Morgunblaðið - 07.01.1986, Page 6
8
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. JANÚAR1986
ÚTVARP / SJÓNVARP
Jóla-
leikritið
r
Aður en lengra er haldið vil ég
leiðrétta smá mishermi er varð
í grein minni um Áramótaskaupið.
Þar gat ég þess að Saga film hf.
hefði annast um tæknilegan frágang
Skaupsins. Hið rétta er að aðeins
klippingin átti sér stað í kvikmynda-
veri Saga film hf. Að öðru leyti fór
vinnsla skaupsins fram í húsakynn-
um sjónvarpsins. Eg hélt því enn-
fremur fram að æskilegt væri að
sjálfstæð kvikmyndafyrirtæki á borð
við Saga film hf. hefðu hönd í bagga
með vinnslu Áramótaskaupsins í
framtíðinni. Mér skilst að þessari
skoðun hafi vaxið mjög fylgi meðal
þeirra sjónvarpsmanna uppá síðkas-
tið. Hitt er ljóst að þeir hjá sjón-
varpinu ráða yfir tækjum og tólum
og mannafla er dugar til að skeyta
saman fagmannlegu Áramóta-
skaupi. En máski yrði skaupið ögn
ferskara ef kvikmyndafélög út í bæ
fengju að hafa hönd í bagga.
Jólaleikritið
Ég hef satt að segja ekki komist
til þess fyrren nú að rita um jólaleik-
rit Ríkisútvarpsins: Tvöfalda
ótryggð frakkans Pierre Charlett
de Chamblain Marivaux (16881763).
Kjarvalsmyndin, hinar Bleiku slauf-
ur Steinunnar, skaupið og áramóta-
gleði útvarpsins hafa setið í fyrir-
rúmi og raunar sleppi ég ýmsu góð-
gæti úr hátíðadagskrám ríkisfjöl-
miðlanna. En starf fjölmiðlarýnisins
byggir kannski fyrst og fremst á
því að líta vítt yfir svæðið og velja
síðan úr efni er hreyfir við penna
hans.
Skyldan ein ...
Ég verð að játa hreinskilnislega
að jólaleikritið að þessu sinni hreyfði
ekki við penna, skyldan ein rekur
mig til að fara örfáum orðum um
þetta verk. Í fyrsta lagi var efni
verksins lítt áhugavekjandi en þar
er lýst í anda klassískra gamanleikja
ástarfari franskra aðalsmanna er
freista þess að grípa til laglegra
alþýðustúlkna. Er víst ætlunin að
kitla hláturtaugar íslenskra útvarps-
hlustenda með þeim amorsskrípaleik
er þarna er lýst en ég gat hvorki
hlegið er ég hlýddi i fyrsta sinn á
verkið af öldum ljósvakans né er ég
skoðaði það nánar af segulbands-
spólunni. í rauninni vorkenndi ég
leikurunum er virtust standa nánast
utan heimsmyndar verksins með
framandi texta í höndunum enda
segir í hinni virtu leikhúsbók The
Oxford Companion to the Theatre:
Fá verka Marivaux hafa haft nokkur
áhrif í enskri þýðingu, enda eru þau
afar margræð og erfið að þýða (bls.
620). Nú er vitað mál að enskan er
miklu skyldari frönskunni en íslensk-
an. Samt ræðst Þórunn Magnea
Magnúsdóttir útvarpskona óhrædd í
það verk að snara textanum, Sveinn
Einarsson leikstýrir og flutti reyndar
ágætan- formála og síðan standa
leikararnir kringum míkrófónana og
rembast eins og ijúpan við staurinn
við að lesa texta sem greinilega
hefir enga viðspymu í reynsluheimi
þeirra né tilfínningalífi. Hefði ekki
verið nær að kveðja ti! íslenska leik-
ritahöfunda og fela þeim að semja
leikverk er hefði einhveija snertingu
við þann veruleika er vér nú upplif-
um? Sjónvarpið kvaddi til íslenskan
rithöfund er hnýtti fyrir oss bleikar
slaufur úr íslensku silki, þeir hjá
Leiklistardeild Ríkisútvarpsins hríf-
ast greinilega meira af frönsku átj-
ándualdarsilki en gallinn er bara sá
að hinir íslensku leikarar kunnu
ekkert með þetta efni að fara.
