Morgunblaðið - 07.01.1986, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. JANÚAR 1986
27
Iðnskólaútgáfan:
Ritið Brunavamir komið út
IÐNSKÓLAÚTGÁFAN hefur gefið
út ritið Brunavarnir eftir Rafn Sig-
urðsson, kennara. í ritinu eru marg-
víslegar upplýsingar sem lúta að
brunavömum. í formála segir höf-
undur:
„Eftir áratuga starf í atvinnulíf-
inu, bæði á sjó og landi og þó sér-
staklega starfi mínu við smíðar,
uppsetningar og hleðslu slökkvi-
tækja, hef ég oft undrast það hve
þekking fólks er takmörkuð á öllu
því sem að brunavörnum lýtur.
Þegar ég hóf kennslu í málmiðn
við Iðnskólann í Reykjavík kenndi
ég nemendum þar m.a. ýmislegt í
sambandi við brunavarnir. Út frá
þeirri kennslu varð þetta kynning-
arrit um brunavarnir til þar sem
engar tiltækar kennslubækur voru
til fyrir þennan málaflokk.
Með samantekt þessa rits hef ég
reynt að hafa það að leiðarljósi
að lýsa hverju einu atriði í sem
stystu máli en þó þannig að aðalat-
riðin kæmust til skila.
Brunamálastjóri ríkisins, hr.
Þórir Hilmarsson, hefur yfirfarið
þetta rit. Hann telur það gott og
áhugavert rit til kynningar á
brunavörnum.
Það er von mín að eftir lestur
þessa rits hafi lesendur tileinkað
sér ýmsilegt sem þar er skráð og
geti því brugðist skjótt og örugg-
lega við aðsteðjandi vanda sem upp
kann að koma í sambandi við
brunavarnir."
Meðal efnisatriða ritsins eru
eldsvoöi — eldvarnir, eldsneytis-
geymar, eldfimir vökvar o.fl.,
brunaflokkar, beiting slökkvi-
tækja, slökkvitæki og meðferð
þeirra o.fl.
fÚr fréttatilkynningu.)
Hressingarleikfimi kvenna og karla
Vetrarnámskeið hefjast fimmtudaginn 9. janúar n.k.
★ Kennslustaðir: Leikfimisalur
Laugarnesskólans, íþróttahús
Seltjarnarness.
★ Fjölbreyttar æfingar — músik —
dansspuni — þrekæfingar —
slökun.
Upplýsingar í síma 33290.
Ástbjörg S. Gunnarsdóttir,
íþróttakennari.
Rafn Sigurðsson kennari.
BÆ'I’T kjör með
SÉRSTAKRI
V/XXTAVIÐBÓT AUK
VAXTA OG VERÐBÓTA
Sinfóníuhlj óms veitin:
Þrennir
tónleikar
í janúar
Sinfóniuhljómsveit íslands
heldur þrenna tónleika í janúar,
tvenna fimmtudagstónleika og
eina stjörnutónleika. Fyrstu
fimmtudagstónleikarnir á árinu
verða 9. janúar og er einleikari
Joseph Ognibene, homleikari, og
sijórnandi Páll P. Pálsson.
Á efnisskránni verður frumflutt
nýtt verk, Sinfónía eftir John
Speight, en hann fékk styrk frá
Tónskáldasjóði ríkisútvarpsins til
þess að semja þetta verk. Ognibene
verður einleikari í Homkonsert í
Es-dúr, sem Richard Strauss samdi
þegar hann var 17 ára gamall og
síðasta verkið á efnisskránni er eftir
Respighi, Furar Rómaborgar.
Fimmtudaginn 16. janúar verða
haldnir árlegir Vínartónleikar hljóm-
sveitarinnar þar sem flutt verður
vinsæl tónlist eftir Johann Strauss
og Robert Stolz. Stjórnandi að þessu
sinni verður Gerhard Deckert, en
hann stjómaði framsýningu á Leður-
blökunni hjá Islensku óperanni í
maí sl. Einsöngvari verður Katja
Drewing og að sjálfsögðu verður
Háskólabíó blómum skreytt. Þetta
verða jafnframt þriðju Stjömutón-
leikar hljómsveitarinnar á vetrinum.
Síðustu fímmtudagstónleikar
fyrra misseris verða haldnir 23.
janúar undir stjóm Jean-Pierre Jac-
quillat. Einleikari á þeim tónleikum
verður Guðný Guðmundsdóttir kon-
sertmeistari. Á efnisskránni era
Tvær rómönsur eftir Ama Bjöms-
son, í hljómsveitarútsetningu Atla
Heimis Sveinssonar, en Ámi varð
áttræður 23. desember sl. Þá verður
flutt eitt vinsælasta verk Chausson,
Póeme, og Tzigane eftir Maurice
Ravel. Guðný leikur einleik í öllum
þessum verkum. Síðasta verkið á
tónleikunum er Sinfónía nr. 8 í
G-dúr eftir Antonin Dvorák.
(Úr fréttatilkynningu.)
r
r
essemm sIa