftir að njóta þar margra skemmtilegra stunda næstu árin. Hún mintist aldrei á kvenréttindi, en var mikil raunsæiskona og stóð jafnfætis karlmönnum í hverju starfi. Það var mjög kært með þeim systrum og Stína fór til Gauta- borgar til að vera hjá Rannveigu systur sinni síðustu ævidaga henn- ar. Hún fór síöan til Englands til framhaldsnáms og rannsókna- starfa í efnaverkfræði á vegum British Council, og var þar að r minsta kosti í ár. Hún reyndi að ganga börnum Péturs í móðurstað eins oft og samviskusamlega og henni var unt á þessu erfiða tíma- bili. Ég tel mig ekki færa um að meta störf hennar að öðru leyti. Hún var fyrsta íslenska konan sem lauk verkfræðiprófi og mér er kunnugt um að vegna þess stóð til að heiðra hana núna uppúr jólum r í Verkfræðingafélagi íslands. Síðastliðið vor ætluðum við Halldór að fara úr Kaupmanna- höfn til Gautaborgar að heilsa upp á þau Kristínu og Pétur. Ekki varð úr þeirri för. Kristín var enn einu sinni lögð inn á sjúkrahús fársjúk, nýkomin heim úr skemmtiferð um Frakkland með manni sínum. Þó lifði hún af og naut sumarsins með fjölskyldu sinni langt frammá haust. Þó samvistir okkar yrðu slitr- óttari fanst mér ég alltaf hitta vin þar sem hún var, og ég dáðist að henni og þótti vænna um hana eftir því sem ég hitti hana oftar; ekki síst þessi síðustu reynsluár. Ég undraðist oft hvað hún gat verið glöð og kát og vita samt alltaf nákvæmlega hvað henni leið. Síðustu vikuna sem hún lifði gat hún sest upp í rúminu og gert að gamni sínu við vini og fjölskyldu. Þó Stína væri svo lítillát að segja stundum: „Uss, ég er ekkert gáfuð, ég var bara sett í bekk með Rann- veigu svona ung,“ þá var hún samt ein mentaðasta og gáfaðasta stúlka minnar samtíðar, og reynd- ar þær systur báðar, svo ólíkar sem þær voru. Hjartanlegar samúðarkveðjur til fjölskyldu hennar í Gautaborg og hér á landi. Auður Sveinsdóttir Kristín Kristjánsdóttir Hall- berg fæddist á Dagverðareyri við Eyjafjörð 21. janúar 1919. Foreldr- ar hennar voru Kristján Sigurðs- son, kennari og bóndi á Möðruvöll- um í Hörgárdal. Kristín lauk stúd- entsprófi frá stærðfræðideild Menntaskólans á Akureyri vorið 1938. Var hún efst í þeirri deild á stúdentsprófinu og hlaut fjögurra ára styrk til framhaldsnáms er- lendis. Hún brautskráðist úr Dan- marks Tekniske Höjskole sem efnaverkfræðingur árið 1945, og mun hún hafa verið fyrsta íslenska konan, sem lauk verkfræðiprófi. Hún vann sem verkfræðingur við Atvinnudeild háskólans, fyrir Fiskimálanefnd og við Macaulay Institute, Aberdeen, þar til hún giftist eftirlifandi eiginmanni sín- um, Peter Hallberg, í Gautaborg árið 1955. Hallberg var áður giftur eldri systur Kristínar, Rannveigu. Fyrst kynntist ég Kristínu haustið 1933, er hún var aðeins 13 ára gömul. Hún var yngst bekkjar- systkina, en líka var hún fremst í •lólasvdnahókin Einstaklega fallegt ævintýri um Línu og Lása sem búa í bjálkahúsi lengst inni í skóginum ásamt jólasveinamömmu og jólasveinapabba! Tröllabókin eftir sama höfund kom út í fyrra og seldist upp skömmum tíma. Nú hefur bókin verið endurprentuð og anda sjálfsagt mörg börn léttar. Pönnukókutcrtan Skemmtileg bók um karlinn Pétur og kött- inn Brand sem á afmæli þrisvar á ári og snæðir þá gómsæta pönnukökutertu. Kalli og Kata í skólanum Kalli oí* Kata í fjölkikaliúsi Bókaflokkur fyrir litlu börnin sem vísar veginn fyrstu skrefin á þroskabrautinni. • • • * Egget'hækurnar Bráðfallegar og skemmtilegar sögur með myndum, sem komið hafa út í nokkur ár. Bækur sem íslensk börn hafa ótvírætt kunnað að meta. Xícturbókin Gullfalleg og skemmtileg bók með litríkum myndum. Margt skrítið gerist á nóttunni þegar flestir sofa. Þá fara bæði eldflugur, Ijósormar og Óli merkjamaður á kreik. Utli svatri Samhó Einstaklega skemmtileg smábarnasaga sem löngu er orðin sígild. Seldist upp en hefur nú verið endurprentuð. Verð 448 kr. PÖNNUKÖKU TEBTAN Svcn Nordqvist ÞU^SOFNAR- SEINTUMÞESSrjOL

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.