Ólafur M.
Jóhannesson
■HBB Sunnudaginn 5.
O "I 30 Janúar hófst
& X — lestur nýrrar út-
vaipssögu á rás 1 og verður
hún lesin á sunnudags- og
þriðjudagskvöldum kl.
21.30. kvöld er því annar
lestur hennar. Alls eru lestr-
arnir 23. Sagan heitir
„Hornin prýða manninn“ og
er eftir norska höfundinn
Aksel Sandemose. Einar
Bragi þýddi og les.
Aksel Sandemose er einn
af kunnustu skáldsagnahöf-
undum Norðurlanda á þess-
ari öld. Hann fæddist í
Nykobing í Danmörku
1899. Faðir hans var dansk-
ur, en móðirin norsk. Sautj-
án ára gamall fór hann til
sjós og sigldi víða um höf
í hálft annað ár uns hann
strauk af skipi síni og synti
til strandar í Nýfundnal-
andi.
Tvítugur að aldri barst
hann til Kaupmannahafnar.
Fyrsta bók hans „Fortællin-
ger fra Labrador“ kom út
1923. Þá strax þóttust
menn greina augljós áhrif
frá „slendingasögum á stíl
hans og mannskilning. Eftir
að hafa gefið út nokkrar
skáldsögur á dönsku fluttist
hann árið 1930 til móður-
lands síns og skrifaði eftir
það á norsku. Fyrsta skáld-
saga hans á nýja málinu
-,En flyktning krysse sit
spor“ kom út 1933. Hún
vakti mikla athygli og hefur
verið talin „óumdeilanlega
dýpsta lýsing norrænna
bókmennta á 20. öld á þrúg-
un 'umhverfisins á börnum
og æskulýð". Meðal kunn-
ustu skáldsagna hans eru
„Vi pynter oss með horn“
(Hornin prýða manninn)
1936, Det svundne er en
drom 1944, Tjærehandleren
1946, Varulven 1958. Aksel
léstárið 1965.
Sagan „Hornin prýða
manninn" gerist um borð í
skonnortunni Fulton sem
siglir frá Bergen í aprílmán-
uði 1914 með vörur til
Eskifjarðar. Á skipinu eru
sex menn. Velkti þá lengi í
hafi, og þegar þeir ná loks-
ins höfn eftir sex vikna úti-
vist tekur annars konar
andbyr við: skipstjórinn
veikist af lungnabólgu og
þeir verða á Eskifirði fram
á haust. Þaðan sigla þeir
til Nýfundnalands til að
taka saltfiskfarm til Spán-
ar.
Á þessari löngu útivist
gefst höfundi nægur tími
til að skyggnast í innstu
sálarkima hvers skipveija,
kanna fortíð þeirra og virða
fyrir sér þetta fámenna
karlasamfélag bæði á hafi
og í höfn. Mennirnir eru
næsta ólíkir og milli þeirra
ríkir mikil spenna. Sagan
er rituð undir greinilegum
áhrifum frá sálgreiningar-
aðferðum Sigmunds Freud.
Höfundur kryfur söguhetj-
ur sínar án linkindar uns
þær standa lesandanum
ljóslifandi fyrir sjónum:
sumar reisnmiklar, aðrar
reköld, en allar eftirminni-
legar. Sagan er að því leyti
óvenjulega byggð að inni í
aðalsögunni eru ótal smá-
sögur, oft í dæmisagna- eða
ævintýrastíl, sem gegna
því hlutverki að varpa Ijósi
á vissa þætti í eðli og atferli
persónanna.
Úr „Kolkrabbanum“.
Kolkrabbinn
- ítalskur sakamálamyndaflokkur
^■■B Nýr ítalskur
O "I 35 sakamála-
Lí x “■ myndaflokkur
hefur göngu sína í sjónvarpi
kl. 21.35 í kvöld. Ails verða
þættirnir sex talsins. Leik-
stjóri er Damiano Damiani
og með aðalhlutverk fara
Michele Placido, Barbara
de Rossi, Nicola Jamet,
Renato Mori og Cariddi
Nardulli.
Sagan snýst um lög-
reglumann, sem sendur er
til starfa á Sikiley og kemst
hann þar í kast við mafíuna
frægu sem alls staðar teygir
anga sína.
Þýðandi er Steinar V.
Árnason.
UTVARP
ÞRIÐJUDAGUR
7. janúar
7.00 Veöurfregnir. Fréttir.
Bæn.
7.15 Morgunvaktin
7.20 Morguntrimm.
7.30 Fréttir. Tilkynningar.
8.00 Fréttir. Tilkynningar.
8.15 Veðurfregnir.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
„Stelpurnar gera uppreisn"
eftir Fröydis Guldahl. Sonja
B. Jónsdóttir les þýðingu
sína (2).
9.20 Morguntrimm. Tilkynn-
ingar. Tónleikar, þulur velur
og kynnir.
10.00 Fréttir.
10.05 Daglegt mál. Endurtekinn
þáttur frá kvöldinu áður sem
Margrét Jónsdóttir flytur.
10.10 Veðurfregnir.
10.25 Lesiö úr forystugreinum
dagblaöanna.
10.40 „Ég man þá tlð" Her-
mann Ragnar Stefánsson
kynnir lög frá liðnum árum.
11.10 Or söguskjóðunni —
Landhelgisgæsla Dana við
Island 1895—1926.
Umsjón Helgi Hannesson.
11.40 Morguntónleikar. Amer-
Isk svlta op. 98b eftir Anton-
In Dvorák. Konunglega fll-
harmonlusveitin I Lundúnum
leikur. Antal Dorati stjórnar.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12.20 Fréttir.
12.45 Veðurfregnir. Tilkynning-
ar. Tónleikar.
13.30 I dagsins önn — Heilsu-
vernd.
14.00 Miðdegissagan „Ævin-
týramaður," — af Jóni Ól-
afssyni ritstjóra. Gils Guð-
mundsson tók saman og les
(4).
14.30 Miðdegistónleikar.
a. „Syrinx" eftir Claude
Debussy og „Joueurs de
flute" op. 27 eftir Albert
Roussel. Roswitha Staege
léikur á flautu og Raymond
Havenith á planó.
b. Svlta op. 57 eftir Charles
Lefebvre. York blásarasveit-
in leikur.
c. Konsert eftir Paul Hinde-
mith. Philipp Jones-blásara-
sveitin leikur. Elgar Howarth
stjórnar.
15.15 Barið að dyrum. Einar
Georg Einarsson sér um þátt
frá Austurlandi.
15.45 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Hlustaðu meö mér —
Edvard Fredriksen. (Frá
Akureyri.)
17.00 Barnaútvarpið. Stjórn-
andi: Kristln Helgadóttir.
19.00 Aftanstund
Endursýndur þáttur frá 30.
desember
19.25 Ævintýri Olivers bangsa
Þriðji þáttur. Franskur brúðu-
og teiknimyndaflokkur um
vlðförlan bangsa og vini
hans. Þýðandi: Guðni Kol-
beinsson, lesari með honum
Bergdís Björt Guðnadóttir.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veöur
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Sjónvarpið (Television)
Nýr flokkur — Fyrsti þáttur.
Breskur heimildamynda-
flokkur I þrettán þáttum. í
17.40 Or atvinnullfinu — lönað-
arrásin. Umsjón: Gunnar B.
Hinz, Hjörtur Hjartar og Páll
Kr. Pálsson.
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir.
19.40 Tilkynningar.
19.45 Daglegt mál. Sigurður G.
Tómasson flytur þáttinn.
19.50 Úr heimi þjóðsagnanna
— „Grýla reiö með garði"
(Tröllasögur). Anna Einars-
dóttir og Sólveig Halldórs-
dóttir sjá um þáttinn. Lesari
með þeim: Arnar Jónsson.
Knútur R. Magnússon og
Sigurður Einarsson velja tón-
listina.
20.20 Or leyndarmálum Lax-
dælu. Hermann Pálsson pró-
fessor flytur erindi.
20.50 Spjaldvlsur. Arni Blandon
les úr nýrri Ijóðabók Hall-
7. janúar
myndaflokki þessum er sögð
saga helsta fjölmiðils vorra
tlma og vlöa leitað fanga. I
einstökum þáttum er fjallað
um fréttír I sjónvarpi, íþróttir,
skemmtiþætti, leiklist og
fræðsluefni. Stjörnum og
stjórviðburðum á hverju sviöi
eru gerð skil og ýmsar kunn-
uglegar svipmyndir og andlit
birtast i þáttunum. Þýðandi:
Kristmann Eiðsson.
21.35 Kolbrabbinn (La Piovra)
Nýr flokkur — Fyrsti þáttur.
Italskur sakamálamynda-
flokkur I sex þáttur. Leik-
stjóri: Damiano Damiani.
bergs Hallmundssonar.
21.05 Islensk tónlist. Óbókon-
sert eftir Leif Þórarinsson.
Kristján Þ. Stephensen og
Sinfónluhljómsveit Islands
leika. Páll P. Pálsson stjórn-
ar.
21.30 Otvarpssagan: „Hornin
prýða manninn" eftir Aksel
Sandemose. Einar Bragi les
þýðingu slna (3).
22.00 Fréttir. Dagskrá morgun-
dagsins. Orð kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.20 Berllnarútvarþið kynnir
unga tónlistarmenn á tón-
leikum 6. júnl I fyrra. Sin-
fóniuhljómsveit Berllnarút-
varpsins leikur. Stjórnandi:
Rico Saccani (Bandarlkjun-
um). Planóleikari: Suk Hyun
Cho (Kóreu). Fiöluleikari:
Desirée Ruhstrat (Bandarlkj-
unum).
a. Forleikur að „Brúðkaupi
Aðalhlutverk: Michele
Placido, Barbara de Rossi,
Nichole Jamet, Renato Mori
og Cariddi Nardulli. Lög-
reglumaöur er sendur til
starfa á Sikiley og kemst þar
I kast við mafluna sem alls
staöar teygir anga slna. Þýð-
anda Steinar V. Arnason.
22.40 Afkoma I útflutningi
Umræðuþáttur I beinni út-
sendingu um ástand og
horfur I Islenskum útflutn-
ingsatvinnuvegum um ára-
mót. Umsjónarmaður: Ólafur
Sigurðsson.
23.30 Fréttir I dagskrárlok
Flgarós" eftir Wolfgang
Amadeus Mozart.
b. Planókonsert nr. 1 I C-dúr
op. 15 ettir Ludwig van
Beethoven.
c. Fiðlukonert I d-moll op.
47 eftir Jean Sibelius.
d. Spænskar kaprlsur op.
34 eftir Rimskl-Korsakoff.
24.00 Fréttir. Dagskrárlok.
Én
ÞRIÐJUDAGUR
7. janúar
10.00—10.30 Kátir krakkar.
Daskrá fyrir yngstu hlustend-
urna frá barna- og unglinga-
deild útvarpsins. Stjórnandi:
Helga Thorberg.
10.30—12.00 Morgunþáttur.
Stjórnandi: Páll Þorsteins-
son.
Hlé.
14.00—16.00 Blöndun á staön-
um.
Stjórnandi: Sigurður Þór
Salvarsson.
16.00—17.00 Frlstund.
Unglingaþáttur. Stjórnandi:
Eðvarð Ingóltsson.
17.00—18.00 Sögurafsviðinu.
Stjórnandi: Þorsteinn G.
Gunnarsson.
Þrigja minútna fréttir sagöar
klukkan 11.00, 15.00, T6.00
og 17.00.
17.00—18.30 Rlkisútvarpiö á
Akureyri — Svæðisútvarp.
17.00—18.00 Svæðisútvarp
Reykjavlkur og nágrennis
(FM 90,1 MHz).
SJÓNVARP
ÞRIÐJUDAGUR
Hornin prýða manninn
- ný útvarpssaga
.. . -■__ijaaa